Vikan - 28.04.1966, Side 50
*<N
AVON VEKUR
FEGURÐINA
AF DVALA
ALLA ÞÁ FEGURÐ, SEM ÞÉR VISSUÐ
AÐ ÞÉR ÁTTUÐ.
Hulin fegurð, sem þér vissuð að þér áttuð, kemur í
Ijós við snertingu Avon. Blómstrar við snertingu
Avon makeup. Springur út við hlýju hinna nýju
varalita og naglalakka.... Og svo að lokum gerir
Avon augna makeup fegurð yðar fullkomna. Það
geta allir séð. Það þarf Avon töfra til að fegurðin líti
dagsins ljós.
Avon
londom cosmetics NEV
|ií||E irp c ■ 1 íöl Di/íinnm
m m JuínliillU
5 UPPSKRIFTIR
1
OSTBAKAÐ SKINKUBRAUÐ.
200 gr. reykt skinka, 2 meðalstórir laukar, 2 stórir tómatar, I matsk. tómat-
purré, 6 sneiðar franskbrauð. Ostamajones: 2 egg, dl. olía, 100 gr. rifinn ostur,
salt, paprika.
Saxið laukinn smátt og flysjið tómatana. (Auðvelt er að flysja l>á, ef |>elm
er haldið litla stund yfir cldi). Steikið laukinn þar til hann er meyr og gljá-
andi og leggið tómatana á pönnuna síðast og látið þá „bráðna“ með lauknum.
Skerið skinkuna í smábita og bætið í ásamt tómatpurré og látið malla undir
loki. Hrærið majones úr eggjarauðunum og olíunni og bætlð ostinum f. Ristið
brauðið lauslega og setjiö skinkublönduna á brauðið. Þeytið eggjahvfturnar vel
og blandið varlega f majonessósuna og þekið brauðsneiðarnar með þvf. Baklð
í 200 gr. heitura ofni í 15 mfn.
2
SVEPPABRAUÐ.
200 gr. nýir sveppir, \'2 grænt paprikuhulstur, 2 tómatar, kínversk soya, salt,
hvítur pipar. 1 di. rjómi, 50 gr. smjör eða smjörlíki, 1 matsk. hveiti, 6 sneiðar
franskbrauð.
Saxið paprikuhulstrið smátt og sjóðið það meyrt f smjöri. Hreinslð og sker-
ið sveppina f sneiðar og sjóðið litla stund f smjöri eða smjörlfkl. Stráið hveltl
út á og jafnið upp með rjóma. Látið jafninginn malla nokkrar mfnútur, krydd-
ið og setjið svolitla soyu saman við. Setjið jafnlnginn á brauðsnciðarnar og
paprikuna þar ofan á. Tvær tómatsneiðar lagðar á hverja brauðsnelð og sfðan
bakað í 275 gr. heitum ofni f ca. 5 mfn.
3
FISKBRAUÐ.
5—6 franskbrauðssneiðar, góður reyktur fiskur, smjör eða smjörlíkl, 100—200
gr. ostur, 2 laukar, 1 sftróna, e.t.v. 100—200 gr. rækjur til skreytingar.
Sjóðið fiskinn í blöndu af mjólk og vatni. Smyrjið brauðið og setjlð smá-
saxaðan lauk á hverja sneið, annaðhvort hráan eða lauslega steiktan. Setjið
fiskinn f smábita á laukinn, saxið dill og strálð yfir. Þeklð hverja sneið með
nógu af rifnum osti og bakið brauðið við 275 gr. hita þar til osturinn er fallcga
brúnn, eða í ca. 10 mín. Skreytið með dill og þunnum sítrónusneiðum og e.t.v.
rækjum.
4
LIFRARBRAUÐ.
1 franskbrauðssneið, 50 gr. kálfalifur eða önnur lifur, 2 baconsnciðar, 1 tómat,
1 snelð ostur, laukur, sinncp, salt, pipar, paprikuduft.
Sjóðið lifrina andartak f saltvatni, takið hana upp úr og skcrið f sneiðar.
Kryddið sneiðarnar og veltið þeim upp úr hveitl og steikið fallega brúnar f
smjöri. Skerið tómatinn í snciðar og baconið f bita, sem eiga að stelkjast mjög
lauslega. Steikið brauðið f feiti og smyrjið með sinnepl og setjið smásaxaðan
lauk ofan á, en síðan lifrina, baconið og tómatinn og þekið með þykkri ost-
sneið. Bakið vlð 250 gr. hita f 5—10 mín. Stráið paprikudufti út á, áöur en
brauðiö er borið heitt fram.
5
SÍLDARRÚLLA.
Stór formbrauðssneið, e.t.v. skorln langsum, eða mjög mjúk hvcltlflatkaka, 6
sölt síldarflök, 3 liarðsoðin egg. 6 matsk. saxaður grasiaukur, 6 kaldar soðnar
kartöflur, smjör eða smjörlfki. 1 egg, graslaukur.
Útvatnið sfldina f —1 sólarhring. Þerrið síldarflökin og steikið þau háðum
megin. Saxið cggin smátt og blandið meö graslauknum. Flysjið og skerið kart-
öflurnar í þunnar sneiðar. Þckið brauðlð með kartöflusneiðunum. Leggið sfld-
arflak á miðjuna' og stráið eggja- og graslauksblöndunni yfir. Rúllið brauð-
inu saman og leggið það með samskeytin niður á smurða plötu. Penslið með
hrærðu eggi og stráið graslauk yfir. Bakið í 225—250 gr. heltum ofni f ca. 15
mín., þannig að allt verði gegnheitt og brauðið ljósbrúnt að utan.
V._____________________________________________________________________J
gQ VIKAN 17. tbl.