Vikan - 28.04.1966, Page 8
Wintrier þrih|6l
tásl í þrem stæröum
ÖRNINN
SPÍTALASTÍG 8
SÍMI 14661
PÓSTHÓLF 671,
Koparpípur eru óðum að ryðjci sér tll rúms I sambandi vlS hlta- og
vatnslagnir. — Koparpípur eru sérstaklega einfnldnr í notkun meS tin
eða silfurlóðuðum koparfittings.
Þessar ógætu vörur höfum vér óvallt í miklu úrvall I verzlun vorri.
EINFALT - ÖRUGGT
Auk þoss höfum vér í stóru úrvali allskonar vatnsloka.
Vér framlei'ðum einnig eins og undanfarin 20 ór, hina viðurkenndu
mótstraur.is- og baðvatnshitara (kopurspirala).
Mimið! Aðeins ]iað bezta er nög'u gott.
VICItZLUN — HITALAGNIR — VERKSTÆÐI
Brautarholti 4 — Pósthólf 167 — Sími 1 98 04 — Símnefnl „GEISLI"
REYKJAVÍK
8
VIKAN 17i tÞi.
DauOadæmdur TMflHÉr
Nú er það álit manna á Vestur-
löndum, að Sovétmenn leggi á
það meiri áherzlu en nokkru
sinni fyrr að halda forskoti sínu
í geimferðakapphlaupinu. Hafa
enskir sérfræðingar látið í Ijós
þá skoðun, að þeir muni næst
reyna að koma hundi lifandi á
land í tunglinu, og verði þetta
aumingja dýr þá fyrsta jarðar-
veran, er stígur fæti á aðra
hnetti. Hundi þessum, sem að
sjálfsögðu verður klæddur sér-
staklega tæknilegu geimúníformi,
verður þá sleppt lausum eftir
lendinguna, og sjónvarpskvik-
myndavél látin fylgjast með
ferðum hans, unz yfir lýkur.
Þessi tilraun gæti gefið skýringu
á mörgu, sem fróðlegt væri að
vita, svo sem hvernig tunglbún-
ingurinn reyndist í heimi, þar
sem þyngdarlögmálið er sex
sinnum aflminna en á jörðinni,
hvort mánaskorpan væri þess eðl-
is, að hún gæti borið uppi hund-
inn og hvernig líkamleg við-
brögð hans verða í þessari ann-
arlegu veröld,
á
Frá mannúðarsjónarmiði er
þetta með hundinn dálítið liæp-
ið, því aumingja skepnan hlýtur
að deyja í einsemd eftir skamma
gönguför um andlitsfall tungl-
karlsins. Það má því búast við
reiðilegum mótmælum frá dýra-
vinum víðsvegar um lieim, eins
og þegar tíkin Laíka, sem var um
borð í Spútnik II — drapst að
undangengnum miklum þjáning-
um úti í einsemd geimsins. Það'
gæti því hugsast, að Rússar litu
svo á málin, að tunglhundurinn
yrði þeim vafasöm kynning.
Bandaríkjamenn eru líka marg-
ir í vafa um, að Rússar muni
senda nokkurn hund á undan sér
til tunglsins. Þeir telja líklegra,
að næsta skref austanvéra verði
mannað geimfar, sem fljúgi um-
hverfis tunglið í Iítilli hæð, en
lendi ekki. Augljóst er, að Rúss-
ar hafa liugleitt þennan mögu-
leika, því sá frægi Júrí Gagarín,
fyrsti geimmaðurinn, vék fyrir
skömmu að því í sjónvarpsvið-
tali. Má trúlega ætla, að skammt
verði að bíða tilraunar Rússa I
þessa átt.