Vikan


Vikan - 15.03.1979, Blaðsíða 6

Vikan - 15.03.1979, Blaðsíða 6
Finnst ykkur Maistarinn fró Nazarat eitthvað Hkur Gvendi Jaka? Guðmundur sat fyrir þegar Einar Jónsson gerði þetta likneski og segir Guðmundur að hendumar og nefið sóu alveg eins og ó sór. Það var tvisvar hrækt framan í konuna mína úti í mjólkurbúð. vinna sem fyrst. Allir eiga að vinna og ef á að láta börn leika sér er það alltaf þræl- skipulagt. T.d. er þetta alveg stórmerkilegt með þessa unglingavinnu. Þegar börnin koma þrúguð úr skólanum á vorin eru þau sett í unglingavinnuna. Og hvað skeður? Jú, þá koma sömu hrútleiðinlegu kennar- arnir til að standa yfir þeim og börnin gubba af leiðindum þegar þau koma heim á kvöldin. Þetta er einhvers konar æsku- óhamingja sem ríkir nú til dags. — Nei, skólinn var ekki svo djöfullegur þó ég rækist illa. En það var lítið hægt að hemja mig í slíkri stofnun þannig að skóla- gangan varð heldur skrykkjótt. Á stríðsárunum þegar ég var 14 ára byrjaði maður að skrökva því að maður væri 16 til þess að fá bretavinnu. Og þá átti maður alltaf nægan pening, svo mikinn að maður gat lagt inn á banka. Fram að 17 ára aldri átti ég alltaf pening í banka. Síðan hef ég ekki átt eyri. — Nú byrjaðirðu snemma að grúska í verkalýðsmálum, hvað kom til? — Maður kynntist atvinnuleysi og fátækt á árunum fyrir stríð og margir félagar manns liðu hreinlega skort á þessum tíma. Húsnæði var víðast hvar óskaplega lélegt og voru íbúðirnar sem reistar voru við Hringbrautina og við bjuggum í hreinasti lúxus. T.d. hafði fólk takmarkaða trú á þessum nýju rafmagns- eldavélum og margir höfðu gasdunka í eldhúsunum til vara. Það var sem sagt þetta umhverfi sem maður ólst upp í, allt sem maður sá og kynntist, sem skapaði óskaplegt hatur á fátækt og atvinnuleysi. Ég var ekki meira en 10 eða 11 ára þegar þetta hatur var farið að brenna í brjósti mér. Af eðlilegum ástæðum fór maður að þrá meira réttlæti — meiri launajöfnun og fyrir því var maður tilbúinn að berjast. Ég varð verkalýðssinni vegna eigin reynslu og mín pólitík mótaðist því ekki af miklum stúdíum eins og gerist hjá ungum rót- tæklingum í dag. Þeir lesa kannski ein- hverja félagsfræðilega bæklinga og jafnvel Marx, og verða róttækir á því. Orðið kommúnisti heyrðist litið í hverfinu okkar en verkalýðssinni — það var orðið. Maður dróst inn í verkalýðsbaráttuna vegna þessarar lífsskoðunar sem byggðist á kröfunni um meira réttlæti og launajöfnuð. Ég var trúnaðarmaður á hinum ýmsu vinnustöðum og þetta þref fór svo að taka meiri og meiri tíma þangað til ég gerðist starfsmaður Dagsbrúnar. Síðan hefur þetta þróast þrep af þrepi. Hvernig hefjast menn til valda innan verkalýðshreyfingarinnar? Barnaverndarnefndin vildi helst að ég væri í sveit á sumrin. — Það er nú ekki rétt að segja að menn hefjist til valda, heldur er þetta fyrst og fremst spurning um vinnu — alveg gífur- lega vinnu. Þetta eru miskunnarlausir fundir, óskaplegt streð og um sextugt eru þeir menn sem í þessu standa annaðhvort dauðir eða þá alvarlega heilsubilaðir. En þetta er að breytast núna, þökk sé sjón- varpinu. Núna er varla hægt að draga mann á kvöldfund nema á fimmtudögum. Svo eru þessar villtu samningatarnir þegar semja þarf um kaup og kjör. Þá þarf maður að sitja sólarhring eftir sólarhing, oft í marga mánuði á samningafundum. Fólk heldur náttúrlega að við verkalýðs- foringjarnir séum á kaupi allan tímann en við fáum bara okkar föstu laun. Ég réðst til 6 Vikan xx.tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.