Vikan - 28.04.1966, Side 19
Hér cr atríumhús úr timbri og múrsteini. Eins og sjá má, cr ekki nauðsynlegt að hafa skrúðgarð cða fyila atríið með
gróðri. Hér er mestmegnis gróf möl og steyptar hellur.
urðu á milli gatnanna, Vóru 35x47 m, en á hverj-
um slíkum voru reist fjögur til átta atríumhús
til íbúðar. Af þessu sést að nýting hefur orðið
frábær á þessum litla bletti og mætti vera að
það sæist þó enn betur, þegar athuguð eru húsin
sjálf eins og meðfylgjandi mynd gefur hugmynd
um.
í atríumhúsunum í Priene var inngangur þann-
ig, að ekki sást af götu inn í húsið. Úr anddyri
var gengið inji í gang er var opinn inn á peristyl
(atríum), en úr þessum litla garði mátti ganga
inn í allar vistarverur hússins. Af grunnmyndinni
sést, að atríumhúsið hefur ekki einungis þurft litla
lóð, heldur hefur nýting skikans auk þess verið
frábær.
Atríið sjálft eða garðurinn, hefur í húsunum
í Priene verið 80 fermetrar og það gefur auga
leið, að þar var aðal leiksvæði barna, vettvangur
ýmissa starfa, megingangurinn í húsinu og jafn-
vel veizlusalur. í þessum litla garði hefur fjöl-
skyldan verið út af fyrir sig og í fullkomnu næði.
Ennfremur hefur alltaf einhversstaðar mátt finna
forsælu í garðinum og það var mikils virði á þess-
um sólríku slóðum. Stundum var slegið saman
tveim húsum og gert úr öðru verkstæði eða verzl-
un við hliðina á íbúðinni. Þannig mátti nota þessi
hús allfjölbreytilega eftir þörfum.
ATRÍUMHÚS Á NORÐLÆGARI
BREIDDARGRÁÐUM
Það fer ekki hjá því, að atríumhús hafa bæði
kosti og galla. Kostirnir eru meðal annars þeir,
sém upp hafa verið taldir hér að framan: Fjöl-
skyldan getur verið fullkomlega útaf fyrir sig í
garðinum og nágrannarnir geta ekki fylgzt með
því út um glugga sína, sem þar gerist. Mörgum
finnst þetta mikils virði að geta verið úti en sam-
tímis í fullkomnu næði fyrir umheiminum. Gall-
arnir við atríumhúsið eru svo hinsvegar þeir, að
það er ef til vill nokkru dýrara í byggingu en
venjulegt hús og svo hitt, að erfitt er að komast
hjá því að hafa langa ganga þar sem ekki er
gengið beint inn í herbergin úr garðinum líkt
og suðurlandaþjóðir geta gert.
Þar sem sólargangur er lágur meiri part ársins,
þarf atríum að vera nokkru stærra en haft er í
suðlægari löndum, ef fullt gagn á að verða af
garðinum til útivistar. Ákjósanlegasta stærð atrí-
ums við okkar aðstæður er sennilega svipuð
því, sem Norðmenn telja æskilegt, eða um 8x12
fermetrar. Þá er garðurinn orðinn 96 fermetrar
að stærð en sú stærð nægir til þess að sólar gæti
í garðinum allt árið, þegar sól er á annað borð.
Fyrir venjuleg einbýlishús eins og þau gerast
hjá okkur, hentar tæplega að byggja hreint atrí-
umhús, nema atríið sé minnkað niður í svo sem
20—30 fermetra. Annars þyrfti húsið að vera
gífurlega stórt. Þá ber fremur að líta á atríum
sem ljósgarð, og er þá nauðsynlegt að húsið hafi
auk þess aðgang að garði utan við. Lítið atríum
má þó gera vistlegra með hitim, t.d. geislahitun.
f okkar loftslagi mundi vitanlega ekki vera unnt
að opna herbergin beint inn á slíkan garð. Hér þarf
Norskt gerSihús (U-plan) á Ullem, ut-
an viS Oslo. Hér er gerSiS 123 fer-
metrar og þar af er þak yfir 33 fer-
metrum eins og sjá má. í gerSinu er
grasflöt og einstaka runnar, lítil tjörn
og gangstéttar. Lágur steingarSur af-
markar gerSiS.
onrnD
□□□□BDDD'
□□□DV
Grunnplan af borginni Priene í Litlu
Asiu, sem saman stóS aS mestu af
atríum húsum. A: markaðstorg, B:
helgur skáli, C: ráðhús, D: embættis-
mannahús, E: skóli, F: hof, G: iþrótta-
skóli, H: leikvangur.
Grunnmynd af atriumhúsl 1 Priene.
1: anddyri, 2: gangur, 3: salerni, 4:
atrium (peristyl), 5: skáli, 6: stofa,
7: ibúSarherbergl húsráSanda, 8:
tröppur, 9: ibúSarherbergi þjónustu-
fólks, 10: húsbóndaherbergl.
f Kína hafa menn byggt atríumhús
öldum saman. Hér er kinverskur
bóndabær með þessu sniði Þakinu hall-
ar inn að garSinum og útvegglrnir eru
heilir.
VIKAN 17. tbl. ig