Vikan - 28.04.1966, Síða 49
mannar gengu líka manna bezt
fram í krossferðunum og settu
slíkan svip á þær, að þær hafa
verið nefndar kristnar víkinga-
ferðir. Meiri áhrif hafa Víking-
ar þó líklega haft í Englandi.
Lög engilsaxneskra þjóða bera
enn miklar menjar forn-skandi-
navísks réttarfars, og margir telja
athafnalöngun þá og útþrá, sem
einkennir Breta og afkomendur
þeirra um flestar þjóðir fram,
arf frá Víkingum. Þá hefur örl-
að á þeirri hugmynd, að frelsis-
ást Víkinga, tilfinning þeirra fyr-
ir jafnrétti og manngildi ein-
staklingsins og andúð á höfð-
ingjaveldi lénstímans, lifi enn
hjá afkomendum þeirra og hafi
gert þá færa um að mynda og
móta lýðræðisþjóðfélög nútím-
ans. Víst er um það, að fáum
öðrum þjóðum en Skandínöv-
um og Engilsöxum hefur enn tek-
izt að tileinka sér þetta þjóð-
skipulag að nokkru gagni.
dþ.
Hollywood stjörnur...
Framhald af bls. 9.
kappa eins og John Wayne, Walt
Disney og Robert Taylor, sem all-
ir eru heitir Gullvetningar (Gold-
water-sinnar). Því er jafnvel
hvíslað, að John gamli (hann er
nú kominn undir sextugt) ætli
bráðlega í framboð sjálfur. Þessi
fræga kúrekahetja er meðlimur
pólitísks félagsskapar, sem hefur
þá bjargföstu trú, að Bandaríkin
muni bráðlega bíða ósigur fyrir
kommúnistum í styrjöld og verða
hernumin af þeim. Þegar svo er
komið, ætla þeir Wayne og félag-
ar að hefja skæruhernað gegn
þeim að gömlum og góðum kú-
rekasið og hreinsa landið af þeim.
Helzta tómstundastarf Johns er
því að grafa vopn í jörðu hing-
að og þangað um eyðimerkur
suðvesturríkjanna, svo að hand-
hægt verði að grípa til þeirra,
þegar að frelsisstríðinu kemur.
Atríumhús og garðhús
Framhald af bls. 21.
hafa ekki í frammi óskir um
annað en algerlega sjálfstæð hús
í garði, til þess að þurfa hvergi
að semja eða hafa samninga við
aðra, verða treglega innleiddir
hentugri byggingarhættir. Það
Það liggur að vísu ekki
fyrir samanburður á kostn-
aði við að byggja með til-
liti til skjólmyndunar á móti
því að byggja líkt og gert hefur
verið, en það er alls ekki víst,
að þar þurfi að verða tilfinnan-
legur munur á. Og ef litið er
jafnframt á byggingarland sem
þjóðarverðmæti, hygg ég að frá
því sjónarmiði mætti jafnvel
sýna fram á að gerðihús væru
hagkvæmust, þegar á allt er
litið.
Reykjavík í marz 1966.
f
'jxiiuniih
I NTE RNATI ONít
Á FERMINGAR-
STÚLKUNA
MÍKOIIÐ
Mjög falleg sett
í litlum stærðum.
Brjóstahaldari,
teygjubelti eða
buxnabelti.
Undirpils eða
undirkjóll.
Póstsendum
um land allt.
Laugavegi 38.
Snorrabraut 33.
Símar 10765 - 10766.
Sál
i ÖLLUM KADPFÉLAGSBÚÐUM
k..
SHAMPO