Vikan - 28.04.1966, Side 39
Dóttur okkar er boSiS út
Framhald af bls. 17.
ekki á þennan náunga framar í
þessu húsi. Eg skal svei mér láta
hann vita....
— O, nei, sagði ég.
Hann skildi mig ekki, enda gat
ég ekki skýrt þetta á neinn hátt,
en ég fann að við urðum að slaka
á taumnum gagnvart dóttur okkar,
slaka á, honum, ekki sleppa hon-
um.
— Við neyðumst til að finna ein-
hverja leið, sagði ég og ég vissi
að röddin var aumingjaleg. Allar
leiðir, sem mér fannst hugsanlegt
að fara, voru of gamaldags, og
ég vissi að þær myndu eyðileggja
það sem okkur fannst að hlyti að
vera unnið með því að banna henni
að fara í þetta andstyggilega boð.
Við gætum kallað á Terry og
krafizt þess að hann lofaði því að
Nicky kæmi heim í síðasta lagi
klukkan hálf ellefu og heimtað að
hann kynnti okkur fyrir húsbóndan-
um og húsmóðurinni á Grange
Road, að minnsta kosti urðum við
að fá vissu fyrir því að það væri
einhver ábyrgur heima. En slíkt ger-
ir maður ekki lengur. Ef við gerð-
um eitthvað þessu líkt, væri Nicky
kölluð „skrýtin".
Mér er fjárans sama hvort hún
er kölluð skrýtin, súr eða sæt, en
það hefur mikla þýðingu fyrir hana.
Það er hún sem á að alast upp
með sinni kynslóð, ekki ég. En það
erum við William sem verðum að
sjá til þess að hún verði ekki fyrir
skakkaföllum, beinlínis vegna þess
að hún er svo ung að hún skilur
ekki þær hættur sem gætu orðið á
vegi hennar.
Nú var hún lögð af stað með
Terry. William talaði við hann, áð-
ur en þau fóru og hann lofaði því
að hún skildi vera komin heim
klukkan ellefu, við slökuðum svo-
lítið til þar, því að partýið átti ekki
að byrja fyrr en klukka átta.
Og nú hugsa ég til tíu undan-
genginna daga og þeirrar neðan-
jarðarstarfsemi, sem ég lagði á mig
til að fá eitthvað að vita um fólkið
á Grange Road, án þess að láta
nokkurn mann vita um þessar að-
gerðir mínar.
En veit ég nógu mikið? Kann
ske er eitthvað í fari þessara há-
tízkulegu unglinga sem ég skil ekki
og er þar af leiðandi ekki fær um
að afla mér upplýsinga um? Það
gæti verið.
Stúlkan sem pakkar inn ostinum
hjá kaupmanninum þekkir fjöl-
skylduna á Grange Road. Hún segir
að þau séu prýðisfólk, en svo
dettur mér í hug að hún er aðeins
sextán ára sjálf og þessvegna varla
dómbær.
Frú Mayborn, sem býr hér f ná-
grenninu gat sagt mér hvað þau
heita. Þau heita Kippen, og ég vildi
óska að það væri ekki svona líkt
Crippen, sem var fjöldamorðingi,
en þau geta auðvitað ekki gert að
Sterkt nýtt vopn
í baráttu yðar gegn
tannskemmdum
HIÐ NYJA GIBBS FLUOR TANNKREM STYRKIR TENNUR YÐAR
GEGN SÝRUM OG VERÐUR ÁHRIFA VART INNAN 21 DAGS:
Um leið og þér byrjið að bursta tennurnar með Gibbs
Fluor tannkremi verði þær ónæmar fyrir skaðlegum
áhrifum munnvatnssýranna. Allir vita að sýrur valda
tannskemmdum.
Gibbs Fluor tannkrem styrkir glerung tannanna og
gefur þeim meira mótstöðuafl gegn skaðlegum sýrum.
Eftir þrjár vikur fer að gæta áhrifanna og þá getið þér
varið tennurnar betur en nokkru sinni fyrr.
Hin leynilega Gibbs formúla sem styrkir glerung
tannanna táknar stórkostlega framför á sviði tannvarna,
þess vegna er Gibbs Fluor tannkrem sterkasta vopnið
í baráttu yðar við tannskemmdum. Þess vegna ættuð
þér að byrja að nota Gibbs Fluor tannkrem strax í dag.
Eftir 21. dags notkun Gibbs Fluor tannkrems,
kvölds og morgna, hafa tennur yðar öðlast þann
styrkleika, sem nauðsynlegur er gegn skaðlegum
áhrifum sýranna.
Hvernig Virkar Gibbs Fluor?
Gibbs Fluor imýheldur efnasamsetningu sem hefur
styrkjandi áhrif á glerung tannanna, sem nefnist
“stannous fluoride”, sem ekki er hægt að nota í
venjulegt tannkrem.
Það þurfti frcmmstu og reyndustu tannkremafram-
leiðendur Bretlands til að uppgötva formúlu þá, sem
Gibbs Fluor tannkremið byggist á. Um leið og þér
byrjið að nota Gibbs Fluor tannkrem virka efni þess á
tvennan hátt, til að minnka upplausnarhættu glerung
tannanna, svo bæði “stannous” og “fluoride” hafa
þýðingarmiklu hlutverki að gegná.
Einfaldar reglur, sem tryggja
heilbrigðar tennur
Það eru tvær grundvallarreglur, sem
tryggja heilbrigðar tennur:
(i) Burstið tennurnar reglulega tvisvar á dag.
(2) Farið til tannlæknis tvisvar á ári.
Munið að regluleg tannhreinsun er
undirstaða heilbrigðra tanna og góms,
hreins og fersks munns. Með Þvi að bursta
tennurnar vel fjarlagið Þér mat, sem annars
myndar skaðlcgar sýrur. Burstið upp og
niður, einnig bak við tennurnar,—
verið vandvirk.
Farið reglulega til tannlæknis, Það sparar
yður óÞægindi og sársauka. Heilbrigðar
tennur eru dýrmæt eign: Þær auka gott
heilsufar, vellíðan og fegurð. Hirðið
Því vel um tennur yðar.
Látiö fjölskyldu yðar byrja
að nota
Gibbs Fluor
TANNKREM
l!f Gíbbs fluoride
X-GF 2/lCE-Ö851
VIKAN 17. tbl. 2Q