Vikan - 28.04.1966, Síða 7
upphitun, rafmagn og opinber
gjöld t.d. fse ég mér svona einn
kjól á ári að meðaltali og nú
um daginn voru 2 ár síðan ég
hafði fengið mér pils og þá
breytti ég gömlu pilsi. Ég kaupi
engin föt á krakkana, því að það
er ágætt að stytta sér stundir við
að prjóna og sauma. Maðurinn
minn er nær því ennþá sparsam-
ari. En samt sem áður skora ég
nú á þig að gefa mér gott og
spaklegt svar við þessari spurn-
ingu minni, hvað fjögurra manna
fjölskylda þurfi t.d. að lifa af á
mánuði fyrir utan það sem ég
hef áður tekið fram. Ég ætla að
taka það fram svo að þú haldir
ekki að annaðhvort séum við
svona nísk eða miklir maurapúk-
ar að' við erum að berjast í
þeirri þraut að byggja okkur
hús. Þess vegna eru kjólakaupin
og allt það mjög takmarkað núna.
Og gerðu það nú fyrir mig að
henda þessu bréfi ekki í rusla-
körfuna.
Með fyrirfram þakklæti
Addý Páls.
P.S. Ég gleymdi einu. Hvernig er
skriftin?
Jæja, Addý, við höfum haft tölu-
vert fyrir því að reyna að finna
svar við spurningu þinni, en nið-
urstaðan hefur nú samt orðið sú,
að ekki tjóir að ætla fjögurra
manna fjölskyldu minna en svo
sem 6—7 þúsund á mánuði til
fæðis og klæða, án þess að um
íburð sé að ræða, heldur aðeins
nauðsynjar, en þær að vísu
þokkalegar. í þessu höfum við
gert ráð fyrir fimm kjötmáltíð-
um á viku og einum alfatnaði á
ári fyrir fullorðna fólkið, meira
handa börnunum, sem bæði
höggva fötin sín, rífa og slíta,
eins og gerist með krakka. Að
vísu er þetta einhverjum breyt-
ingum undirorpið eftir aldri
bamanna, en þegar allt kemur
til alls, myndi þessi upphæð vera
fremur of lág en há. Því miður.
Skriftin er of ójöfn.
KALDI OG SÍÐAN STINNINGS-
KAIDI.
Risið hefur upp deila hér á
heimilinu út af veðurspánni.
Deilt er um það, hvað átt sé
við með kalda og stinningskalda
og hvaða munur sé á þessum orð-
um. Langar mig að fá vitneskju
um, hvort miðað sé við vind-
hraða, hitastig eða hvort tveggja.
Gæti kaldi t.d. verið, þegar hlýtt
er í veðri eða er hann einungis
þegar kalt er? Fer þetta kannski
bara eftir því hvernig þeim á
veðurstofunni finnst það fara
bezt í það og það skiptið?
Með fyrirfram þökk fyrir svar-
ið.
Einn sem ekki lætur sig.
Kaldi er 4 og 5 vindstig, sem aft-
ur greinast þannig: 4 vinstig eru
11—16 hnútar, 5 vindstig 17—21
hnútar. Stinningskaldi er 6 vind-
stig eða 22—27 hnt. Síðan kem-
ur allhvasst, 7 vindstig, 28—33
hnútar, þá hvasst, 8 vindstig eða
34—40 hnútar, 9 vindstig lieita
stormur og eru 41—47 hnútar, 10
vindstig eru rok og 48—55 hnút-
ar. ofsaveður er 11 vindstig eða
56—63 hnútar, en 12 vindstig og
þar yfir er fárviðri, og þá eru
hnútamir 64 eða fleiri. Gola er
þrjú vindstig og þar niður af
niður í logn, sem varla er hægt að
tala um nema á einhverjum litl-
um bletti, og þá segir veðurstof-
an fyrir um hægviðri. Og til fróð-
leiks um hnútana má geta þess,
að einn hnútur er ein sjómíla á
klst.
Margar sögur hafa spunnizt um
þjónustuna á Pressuballinu síð-
asta, enda var hún Iíkast til hið
eina, sem þar var til aðfinnslu.
JM sendi okkur eina söguna, og
hlýtur blóm fyrir:
Einn betri borgara þessa bæjar
bauð sér og konu sinni á Pressu-
ballið í Lídó í marz síðastliðnum,
til að njóta góðrar skemmtunar,
mats og víns. Meðal annars hafði
hann hugsað sér að drekka rauð-
vín með matnum, og þegar þar
að kom, bað hann þjónustupíuna
um eina flösku af þeim miði.
Stúlkan bað hann að bíða aðeins
við og trítlaði fram, en kom að
vörmu spori aftur og sagði: I»að
er því miður ekkert rauðvin til
lengur, en þér getið fengið séne-
ver!
Fyrsta fflokks ffpá FÖNIXs
ATLAS
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
KÆLING er aðferðin, þegar geyma á matvæli stnttan
tíma. Þetta vita allir og enginn viU vera án kæUskáps.
FRYSTING, þ. e. djúpfrysting við a. m. k. 18 stiga frost,
er auðveldasta og bezta aðferðin, þegar geyma á mat-
væli langan tíma. Æ fleiri gera sér ljós þægindin við
að eiga frysti: fjölbreyttari, ódýrari og betri mat, mögu-
lcikana á því að búa í haginn með matargerð og bakstrl
fram í tímann, færri spor og skemmri tima til innkaupa
— því að „ég á það í frystinum".
Við bjóðum yður 5 stærðlr AXLAS kæliskápa, 80—
180 cm háa. Allir, nema sá minnsti, hafa djúpfrysti-
hólf, þrír með hinni snjöUu „3ja þrepa froststillingu",
sem gerir það mögulegt að halda miklu frosti í
frystihólfinu, án þess að frjósi neðantil i skápnum;
en einum er skipt í tvo hluta, sem hvor hefur sjálf-
stæða ytri hurð, kæli að ofan með sér kuldastillingu
og alsjálfvirka þíðingu, en frystl að neðan með eigin
froststillingu.
Ennfremur gctið þér valið um 3 stærðir ATLAS frystikista
og 2 stærðir ATLAS frystiskápa
Loks má nefna hina glæsilegu ATLAS viðar-kæUskápa I
herbergi og stofur. Þér getið vaiið um viðartegundir og
2 stærðir, með eða án vínskáps.
Munið ATLAS einkennin:
☆ Glæsilegt og stílhreint, nýtízku útlit.
☆ Fullkomin nýting geymslurýmisins með vand-
aðri markvissri innréttingu.
☆ Innréttingarmöguleikar með sérstökum Atlas-
búnaði.
☆ Sambyggingarmöguleikar (kæliskópur ofan á
frystiskáp), þegar gólfrými er lítið.
☆ Færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun.
☆ Hljóð, létt og þétt segullæsing og möguleikar
á fótopnun.
☆ 5 ára ábyrgð á kerfi og traust þjónusta.
• •
Um allt þetta fáið þér frekari upplýs-
ingar, með því að koma og skoða,
skrifa eða útfylla úrklippuna, og mun-
um við leggja okkur fram um góða af-
greiðslu. — Sendum um allt land. SÍMl 24420. SUÐURGATA 10. RVfK.
Sendið undirrit. ATLAS myndalista ag nákvæmar upplýsingar, m. a. um vorC
og greiðsluskilmála.
Nafn: .........................................................................
Heimilisfang: ......................................................
Til: FÖNIX s. f., pósthólf 1421, Reykjavík. V-17
VIKAK 17. tbl. y