Vikan


Vikan - 09.04.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 09.04.1970, Blaðsíða 34
HOOVER r ' Hoover þvottavélar 8 gerðir Hoover kæliskápar 5 gerðir Hoover ryksugur 8 gerðir Hoover bónvélar 2 gerðir Hoover rafmagnsofnar 3 gerðir Hoover straujárn 3 gerðir Hoover uppþvottavélar Hoover hárþurrkur Hoover hrærivélar Hoover teppaburstar Hoover eldavélahimnar Hoover vörurnar fást í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavík. Simi 14376. Einnig víða í verzlunum úti á landi. Varahluta- og viðgerðarþjónusta að Laugavegi 89, sími 20670. Einkaumboð: MAQNÚS Umboðs- og heildverzlun KJARAN SIJO RNUSPÁ^ 4» Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vertu gætlnn, segðu ekki allt sem þig langar til. Þú leggur riiður tómstundavinnu þína i bili og tekur upp nýtt sport. Hagaðu því svo til að þú getir hvílt þig sem mest á kvöldin. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Haltu fast við fyrri skoðanir þínar, en varastu allan ofsa. Verur af gagnstæða kyninu munu leggja fyrir Þ>g gildrur. Einhver vandamál munu gera vart við sig heimafyrir, en þau leysast bráðlega. ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Úrslit leiks sem þú taldir tapaöan, snúast þér í vil. Viöhafðu gát hvað fjármuni þína snertir. Óhapp virðist vofa yfir, en ef þú ert vel á verði ætturðu að sleppa. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Yfirmenn þínir eru mjög kröfuharðir og þú verður að leggja þig allan fram. Beittu fremur lagni og tillitssemi í viðskiptum þínum við aðra, það gefur bezta raun. Þú skemmtir þér vel um helgina. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vertu ekki of gagnrýninn. Vinir þinir eru sérstak- lega viðkvæmir fyrir slíku núna og taka það illa upp. Þú færð verðugt hrós frá samstarfsmönnum þínum. Þú verður fyrir dálitlum töfum. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Leggðu áherzlu á vinnu þína, reyndu að koma sem mestu frá þér af óleystum verkefnum. Vikan er betur fallin til líkamlegra átaka en andlegra. Þú færð langþráða heimsókn gamalXa kunningja. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Vikan er bezt til að vinna að verkefnum sem búa þér og þínum heill. Að líkindum gerirðu mjög hag- stæða samninga. Eldri maður i fjölskyidunni reynist þér ráðhollur. Þú ferð í stutta ferð. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þér Xíður mjög vel, sérstaklega finnst þér þú ein- hvers virði er leitað verður ráða hjá þér. Ef þú vilt beita þér, þá uppskerðu ríkulega. Segðu ekkert sem þú vilt ekki að breiðist út. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Vikan er heppileg til að fara fram á breytingar við yfirmenn þína. Reyndu að komast hjá samnings- gerðum og hverskonar verzlun um sinn. Það fer margt öðruvísi en ætlað er, en flest þó á betri veg. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20 janúar): Þú færð fréttir sem vekja með þér nýjar vonir og gera þig bjartsýnni á framvindu hugðarefna þinna. Allar aðstæður virðast hagstæðar og þú ættir að nota þér það eftir megni. AM Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Vikan verður mjög þægileg, þú hefur ekki eins mik- ið að gera og undanfarið og getur því slakað á. Segðu kunningjum þínum frá fyrirætlunum þínum, þeir munu hafa ýmislegt til málanna að leggja. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Skipuleggðu starf þitt þannig að þú þurfir ekki að endurtaka hvað eftir annað sömu atriðin. Þú ert venju fremur vinsæll af fjölskyldu þinni, sérstak- lega yngri meðlimum hennar. 34 VIKAN 15 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.