Vikan


Vikan - 07.11.1968, Síða 7

Vikan - 07.11.1968, Síða 7
svo starfsemin var no.kkuð dreifð. Við stefndum hins vegar að því, að geta unnið blaðið hér að öllu leyti. Ég minnist þess, þegar við vorum að prenta fyrstu kópuna á Vikuna í lit. Litprentun í svo stórum stfl, var heldur óvenjuleg hér þá, svo við notuðum upp allan litfarfa, sem til var, og þurftum að ganga prent- smiðju úr prentsmiðju til að snapa upp þá litarslatta, sem til voru, því allt þurrkaðist upp í einum hvelii. Þegar ég keypti Vikuna, var hún prentuð í 2500 eintaka upplagi, 16 síður. Ég lét prenta 10 þúsund ein- tök f fyrstu umferð, 28 síður. Upp- lagið seldist strax upp. í upphafi höfðum við dálítið aðra takta en seinna varð, vorum assilegir, sensa- sjónkenndir, en það var ógerningur að halda því til lengdar, og sennilega meira þreytandi fyrir les- andann heldur en skemmtilegt, fjöl- breytt og fræðandi fjölskyIdublað, eins og Vikan hefur síðan verið. Eitt varð okkur afar erfitt. Vikan hafði alltaf verið unnin vikunni óð- ur en hún kom út, en nú, þegar blaðið stækkaði, var það á mörkum þess að vera gerlegt. Það var alltaf mjög spennandi, hvort næsta blað kæmist út. Svo þegar Gísli Sigurðs- son tók við ritstjórninni, hófst hann handa um að koma á því skipu- lagi, að vinna blaðið á sex vikum, þannig, að það efni, sem verið er að vinna við og skipuleggja þessa vikuna, kemur ekki út fyrr en eftir sex vikur. Þau blöð, sem komu út fyrstu sex vikurnar, sem Gísli starf- aði við blaðið, voru algerlega utan við hans verkahring, hann vann eingöngu eftir sex vikna kerfinu. Þetta var mjög erfitt í upphafi og kostaði vinnu langt fram á kvöld og nætur, en það borgaði sig þeg- ar til lengdar lét, og ég get ímynd- að mér, að enginn vilji nú breyta þessu fyrirkomulagi. Enda eru mörg erlend blöð, þau sem bezt eru rek- in, unnin þrjá mánuði fram ( tfm- ann og þykir ekki tiltökumál. Það var Ifka erfitt að fást við auglýsingar. Það gefur auga leið, að ekki var hægt að selja aug- lýsingar í svona mikið upplag fyrir ekki neitt, og það var erfitt að vinna auglýsingamarkaðinn upp. En það tókst smám saman. Svo þurfti að skipuleggja dreifingu og sölu betur en áður var, og breyta þessu gamla bóksalafyrirkomulagi. Við náðum góðri sölu í þéttbýli, þannig að við seldum eitt blað á hverja tíu íbúa, sem við töldum að jafngilti því, að helmingur þéttbýl- isbúa læsi blaðið. Aftur á móti var salan mun lakari í sveitunum. Þá stofnuðum við Búnaðarblaðið, sem áskrifendur Vikunnar f sveitum fengu ókeypis. Það bar strax góðan árangur og Búnaðarblaðið varð og er einkar vinsælt. Næsta skref var Urval. Það var langur undirbúningur að útkomu þess, og stóra hugmyndin að sníða það að fyrirmynd Readers Digest, sem er stærsta blað heimsins. Það átti að flytja úrval innlends og er- lends efnis, og einnig áttu þar að vera auglýsingar á standard, sem ekki var til á íslandi áður. Þetta gekk þolanlega til að byrja með, en svo reyndist erfitt að fá auglýs- ingar, þvf það kostaði mikið að út búa þær í svona fallegu formi. En salan var þegar f upphafi mjög góð, fyrsta blaðið var prentað f 12 þús- und eintökum og seldist svo ger- samlega upp, að það var ekki snifsi eftir af þvf. Hitt er vert að gera sér Ijóst, að blöð á fslandi eiga margháttaða erfiðleika við að stríða, sem hvergi eru til annars staðar. Aðaltekjulind- ir flestra blaða erlendis eru auglýs- ingar, og söluverð blaðanna er ekki einu sinni fyrir pappírskostnaði. Auglýsingar f amerískum blöðum kosta til dæmis þrisvar sinnum meira á hverja lesenda sfðu en f Vikunni, svo auglýsingarnar eru óverulegur þáttur í tekjunum hér, en það er mjög óraunverulegt i blaðaútgáfu. Það er ekki mikið meira en að þær borgi kostnaðinn af sjálfum sér. Fyrir nú utan, hve erfitt var að ná þeim. Þetta leiðir af sér, að blaðið sjálft verður að selja miklu dýrara en hliðstæð blöð erlendis. Við verðum líka að horfast f augu við það, að það má flytja blöð inn f landið á fínustu tegund af pappír, og þau eru tollfrjáls. En ef á að prenta þau á fslandi, eru háir toll- ar á pappfrnum og þeim prentvél- um sem nauðsynlegar eru. Þetta vekur mann til umhugsunar um ákvæði stjórnarskrárinnar um prent- frelsi: Hvar byrjar það og hvar end- ar það? Það jaðrar við höft, þegar vissar tegundir af ritfrelsi eru bein- línis skattlagðar, en aðrar sambæri- legar eru frjálsar. Ég hef aldrei skil- ið þá menningu, sem stuðlar að innflutningi á erlendum blöðum og vinnur hreinlega á móti íslenzkri blaðaútgáfu. Annað er mjög athygl- isvert í sambandi við þetta. Viss blöð eiga að borga 9% söluskatt (viðtalið fór fram f desember 1967) en önnur blöð eiga ekki að borga 9% söluskatt. Með þessu er að- stöðu manna og ritfrelsi gífurlega mismunað. Ég álít það stjórnarskrár- brot, að blaðaútgáfu skuli þannig mismunað. Það er líka vert að undir- strika það, að sú prentaðferð, sem hér er almenn notuð, ,,letterpress", þarf góðan pappfr, en „djúptrykk" og offset þola miklu verri pappír. — Þú hefur ekki lokið við að segja frá allri þinni blaðaútgáfu . . . — Meinarðu ævintýrið stóra? Ég álít alltaf, að Dagblaðið Mynd hafi verið stórkostlegur sigur, jafnvel þótt það hafi brugðizt. Það sem ég tel orsökina fyrir, að það fór sem fór, var prentunin. Vegna fjárhags- þrengsla ætlaði ég að leika aftur þann leik, sem ég hafði áður leikið VIKAN—AFMÆLTSBLAÐ 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.