Vikan - 28.08.1969, Qupperneq 5
VERÐSTÖÐVUN Á
EIGINKONUR
Ástralska stjórnin hefur
ákveðið að setja á verðstöðvun
á verðlag brúða, í austurhluta
Nýju-Gíneu, en eyjan er sem
kunnugt er, undir ástralskri
stjórn. Hefur verið gripið til
þessarar ráðstöfunar til að koma
í veg fyrir að foreldrar sveina
staðarins verði gjaldþrota er
piltunum er komið í hjónaband.
Nú má ekki borga meira fyrir
eiginkonu en 2000 ástralska doll-
ara, eða 200.000 íslenzkar krón-
ur. Heldur mun sjaldgæft, að
summan sé borguð út í hönd í
peningum, en afgangurinn fylg-
ir venjulega í kúm, hundum,
grísum og hundatönnum. Þó eru
200.000 krónur töluverð upphæð
fyrir venjulega fjölskyldu, svo
verðstöðvunin var alger nauð-
syn, þar sem verðlagið á þessum
undarlega varningi fór stöðugt
stígandi. Metsala var kontór-
stúlka, sem fór fyrir 280.500
krónur.
• korn
• Vor: Þegar tvær ungar
manneskjur setjast á nýmálaðan
bekk í almenningsgarði, en bara
önnur fær málningu á fötin sín.
• Áhrif: Það sem menn álíta
að þeir hafi, áður en þeir þurfa
sjálfir á því að halda.
• Þorp: Staður, þar sem prest-
urinn veit meira en skólastjór-
inn.
• Kurteisi: Algengasta aðferð
hræsnarans.
• Brennuvargur: Maður, sem
álítur, að fólk eigi að fá eitt-
hvað fyrir brunatrygginguna
sína.
• Riddaramennska: Hegðun
eiginmanns gagnvart konum
annarra manna.
/-----------------------------
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Einrœði er í landi þar sem
gata er skírð eftir manni
einn daginn, en svo er
hann hengdur í henni dag-
inn ejtir.
V_________’
• Sjálfsöryggi: Listin að vita
um eigin galla og ófullkomleika,
en steinþegja yfir þeim og láta
ekki nokkurn mann verða vara
við þá.
• Þolinmæði: Örvænting í dul-
arklæðum dyggðar.
• Zebra: Hestur, sem kemst
ekki úr náttfötunum.
• Svikari: Maður í áhrifastöðu,
sem ekki getur neitað neinum
um neitt.
# vísur vikunnar
Á hverjum tíma má víst fleira og fleira
finna að alls konar röskun á högum vorum
og unglingar drekka yfirleitt heldur meira
en eldra fólkið gerði í þeirra sporum.
Og mikið orð er gert á sukki og sóun
sjóðum sem tæmast, dýru víni á skálum,
en slíkt er talin algeng og eðlileg þróun
á öllum svonefndum þjóðfélagsvandamálum.
TÖKU VÖLDIN í SÍNAR HENDUR
Hinn 35 ára gamli Djemal Ali
var algjörlega útskúfaður í
heimabæ sínum í Tyrklandi, og
hafði hann gert sér flest til
óhæfu: Auðnuleysi, tugthússetu,
flæking og hitt og þetta annað,
sem kom þorpsbúum til að forð-
ast að hafa nokkurt samband við
hann.
En einn 13 ára gamall dreng-
ur vissi ekki hver maðurinn var,
né hvað hann var, og því lét
hann ginnast af sælgætisboðum
Djemals og fór með honum á af-
vikinn stað. Þar kom sá skítugi
þrjótur fram vilja sínum við
varnarlausan drenginn; á þann
hátt sem maður hefði haldið að
væri aðeins til sem dæmi í gróf-
um kennslubókum í sálarfræði.
Um leið og drengurinn slapp
frá Djemal fór hann heim til
foreldra sinna, og sagði þeim, al-
gjörlega niðurbrotinn, frá því
sem skeð hafði. Faðir hans fór
beint í lögregluna.
Og það liðu aðeins örfáir tím-
ar, þar til Djemal Ali hafði náðst,
og komið var með hann til ráð-
hússins í Kiitahya. Stór hópur
fólks fylgist með.
Myndirnar skýra það sem þar
gerðist: Lögreglan sló hring um
ráðhúsið, en fólkið brauzt í gegn
og hertók ráðhúsið. Nokkrir fíl-
sterkir menn köstuðu Djemal
Ali út um glugga. Síðan var
hann barinn til bana með lurk-
um. Sjúkraliðar neituðu að
sækja lík hans og presturinn af-
tók með öllu að lesa bæn yfir
honum.
35. tbi. VIKAN 5