Vikan - 28.04.1966, Side 24
TV:BYEN, sjónvarpsbærinn £ Gladsaxe í útjaðri Kaupmanna-
hafnar, er enn í byggingu og mun verða nokkur ár til við-
bótar. Þangað mun öll starfsemi danska sjónvarpsins flytjast.
1
Hinar þrjár sérkennilegu byggingar hægra megin á mynd-
inni eru upptökusalirnir, sem þegar eru tilbúnir i sjónvarps-
bænum. Stúdíó III er í miðið, en það höfðu íslenzku sjón-
varpsstarfsmennirnir til umráða meðan á upptökunum stóð.
f sjónvarpsbænum eru glæsilegar og nýtízkulegar byggingar.
Arkitektinn er hinn sami og teiknaði flugstöðvarbygginguna
i Kastrup.
Þrír helztu kennarar á námskeiði tæknistarfsmanna fslenzka '
sjónvarpsins: Otto Jonassen, Kjeld Larscn og Michael M.
Jacoþsen.
24 VIKAN 17. tbi.
80GUIEGUR ATBURBUR
FYRSTU UPPT
VARPSINS
Þótt ekki sé gert ráö fyrir aö íslenzka sjónvarpiö hefji
útsendingar fyrr en með haustinu, hafa fyrstu upptökurn-
ar þó farið fram. Þetta „þjófstart" átti sér stað í Kaup-
mannahöfn dagana 1. til 12. marz s.l. Upptökurnar voru
lokaþáttur í þjálfun tæknistarfsmanna íslenzka sjónvarps-
ins, en danska sjónvarpið efndi til sérstaks námskeiðs
fyrir þá á tímabilinu 1. desember til 12. marz.
í þessari grein bregður VIKAN upp frásögn í máli og
myndum af þessum fyrstu upptökum íslenzka sjónvarps-
ins, en hér er vissulega um merkileg tímamót að ræða.
Nokkrir tæknimannanna hlýða á fyrirlestur alvarlegir á svip. Frá vinstri: Örn Sveinsson, Guð-
mundur Eiríksson, Ingvi Hjörleifsson, Sigurliði Guðmundsson og Þórarinn Guðnason.