Vikan - 09.04.1970, Blaðsíða 4
Á laugardaginn kemur, þann
11. apríl, leika Chelsea — fé-
lagið sem hefur á að. skipa ein-
hverju efnilegasta liði Englands
— og Leeds United — félagið
sem er talið eiga bezta félags-
lið í heiminum í dag — úrslita-
leik FA-bikarkeppninnar á
Wembley. Leikurinn fer fram
nokkru fyrr 1 ár en undanfarin
ár vegna undirbúnings enska
landsliðsins fyrir heimsmeistara-
keppnina í Mexico í sumar. Þessi
leikur er hápunktur á hinu
skemmtilega keppnistímabili
sem nú er að ljúka. Viðstaddir
munu verða eitt hundrað þúsund
áhorfendur og milljónir manna
um allan heim munu hlusta á
lýsingu í útvarpi eða sjá hann í
sjónvarpi, en leikurinn mun
væntanlega verða sýndur í ís-
Tottenham Hotspurn 1—2. Árið
1955 vann félagið fyrstudeildina
í fyrsta og eina skipti, en féll
niður í aðra deild um vorið 1962,
aðeins fjórum mánuðum eftir að
Tommy Docherty hafði verið
ráðinn framkvæmdastjóri. Næsta
keppnistímabil breytti Docherty
liðinu mikið og yngri menn voru
settir inn í stað þeirra eldri og
eftir mikla baráttu komst félag-
ið aftur í fyrstudeild eftir að-
eins árs veru í annarri. í dag
leika aðeins þrír af þeim sem
spiluðu með þetta eftirminnilega
keppnistímabil. Það eru þeir
Bonetti, McCreadie og Harris.
Aðstoðarframkvæmdastjóri fé-
lagsins um þær mundir var Dave
Sexton, núverandi framkvæmda-
stjóri. Ferðaðist hann með Doch-
erty meðal annars til Mílanó,
Lið Chelsea eins og það er skipað nú. Efri röð, talið frá vinstri: Harris, Ware,
Smethurst, Maskell, Cruickshank, Dempsey, Bonetti, Hughes, Hutchinson, Cocks,
Vaughan, Hinton. Birchenall, McCreadie, Osgood. Neðri röð, talið frá vinstri:
Boyle, Hollins, Cooke, Houseman, Baldwin, Tambling, Hudson, Fascione, Houston.
kostuðu ærið fé, þeirra á meðal
George Graham, Tony Hateley,
Alex Stepney og Charley Cooke,
en hann var sá eini sem festi
rætur hjá félaginu.
Samt vakti engin breyting á
liðinu jafn mikla athygli og sú
þegar Docherty tók enska lands-
liðsmanninn Barry Bridges úr
liðinu og setti inn í hans stað
óþekktan ungling, Peter Osgood
að nafni. En aðeins þrem dögum
áður hafði Bridges leikið með
enska landsliðinu gegn Austur-
ríki.
Osgood varð strax stjarna í
liðinu og spáði Docherty því að
hann myndi leika með enska
landsliðinu, sem leika átti í
heimsmeistarakeppninni 1966.
Þrátt fyrir góða frammistöðu um
veturinn valdi Alf Ramsey ein-
valdur enska landsliðsins, hann
ekki, og hefur það eflaust ráðið
miklu hversu litla keppnis-
reynslu Osgood hafði, en hann
var aðeins nítján ára gamall.
Um haustið varð Osgood svo fyr-
ir enn meira áfalli, þegar hann
fótbrotnaði í leik á móti Black-
pool og er það fyrst í vetur að
hann er búinn að ná sér eftir það
óhapp.
í bikarkeppninni í ár hefur
Osgood gert mark í öllum um-
ferðunum til þessa og takist hon-
um að skora í úrslitaleiknum
gegn Leeds verður hann fyrsti
maðurinn sem skorar í öllum
umferðum keppninnar. Þá rætt-
ist draumur hans nú fyrir
skömmu, þegar Alf Ramsey valdi
Jackie Charlton og Gary Sprake bera
fyrirliSa sinn, Billy Bremner, af leik-
velli eftir sigur í úrslitaleik Evrópu-
keppni borgarllða.
f UMSJÓN
ÓLAFS
BRYNJÖLFSSONAR
lenzka sjónvarpiinu laugardag-
inn 18. apríl.
Chelsea og Leeds hafa tvisvar
sinnum á undanförnum árum
keppt saman í bikarkeppninni.
í fjórðu umferð árið 1966 og í
undanúrslitum árið 1967. Vann
Chelsea báða leikina með einu
marki gegn engu. En í deildar-
keppninni eru tölurnar hagstæð-
ari Leeds, hefur félagið unnið
fjóra af sex síðustu leikjunum
en tveir enduðu með jafntefli.
Mesti markamunur í þessum
leikjum var 7—0 fyrir Leeds.
CHELSEA
Chelsea hefur tvisvar sinnum
áður leikið úrslitaleik bikar-
keppninnar, en tapað í bæði
skiptin. Árið 1915 fyrir Sheffield
United 0—3 og árið 1967 fyrir
Budapest og Madrid, til að kynna
sér þjálfunar- og leikaðferðir
sem gætu komið að góðum not-
um hjá Chelsea. Höfðu þeir mjög
gott af þessum ferðalögum og
kom árangurinn fljótlega í Ijós.
Var félagið alltaf meðal efstu
liðanna í fyrstudeild, þó ekki
tækist þeim að vinna. Vegna
góðrar frammistöðu í deildinni
vann félagið sér rétt til þátttöku
í Evrópukeppni borgarliða og sló
þar út lið eins og Roma, og AC
Milan. Komst félagið í undan-
úrslit þeirrar keppni árið 1966.
Þá eignaðist félagið sjö landsliðs-
menn (Bonetti, Shellito, Mc-
Creadie, Hollins, Venables,
Bridges og Tambling).
En Docherty var ekki ánægður
með árangurinn. Keypti hann
nokkra nýja leikmenn, sem allir
4 VIKAN 15- tbl-