Vikan - 07.11.1968, Síða 20
□
□
J> }
ír.'GA mmi
\ k i> XX/*'
&flie?Í$?xA MwwSwiWt
U» fer4>Wt
:
Meðaí mnmji pessy b
««u!f ... 'V.ttnt’fr-íJV fín vítW fr'. tn\>r*v
íjflffD (Qfl li m wr Y ííf fp fölW7
m m Jl JlEl r lk m
cr^i
„Hér hefur ópólitískt vikublað göngu sína. Því hefur
verið valið nafnið VIKAN. Blaði þessu er ætlað að vera
til fróðleiks og skemmtunar, gagns og gleði góðum lesend-
um. Það er bjartsýnt og gunnreift og býr yfir gnægð
glæstra drauma. Þrátt fyrir hinn þrönga markað og mik-
inn fjölda íslenzkra blaða og tímarita hvarflar hvergi að
því að efast um tilverurétt sinn og baráttuhæfni fyrir
eigin þróun og viðgangi á komandi tímum. Það trúir ham-
ingunni fyrir sér og býst aðeins við því góða, eins og
mannanna börn, þegar þau hefja sina lífsbaráttu, hvert á
sínu sviði.“
A þessum orðum hófst fyrsta ritstjórnargrein VIKIINN-
AR 17. nóvember 1!).‘58. Ilöfundur þessara orða var Sig-
urður Benediktsson, aðalhvatamaður að stofnun VIK-
UNNAR og fyrsti ritstjór hennar. I höndum Sigurðar
fékk VIKAN þann svip, sem hún hefur æ borið síðan:
Að vera gott og vandað heimilisblað, lesendum sínum til
gagns og ánægju.
Þessi þrjátíu ár hafa verið mikil umbrotaár á Islandi,
og á ýmsu hefur gengið. En VTIvAN hefur alltaf átt góða
og trygga lesendur og borið gæfu til að sigla fram hjá
stærstu skerjum og verða lang stærsta og útbreiddasta
vikublað landsins.
A þessum áratugum hafa allflestir beztu rithöfunda
landsins átt verk í VIKUNNI, og margur hefur þar fyrst
stigið fram á ritvöllinn. VIKAN hefur á þessum tíma flutt
ótölulegan fjölda greina og viðtala, auk vandaðs, þýdds
efnis og skáldsagna.
4rið 1Í)58 varð VIKAN eign Hilmis hf., sem síðan hefur
verið útgefandi blaðsins. Um leið stækkaði blaðið allveru-
lega, og fyrst íslenzkra vikublaða fékk VEKAN fjögurra
lita kápuprentun. VTKAN varð einnig fyrst íslenzkra blaða
til ]>ess að ráða sérstakan teiknara til að sjá um allt útlit
blaðsins, en það var stórmerkur áfangi í sögu blaðaútgáfu
á fslandi. Síðan hefur útlit blaðsins verið með þeim ágæt-
um, að vakið hefur athygli út fyrir landsteinana. Þó er
pappírinn í blaðinu aðeins bezta gerð af dagblaðapappír,
því sú gerð af pappír, sem við kysum að hafa, og sjá má
í efnislega sambærilegum vikublöðum innfluttum, er í svo
háum tollaflokki, að ekki er mögulegt að nota hann hér.
Það er draumur okkar, nú á þrjátíu ára afmælinu, að þetta
breytist svo í framtíðinni að við getum prentað VIKUNA
á þann pappír, sem henni hæfir bezt.
VIKAN þakkar lesendum sínum í 30 ár samfylgdina og
vonast til að mega njóta þeirra áfram. Ilún er enn „bjart-
sýn og gunnreif, og býr yfir gnægð glæstra drauma.“ Sá
baráttuvilji og vilji til að gefa út gott og vandað blað, sem
einkenndi Sigurð Benediktsson og aðstoðarmenn hans fyr-
ir 30 árum, ríkir enn á VIKUNNT — hún „trúir hamingj-
unni fyrir sér og býst aðeins við því góða.“
II
20 VIKAN—AFMÆLISBLAÐ