Vikan - 28.04.1966, Page 45
— Nei. Litlaus augu hvíldu ó Mc-
Whirter. — Ég get ekki ímyndað
mér, að þú farir að gera nein
heimskupör.
Tálgað andlit McWhirter missti of-
urlítið af litnum. — Ég er ekki sá
bjáni, Gabríel, sagði hann fýldur.
Það var barið á dyrnar, og þær
opnuðust. Frú Fothergill kom inn og
þurrkaði af höndunum á stórum,
óhreinum vasaklút. Það var letileg
ur vesældarsvipur á þunglamalegu
andliti hennar.
— O, kæra frú. McWhirter fjaðr-
aði á móti henni fram að dyrunum,
glansandi af aðdáun. — Þú hefur
ekki hugmynd um, hvað ég öfunda
þig, frú Fothergill. Hamingjusamur
er sá, sem hefur einfaldar þarfir.
Hann tók um hönd hennar og strauk
hana blíðlega. — Þig langar ekk-
ert í auðæfin. Þú hefur engin róm-
antísk vandamál. Aðeins krús af
víni og bók um vöðvabyggingu og
líkamsrækt, lítilfjörlegt dráp við og
við . . .
— Þegiðu, McWhirter, sagði frú
Fothergill, góðlátlega og ýtti hon-
um frá sér. Ég hefði ekkert á móti
því að fá í staupinu núna, úr þvf
að þú minnist á það.
Gabríel kinkaði kolli og hellti um
þumlungi af viskíi í glas.
— Þína skál, kæra frú Fothergill,
sagði hann og rétti henni glasið
með elskulegu brosi. — Þú varst
að vinna fimm pund fyrir mig. Ég
veðjaði við Borg, að þú myndir
kyrkja náungann, en Borg var viss
um, að þú myndir nota hálsbrots-
aðferðina, eins og við hinn sæla
ábóta.
— Mér datt það nú.í hug, við-
urkenndi frú Fothergill, — en það
tekur of fljótt af þannig. Hún hugs-
aði sig um eitt andartak. — Hann
var þá ábóti, hinn? Hún saup á,
hugsaði sig um aftur, lyfti síðan
glasinu og tæmdi úr þvf. — Og
tókstu fimm pund af Borg fyrir
þennan? Ég skal ná því af þér f
póker á morgun, drengur minn. Hún
leit á Gabrfel með einhverju, sem
var átakanlega líkt feimnislegu
smeðjubrosi.
— Þakka þér fyrir, Gabríel/ — ég
á við — þú veizt, fyrir — skemmt-
unina.
— Allt í lagi, frú Fothergill. Láttu
Mendoza koma.
Hún kinkaði kolli, þurrkaði sér
um munninn á vasaklútnum, tróð
honum svo f buxnavasann og fór
'
fram.
McWhirter glotti og ætlaði að
fara að segja eitthvað. En svo sá
hann, að Gabríel var niðursokkinn
^ í reikningana og ákvað að þegja.
Fimm mínútum seinna kom hörunds-
* dökkur maður með uppbrettar erm-
* ar. Gabrfel stóð upp.
^ — Sýndu þessa síðustu kvikmynd
, 7 aftur, Mendoza. Þessa með gas-
í lampann. Þú hefur ekki séð hana
* ennþá er það, McWhirter?
— Hér — Nei. Nei, ég hef ekki
& séð hana. Kalonides kom ekki með
hana fyrr en í dag.
— Allt f lagi. Þú mátt vera. Þetta
1 var heiður. Framhald ( næsta blaði.
I
BARA HREYFA EINN HNAPPog
Hé%i4AFULLMflTIC
SJÁLFVIRKA ÞVOTTAVÉLIN ÞVÆR, SÝÐUR, SKOLAR OG
VINDUR ÞVOTTINN.
S-M/%i4/*FULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. -
HAKA GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST.
SJÁLFSTÆÐ I
ÞVOTTAKERFI
1. Suðuþvottur 100*
2. Heitþvottur 90*
3. Bleijuþvottur 100*
4. Mislitur þvottur 60*
5. Viðkvæmur þvottur 60°
6. Viðkvæmur þvottur 40°
7. Stifþvottur/Þeytivinda
8. Ullarþvottur
9. Forþvottur
10. Non-lron 90°
11. Nylon Non-lron 60°
12. G'uggatjöld 40°
B-i^«^%FULLKlATiC
AÐEINS S-S/*i*/%FULLMATIC ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. SNÚIÐ EINUM SNERLI
OG H A K A SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTIUNDNUM. - SJÁLFVIRKT
HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU ÞVOTTAKERFI. —SJÁLFViRKAR SKOLANIR. - TÆM-
ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL-
IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ
GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRlTT STÁL.
'J? h ja.— ábyrgS
KOMIÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST
VXKAN 11. tbl.