Vikan - 07.11.1968, Qupperneq 29
EFTIR
HUNTER DAVIES
8 . HLUTI
John var í Liverpool, þegar sonur hans fæddist. Hann
var skírður Julian, í höfuðið á Júlíu, móður Johns.
Þegar hann heimsótti Cyntiu á spítalann, varð hann
að dulbúa sig til þess að hann þekktist ekki. Þetta
var í apríl 1963.
„Samt þekktist ég,“ segir John. „Eg heyrði stelpu
hrópa upp yfir sig: „Þarna er einn af þeim.“ Og þá tók
ég til fótanna.“
Eftir enn eitt hljómleikaferðalag um England, kom
fjórða plata Bítlanna út, „She Loves You“. Sú plata
varð upphafið að hinu svokallaða Bítlaæði. Fjórmenn-
ingarnir frá Liverpool voru orðnir frægir um allt Stóra-
Bretland. Bítlaæðið gagntók þjóðina og herjaði næstu
þrjú árin og breiddist smátt og smátt út um allan
heim.
„Yeh, yeh“, görguðu óðir táningar, jafnt af háum
stigum sem lágum .ITávaðinn var svo yfirgengilegur, að
táningarnir heyrðu ekki sín eigin öskur. Þeir misstu alla
stjórn á sér. Þeir froðufelldu, þeir brustu í ákafan grát,
ef þeir félln þá ekki alveg í yi'irlið ....
Um allan heim urðu menn vitni að Bítlaæðinu: Fólk-
ið missti fullkomlega taumhald á tilfinningum sínum.
Það er í rauninni ekki hægt að ýkja, þegar sagt er frá
þessu furðulega fyrirbæri. Enginn gat látið sér detta
í hug, að þetta gæti gerzt í veröldinni, og það verður
að teljast afar ólíklegt, að þessi saga endurtaki sig.
Enda þótt mest bæri á táningunum, greip æðið um
sig meðal fólks á öllum aldri og úr öllum stéttum þjóð-
félagsins, hvort, sem það var menntað eða ómenntað.
Osköpunum tók ekki að iinna fyrr en eftir rúm þrjú
ár. Þá höfðu menn loksins fengið nóg af hamagang-
inum; voru orðnir dauðþreyttir og trúðu því varla, að
þetta hefði gerzt. Nú hljómar frásögn af Bítlaæðinu
eins og hver önnur lygasaga.
Æðið hófst í Bretlandi í októbermánuði 1963. Brian
Epstein sagði, að það hefði komið sér algjörlega á óvart,.
Hann hal'ði að vísu búizt við, að Bítlarnir næðu langt
livað vinsældir snerti, en ekki á þann hátt sem raun
ber vitni.
Platan „She Loves You“ var gefin út í lok ágúst
og komst þegar í stað í efsta sæti á vinsældalistanum.
1 júní, áður en plötunni hafði verið gefið nafn, höfðu
þúsundir aðdáenda Bítlanna pantað hana. Daginn áður
en platan var send á markaðinn, voru hálf milljón ein-
taka seld. f september voru vinsældir Bítlanna orðnar
meiri en áður hafði þekkzt í Bretlandi. „Please Please
Me“ var í efsta sæti á listanum yfir tólflagaplötur.
„Twist and Shout“ var í efsta sæti á listanum yfir
fjögurralagaplötur. Og „She Loves You“ var í efsta
sæti á listanum yfir tveggjalagaplötur. Þetta hafði aldrei
gerzt áður.
En það var ekki fyrr en 13. október, sem Bítlarnir
urðu forsíðuefni allra dagblaða landsins. Kvöldið áður
lélcu þeir á skemmtun í Palladium í London. Sjónvarpað
VIKAN—AFMÆLISBLAÐ 29