Vikan - 28.04.1966, Qupperneq 9
Hollywood
st|ömur á
stjórnmála-
himininn
því að mæta aldrei á þingfund-
um. Jafnvel flokksbræður hans
fará ekki dult með að hann sé
pólitískt núll.
Nú er önnur gömul Hollywood-
hetja á uppleið í stjórnmálunum:
Það kvað nú mjög færast í
vöxt í Bandaríkjunum, að kvik-
myndaleikarar taki að skipta sér
af stjórnmálum, einkum þó þeg-
ar þeir eru hættir að gera lukku
í kvikmyndunum. Og hvernig
sem á því stendur, taka þeir yfir-
leitt afstöðu með þeim öflum,
sem lengst eru til hægri.
Þetta hófst með því að George
Murphy, sextíu og þriggja ára
að aldri, bauð sig fram fyrir
Repúblíkana við kosningar um
öldungadeildarsæti fyrir Kali-
forníu og vann óvæntan sigur á
blaðafulltrúa Kennedys, Pierre
Salinger. Þetta var 1964. Murphy
þessi var mikil kvikmyndastjarna
áfjórða áratugi aldarinnar, stepp-
aði þá og söng í hálfri tylft
Shirley Temple mynda og lék til
dæmis á móti Ginger Rogers,
Lönu Turner og Judy Garland.
Á miðjum fimmta tugi aldarinn-
ar, þegar stjarna hans fór að
lækka, hellti hann sér af mikl-
um móði út í baráttu, sem gekk
út á það að hreinsa kvikmynda-
iðnaðinn af kommúnistum og
öðrum vinstrimönnum. Síðan
hélt hann stjórnmála afskiptum
áfram, meðal annars í flokki með
mönnum eins og Joe McCarthy
og Barry Goldwater. Eftir sig-
urinn yfir Salinger lét Murphy
svo um mælt: „Stuðningsfólk
mitt er einkum þær góðu, mið-
aldra konur, sem muna enn eft-
ir mér úr kvikmyndunum“. f
öldungadeildinni hefur hann
fyrst og fremst vakið athygli með
ó
Kínverskur leikflokkur, sem
hefur verið á ferð í Accra, er
hér á flugvellinum að taka
síðustu myndirnar til minn-
ingar um veru sína þar í borg.
Reagan í einu kvnkmyndalilut-
verka sinna. Slær hann líka í
gegn í stjórnmálunum?
Ronald Reagan, fimmtíu og
fjögra ára að aldri. Hann hefur
leikið í nálægt fimmtíu kvik-
myndum og var um nokkurra
ára skeið talinn ganga Errol
Flynn næst sem ævintýrahetja.
Hann studdi Goldwater af mikl-
um dugnaði 1964, flutti kosninga-
ræður og safnaði peningum fyrir
Repúblíkana. Nú langar hann til
að verða landsstjóri í Kaliforníu.
Hann er vongóður um að sigra
Demókratann Pat Brown, sem nú
er landsstjóri þar, við kosning-
arnar í nóvember næstkomandi.
Hann hefur þegar öfluga kynn-
ingarvél á bak við sig, og fjár-
hagsstuðning fær hann frá göml-
um fylgismönnum Goldwaters,
John Birch-félögum og öðrum
harðsnúnum afturhaldsmönnum,
eða samskonar fólki og stóð á bak
við Murphy. Fylgismenn hans lýsa
honum sem heiðarlegum, óbrotn-
um manni, sem halda muni fram
rétti hins óbreytta manns og sé
alger andstæða þeirrar hvim-
leiðu, fleðulcgu manngerðar at-
vinnupólitíkusa, sem orðnir eru
landplága í Bandaríkjunum sem
og fleiri lýðræðislöndum. Hann
hellir sér yfir Brown að gömlum
Goldwatersið og segir stjórn
hans ,,rotna“ og „skrílkennda".
Andstæðingar hans segja hann
ekkert annað en hlýðið áhald
afturhaldsmanna þeirra, er kosti
útgerð hans; sjálfur sé hann
heimskur og hafi engar sjálf-
stæðar skoðanir.
Hinsvegar vantar ekki, að Rea-
gan njóti vinsælda meðal félaga
sinna í Hollywood: meðal stuðn-
ingsmanna hans þar má nefna
Framhald á bls, 49.
neu
maywa
die Wegwerf-Windel aus feiner Zellstoffwatte mit Netzumhiillung
windeln
MÆÐUR - Með hinum silkimjúku MAYWA
BRÉFBLEYJUM er bleyjuþvottur yðar úr sög-
unni, þar sem þœr notast aðeins einu sinni. í
MAYWA BRÉFBLEYJUM líður barni yðarveru-
lega vel - því að MAYWA barnableyjur eru
framleiddar úr sérstaklega fíngerðu og vönd-
uðu bréfbleyjuefni, sem drekkur mikið í sig
og veitir fyllsta hreinlœti.
MAYWA verndar hina afar viðkvœmu barns-
húð gegn sœrindum. MAYWA molna ekki —
slitna lítið og erta þvi barnshúðina með minn-
sta móti. MAYWA eru barninu beztar — og
móðurinni hagkvœmar.
LAUGAVEGS APÓTEK
LAUGAVEGI 16 - SÍMl 24045
nnBnHHHHHnmBHH