Vikan - 07.11.1968, Blaðsíða 5
bílinn. Það þýðir, að úti á
vegum er ekki hægt að
fara hraðar en svo sem
þrjátíu kílómetra á
klukkutíma, ef bíll kemur
á móti, til að vera nokkurn
veginn viss um að geta
hemlað, ef hestur birtist
alll í einu framundan eða
kyrrstæður bíll. Fyrir nú
utan það, að fjórir af
hverjum fimm ökumönn-
um, sem maður mætir,
lækka ekki ljósin fyrr en
búið er að blikka á þá með
háu ljósunum. Og ef tveir
eða fleiri bílar í röð koma
á móti manni, er hending
sf fleiri lækka ljósin en sá
fyrsti. Og ef bíll ekur á
eftir manni, þarf hann
endilega að keyra með
háu-ljósin, svo glampinn
úr speglinum snarblindar
mann. Segðu mér, Póstur
góður, er ekki eitthvert
ráð til að koma ofurlítilli
umferðarmenningu inn í
hausana á þessum þursum,
sem halda að þeir kunni að
keyra bíl á íslandi?
Og vertu nú blessaður og
sæll. X — 007.
Umferðin virðist ætla að
verða eitt að þessum ei-
lífðarvandamálum, sem
seint ætlar að takast að
leysa. Fyrst eftir að hægri-
aksturinn gekk í gildi, virt-
ist umferðarmenning meiri
en áður, en síðan hefur
smátt og smátt sigið á
ógæfuhliðina aftur, og nú
er allt komið í sama horf
og áður. Það eru engin ráð
til önnur en skynsamar
reglur og stöðugur og já-
kvæður áróður.
HVE MARGIR UNGUNGAR
REYKJA?
Kæri Póstur!
Við erum hér tvö, sem
eigum í hræðilegu rifrildi,
en höfum sökum hinna
frábæru dómhæfileika og
ágætu svara, ákveðið að
biðja yður um að útkljá
málið fyrir okkur.
Svo er mál með vexti, að
sú spurning hefur vaknað
hjá okkur, hve mörg pró-
sent unglinga á landinu
reyki. Er þá átt við ung-
linga á aldrinum 14—20
ára.
Við biðjum um svar við
þessu sem allra fyrst.
Virðingarfyllst,
Tvö ósammála.
Pósturinn þakkar hólið
og þá miklu virðingu, sem
honum er sýnd með því að
vera „yðraður“, eins og
strákurinn sagði. Okkur er
ekki kunnugt um, að nein-
ar tölur séu til um það, hve
nargir unglingar á þess-
nn aldri reyki. Því miður
iefur alltof lítið verið að
því gert að rannsaka ýmis
þjóðfélagsleg vandamál
okkar. Við mundum gizka
á, að 50—60% unglinga á
tilteknum aldri reyktu, en
höfum sem sagt ekkert við
að styðjast nema tilfinn-
inguna.
ÞAÐ VARSVO GAMAN -
EFTIR AÐ ÞÚ FÓRST
Kæra Vika!
Þakka þér fyrir allt
gamalt og gott og þó sér-
staklega fyrir frú Blossom.
Hún er æðisgengin.
Ég er 16 og y2 og fer
sjaldan á böll, því að ég
kann varla að dansa. Þótt
ótrúlegt megi virðast leið-
ist mér oftast á böllum. Ég
fer oft í bíó á laugardags-
kvöldum eða við vinkon-
urnar höngum í bænum og
gerum ekkert. Ég verð
alltaf að vera komin heim
klukkan 12 eða hálf eitt.
Ég er elzt af systkinum
mínum, og það er eins og
foreldrar mínir skilji ekki,
að mig langi að vera leng-
ur úti. Ef mér er boðið í
partí, verð ég að fara heim
klukkan 11 eða hálf tólf,
svo að ég verði ekki
skömmuð. Þá finnst mér
svo leiðinlegt, þegar
krakkar sem ég þekki eru
að segja: O, það var svo
gaman eftir að þú fórst!
Kæri Póstur! Hvað á ég
nú að gera til að koma for-
eldrum mínum í skilning
um, að mig langi til að
skemmta mér. Viltu svara
mér núna. Ég hef skrifað
þrisvar áður, en aldrei
fengið svar.
X-M-P
Allt er þegar þrennt er,
og hérna kemur svarið.
Okkur finnst svolítið
skrítið, að þér skuli leiðast
á böllum og að þú skulir
varla kunna að dansa, ef
það er þá ekki hara ein-
tómt lítillæti. Hins vegar
hefurðu sýnilega mjög
gaman af að vera í partí-
um. Við erum sannfærðir
um, að partiin þín fari vel
og siðsamlega fram, og
þess vegna leggjum við til,
að þú segir foreldrum þín-
um nákvæmlega hvað ger-
ist í þessum svokölluðu
„partíum". Vertu hrein-
skilin við þá og segðu þeim
alltaf, hvert þú ferð hverju
sinni. Þá treysta þau þér
betur.
MAGNÚS KJANAN
Umboðs- & heildverzlun
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
Hoover
þvottavélar
kæliskópar
ryksugur
bónvélar
rafmagnsofnar
straujórn
uppþvottavélar
hórþurrkur
hrærivélar
teppaburstar
eldavélahimnar
8 gerðir
5 gerðir
8 gerðir
2 gerðir
3 gerðir
3 gerðir
Hoover vörurnar fóst í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavlk,
sími 14376.
Einnig víða í verzlunum úti á landi.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta að Hverfisgötu 72, sími 20670.
Einkaumboð:
HeimsliGkht vörumerki
HOOVER DE LUXE
model 625A
Tepparyksuga.
Hristir, burstar og sogar
teppin. Hentar 4—8 her-
bergja íbúðum.
HOOVER-KULAN
model 1867
Kraftmikil sogryksuga, án
hjóla, svífur léttilega yfir
teppunum af eigin krafti.
HOOVER JUNIOR
model 1347
Tepparyksuga.
Hristir, burstar og sogar
teppin. Er létt og þægileg
í meðförum.
HOOVER
VIKAN—AFMÆLTSBLAÐ 5