Vikan - 28.04.1966, Qupperneq 27
Ólafur Ragnarsson, sviSsstjóri, segir
Kolbrúnu Jóhannesdóttur hvar í dag-
skránni hún eigi að lesa hvern kynn-
ingartexta.
Einn ljóskastarinn liefur færzt úr stað,
en það tekur Ingva Hjörleifsson, ljósa-
meistara ckki nema sekúndubrot að
kippa því í liðinn.
Úlfar Sveinbjörnsson gcngur úr skugga
um, að allt sé með felldu með hljóð-
nemann.
Ólafur gefur Kolbrúnu merki um að
bjóða „Gott kvöld ‘...
... og í sömu andrá birtist hún á
skerminum.
Þegar Kolbrún hefur gert grein fyrir innihaldi kvöld-
dagskrárinnar, tekur við stutt auglýsingakvikmynd, en
að henni lokinni er röðin komin að fréttunum. Markús
og Magnús hafa þegar komið sér fyrir við þularpúltin fyr-
ir framan myndavélar nr. eitt og þrjú. Ráðgert er, að
Markús lesi fyrri hluta fréttanna en Magnús hinn síðari.
Markús þarf nefnilega að stinga af, áður en fréttalestur-
inn er úti, því að hann á að sjá um viðtal í fréttaaukan-
um!
Myndavél númer tvö er tilbúin að sýna ljósmyndir, kort
og önnur spjöld, sem nota á. Ólafur sviðsstjóri hefur það
verkefni að fjarlægja myndirnar jafnóðum og þær hafa
verið sýndar.
— Hálf mínúta til upptöku, hrópar Ólafur og bætir við
I valdsmannslegum tón, sem hæfir vel embætti hans:
— Má ég biðja um algjöra þögn £ salnum!
Markús lítur í siðasta sinn yfir fréttahandritið og full-
vissar sig um, að blöðin séu í réttri röð. Blöðin, sem hann
les af, eru gulleit, og það er engin tilviljun, sem ræður
því. Þau eru höfð í þessum lit til þess að koma í veg
fyrir endurkast frá hinum sterku ljósum. Hvítur pappir
er algjör bannvara undir slíkum kringumstæðum. Auk þess
er hvert blað í þunnum plastumbúðum til þess að koma
í veg fyrir skrjáf.
Nú er auglýsingatímanum lokið og skilti með orðunum
FRÉTTIR birtist á skermlnum. Jafnframt er leikinn fjör-
legur kynningarlagsstúfur.
Áður en varði hefur kviknað rautt ljós á myndavélinni
og sviðsstjórinn fær boð frá stjórnandanum um að gefa
Markúsi merki um að hefja lesturinn.
Niðurröðun fréttanna er með öðrum hætti hér en tíðk-
Framhald á bls. 48.
Á þcssum þrcmur myndum má sjá, hvernig fréttatíminn
hófst. Fyrst kom á skcrminn skiiti, sem á stóð „FRÉTTIR“;
því næst klippt cða „mixað" yfir á þá myndavél, sem tók
myndir af fréttaþulnum og hann hóf lestur fréttanna. —
Á miðmyndinni sést vel afstaða myndavélarinnar til þul-
arins, sem í þetta sinn var Andrés Indriðason, og á neðstu
myndinni má sjá, hvernig hann tekur sig út á skerminum.
FPéttÍP
Sverrir Bjarnason situr hér við „skannerinn" í kvik-
inyndaherberginu og stjórnar útsendingu allra kvik-
mynda, sem notaðar eru í dagskránni, jafnt frétta-,
auglýsinga-, fræðslu- og skemmtimynda.
Hér eru fréttamenn íslenzka sjónvarpsins, Markús Örn
Antonsson á efri myndinni og Magnús Bjarnfreðsson
á þeirri neðri. Til vinstri á myndunum er einn af frétta-
mönnum danslta sjónvarpsins að spyrja þessa starfs-
bræöur sína um væntanlegt íslenzkt sjónvarp fyrir
„TV-Avisen“.
Þannig á Magnús Bjarnfreðsson eftir að birtast íslcnzk-
um sjónvarpsáhorfendum í fréttatímum sjónvarpsins.
Markús Örn Antonsson mup einnig flytja frétömar,
þegar íslenzka sjónvarpiö tekur til starfa.
VIKAN 17. tbl. 27