Vikan - 28.04.1966, Side 25
)KUR ISLENZKA SJON
TEXTI OG MYNDIR: ANDRÉS INDRIÐASON OG ÓLAFUR RAGNARSSON
Upptökurnar fóru fram í sjónvarpsverinu í Glad-
saxe, þar sem búiö hafði verið svo um hnútana,
að allar aðstæður voru eins og verða munu í upp-
tökusalnum að Laugavegi 176, þegar þar að
kemur.
íslenzku tæknimennirnir, sem þjálfun hlutu
hjá danska sjónvarpinu, voru Jón Hermannsson,
Örn Sveinsson, Ingvi Hjörleifsson, Sverrir Bjarna-
son, Sigurliði Guðmundsson, Sigurður Einars-
son, Þórarinn Guðnason, Úlfar Sveinbjörnsson
og Guðmundur Eiríksson. Aðrir starfsmenn ís-
lenzka sjónvarpsins, sem störfuðu að upptök-
unum voru Andrés Indriðason, Ölafur Ragnars-
son, Magnús Bjarnfreðsson og Markús Örn
Antonsson.
Segir hér frá einum starfsdegi þeirra.
Aður en hafizt er handa í
Stúdíói III er snæddur árbft-
ur í hinni vistlegu matstofu
í sjónvarpsverinu í Gladsaxe.
Undir borðum er skeggrætt
um hátæknifræðileg málefni og
verkefnin, sem framundan eru.
Við lítum út um gluggann og sjá-
um, hvar Úlfar Sveinbjörnsson renn-
ur ( hlaðið á jeppanum sfnum. í
rauninni ætti hann skilið heiðurs-
merki fyrir það, hve glúririn hann
er að rata um borgina á bílnum.
Það er alltaf hægur vandi að sjá,
hvar Úlfar fer, því að jeppinn hans
er einn af sárafáum í allri Kaup-
mannahöfn — og sá eini með ís-
lenzku númeri.
Það er laugardagur 5. marz, og
nú eru þeir Markús Orn Antonsson
og Magnús Bjarnfreðsson mættir til
þess að flytja fréttirnar. Það rfkir
talsverð tilhlökkun, því að þeir hafa
komið með nýjar fréttakvikmyndir
að heiman.
Magnús og Markús höfðu aðeins
tveggja daga viðdvöl í Kaupmanna-
höfn. Hinn 7. marz héldu þeir til
Stokkhólms ásamt Olafi Ragnars-
syni á tveggja mánaða námskeið,
sem sænska sjónvarpið efnir til fyr-
ir stjórnendur dagskrárliða (produ-
centa). Aðra daga var Andrés Ind-
riðason fréttaþulur í Gladsaxe, og
las hann fréttir danska sjónvarps-
ins í íslenzkri þýðingu.
Michael Jakobsen, forstöðumað-
ur tækninámskeiðsins, gengur í sal
inn, brosleitur að vanda og segir
,,davs", þegar hann gengur hjá fs-
lenzka hópnum. í kjölfar hans sigla
aðalkennararnir á námskeiðinu,
Kjeld Larsen og Otto Jonassen. Þeir
segja Ifka „davs"!
Nú fer Kolbrún Jóhannesdóttir,
sem sér um kynningar á dagskrár-
atriðum, að hugsa sér til hreyfings.
Aður en hún sezt fyrir framan sjón-
varpsmyndavélina, þarf hún að láta
sminka sig. Og þetta á við um alla,
sem koma fram f sjónvarpi, jafnt
karlmenn sem kvenfólk — ekki hvað
sfzt fréttaþuli, sem sitja f langan
tfma í sterkum Ijósum. Væru þeir
ekki sminkaðir, litu þeir út eins og
hvítar næpur á skerminum!
Klukkan er tekin að halla í hálf
nfu og nú er kominn tfmi til að
fara að hugsa um undirbúninginn
að upptökunni f Stúdíói þrjú, sem
á að hefjast klukkan 1) stundvfs-
lega.
VIKAN 17. tbl. 25