Vikan - 28.04.1966, Page 21
Bandarískt atríumhús. Hér er atríum opiö og sldllS
frá fbúðinni meS glerveggjum. í norSlægarl Ittndum
verður atríum að vera mun stærra en þama, ef
sólar á að njóta þar að nokkru ráði.
Grunnteiknlngin til vinstri: Living Rm: Stofa. Dln-
ing Rm: Borðstofa. Bed Rm: Svefnherbergl. Kit:
Eldhús. Family Rm: Eins konar dagstofa eSa ívern-
stofa. Laund: Þvottahús. Entry Hall: Forstofa. t
miðju hússins er arlnn.
Reykjavík eru í maí, júní, júlí
og ágúst að meðaltali 50 dagar
með sólskini kl. 2 e.h. En þar
af er ekki nema einn dagur full-
komlega lygn. Hér er miðað við
kl. 2 e.h. vegna þess, að sá tími
mun hentugastur fyrir flesta að
notfæra sér sólskin ef fært er.
Logn er mim tíðara að morgni,
enda þekkja að minnsta kosti
allir Reykvíkingar það vel, að
þótt logn sé að morgni, þá er
venjulega komið kul um og eftir
hádegi. Þessvegna hefur mér þótt
rétt að athuga einmitt veður-
ástandið á þessum tíma dags með
tilliti til skjólmyndunar við hús.
Ef svo aftur á móti er litið á
tölur um vindstyrkleika, sést að
70% daganna í júní hafa innan
við 5 vindstiga vindstyrk á þess-
um sama tíma. Það gefur auga
leið, að vindurinn er sá mein-
bugur helztur, sem hér verður
alla jafna á utanhússlífi. Með
tilliti til þess má furðulegt telj-
ast, hvað lítið hefur verið gert
til þess að mynda skjól við hús,
enda þótt það sé kunnara en
frá þurfi að segja að slíkt er vel
mögulegt. En með því að byggja
einungis stök hús og stórar
blokkir með opnum, auðum svæð-
um á milli, er ekki stuðlað að
skjóli nema síður sé. Kringinn
slík hús verða einmitt harðir
vindstrengir og jafnan öllu
hvassara en á algjöru bersvæði.
Með því að gera ráð fyrir að
hentug skjólgirðing myndi skjól
fyrir allt að 5 vindstiga vindi,
liggur heint við að áætla, að af
50 sólardögum á sumrin, gætu
hagnýtzt 30—35 dagar í stað
5 eða ekki það.
Þá er það ennfremur kostur
gerðihúsa, að stærð húss og
gerðis eru óháð hvert öðru. Nýt-
ing lóðanna yrði miklu betri en
þegar einstæð hús eiga í hlut
og næði ætti að geta orðið allt
að því jafn gott og í hreinu atrl-
umhúsi. Auk þess ætti í mörgum
tilfellum að vera hægt að tryggja
nokkurt útsýni.
Til þess að gerðihúsabyggð
næði tilætluðum árangri, væri
nauðsynlegt að skipuleggja hana
mjög gaumgæfilega áður en út-
hlutun og framkvæmdir hæfust.
Verkefni skipulagsins í þvl s«m-
bandi væri þá að stUla húsum
þannig saman, að þau verði hvert
öðru til skjóls og þyrfti þ& að
styðjast við undanfarandi athug-
anir á því hvernig vindar haga
sér I húsaþyrpingum. Af þessu
sést að vandinn sem lagður er
á herðar skipuleggjurum er all-
miklu meiri fyrir svona byggð
heldur en þegar landið er bútað
niður I 600—800 fermetra lóðir
og byggjendum síðan gert að
setja á það hús, sem litið geta
út svo til hvernig sem er, ef
þess er einungis gætt að fara
hvergi svo nærri lóðamörkum
að af því gæti myndazt skjól.
En meðan húsbyggjendur sj&lfir
Framhald á bls. 49.
VIKAN 17. tbl. 21