Vikan - 28.04.1966, Qupperneq 15
ÆR MIÐALDRA? TÆPLEGA FERTUGAR? - ÞÓ ERU ÞÆR ALLAR KOMNAR Á FERTUGSALDUR.
BRIGITTE BARDOT
31 ÁRS
„Aðrir sem eru þrítugir eru
miklu eldri en ég,“ segir BB
þegar hún er spurð um aldur.
sinn. Þessi furðulega franska
stúlka segir að hún ætli aldrei
að verða gömul. „Eg get ekki
ímyndað mér sjálfa mig sex-
tuga, ég er BB og BB verður
ekki sextug.“ En hún hefur
nú samt sem áður þroskazt.
En með því að hætta á það
af fara út fyrir Frakkland á
síðasta ári sýndi hún heimin-
um að hún hefur engu tapað
af táningasjarma sínum.
GRACE PRINSESSA,
37 ARA
Það var sagt að þetta gæti
aldrei varað lengi, ævintýri
prinsins og Hollywood-stjörn-
unnar, en það var árið 1956.
Nú er það hin fyrrverandi
Grace Kelly sem hefur styrkt
stöðu Monaco-ríkis, sem
ferðamannalands. Hún er
móðir þriggja myndarlegra
barna og örugg stoð hins vin-
gjarnlega og geðgóða eigin-
manns síns. Hún hefur líka
kímnigáfu og kippir sér ekki
upp við það þó einhver sjón-
varpsmaðurinn sé svo utan
við sig að hann segi: — Gott
elskan, yðar hágöfgi....
LESLIE CARON,
34 ARA
Litla stúlkan úr „Gigi“ liefur
vaxið úr grasi og aukið á
frægð sína með árunum. En
nú er hún mest umtöluð,
vegna þess að eiginmaður
hennar, Peter Hall, sakar hana
um að vera sér ekki trú. Hún
er sögð mikil vinkona Warr-
en Beatty, og um það segir
hún sjálf: „Warren og ég er-
um góðir vinir, við höfum
ekkert að fela. Ég veit ckki
hvað framtíðin ber í skauti
sínu, en sem stendur líður
mér prýðilega, hef það eins
og sagt er í Frakklandi:
„ljómandi gott í mínu eigin
skinni“. Alla vega finnst mér
lífið dásamlegt.
SOPHIA LOREN,
31 ÁRS
Eftir allar tilraunir til að lög-
helga sambúð sína, geta So-
phia Loren og Carlo Ponti
nú loksins gift sig, í hvaða
landi sem er, utan Ítalíu.
(Þar er ekki tekið mark á
skilnaði Pontis frá fyrri kon-
unni). Sophia segir: „Undir-
staðan i lífi mínu er Carlo.“
Hann „fann“ hana og sjarmi
hennar sá um það sem eftir
fór. Sophia, sem er ein af
fegurstu konum heims segir:
„Ég er ekki nein kynbomba,
ég er bara kona.“
VIKAN 17. tw.