Vikan - 15.03.1979, Side 35
Rod Stewart talar mjög opinskátt um litríka
fortíð sína. „Ég hefþekkt hundruð kvenna, ”
játar hann. En engin hefur fangað hann til lang-
frama. Þar til ná.
Ætli
guðirnir
hafi reiðst?
Rod
Stewart
á biðilsbuxunum
sf"*-
Grateful Dead er merkileg
hljómsveit. í meira en 10 ár
hefur hún verið á toppnum, og
það alltaf án þess að vera með
neitt topplag á vinsældalistum.
Að eigin sögn fengu þeir sína
snjöllustu hugmynd fyrr og
siðar, þegar þeim hugkvæmdist
að hljóðrita hljómplötu undir
beru lofti fyrir framan egypsku
pýramídana. Einu áheyrendurn-
ir voru nokkrir tugir Egypta,
sem líklega hafa átt að blístra
og klappa á arabiska vísu, og svo
náttúrlega Faraóarnir, sem hvíla
í pýramídunum. Þeir félagarnir i
Grateful Dead eyddu öllu sinu
sparifé, sem þó var ærið, i gerð
þessarar plötu, sem ber nafnið
„Grateful Dead Live In Egypt”.
Við skulum vona, að
— Ég hef enga tölu yfir
ástmeyjar mínar, sagði Rod
Stewart nýlega. — Sennilega
svona nokkur hundruð. Ýkj-
ur? Varla. Ekki hjá manni
sem er orðinn 34 ára gamall og
þekktur fyrir að skipta jafn oft
um ástmeyjar og nærbuxur.
— Ég vil helst af öllu ljóskur,
sagði Rod. Það er heldur ekkert
leyndarmál, því að nýjasta
platan hans heitir einmitt:
Ljóskur skemmta sér betur.
(Blondies have More Fun). Og
síðustu tvær vinkonurnar, Britt
Ekland og Bebe Buell, eru líka
óneitanlega ljóshærðar. Hversu
ekta sem það nú er. Sjálfur er
hann líka með litað hár.
— Ég veit, að Rod er
dökkhærður, en hann var ljós-
hærður, þegar ég kynntist
honum, segir hans fasta fylgi-
kona um þessar mundir, Alana
Hamilton. — Svo að í mínum
augum er hann ljóshærður.
Alana lætur sér lika fátt um
Faraóarnir snúi sér ekki við í
pýramídunum.
finnast litrika fortið söngvar-
ans.
En hún virðist ekki jafn frjáls-
lynd á öllum sviðum, því hún
neitar að flytja til hans fyrr en
þau eru gift.
— Alana er fráskilin, segir
Rod skilningsrikur. — Svo hún
veit, að ástin getur verið duttl-
,ungafull og oft lítið á hana að
treysta. Þess vegna vill hún lifa
sínu sjálfstæða lifi, þar til allt er
komið á hreint.
Og hvers vegna bíða þau með
að gifta sig?
— Við ætluðum eiginlega
ekki að gera það, nema við
ættum von á barni. En nú
höfum við skipt um skoðun.
Strax og um hægist, munum við
skella okkur i það heilaga.
Enda verður það hjónaband
hvort sem er ekki barnlaust, þvi
að Alana á 4 ára son með fyrri
eiginmanni, leikaranum George
Hamilton.
Bandaríkjamenn eru sérlega
lagnir við að teygja lopann, og
er þá sama hvort þeir standa í
styrjöldum eða tala um fólk.
Þótt nú sé liðið 1 1/2 ár frá láti
Elvis Presley, þá kemst hann
samt af og til á forsíður banda-
rískra blaða. Nú fyrir skömmu
skýrði stórblaðið Washington
Post frá því, að árið 1964 hefði
bandaríska leyniþjónustan gert
Presley tilboð um að gerast
njósnari. Átti hann að njósna
um bresku Bítlana, sem um þær
mundir voru að leggja Banda-
ríkin að fótum sér. Stjórnendum
leyniþjónustunnar leist ekki
meira en svo á þessa ungu
menn, sem ekki skáru hár sitt og
voru i allri framkomu öðruvísi
en C.I.A. forstjórarnir áttu að
venjast. Höfðu þeir sterkar
grunsemdir um, að Bítlarnir
væru kommúnískt samsæri, sem
stefnt væri gegn æsku Vesíur-
landa. Ekki fylgir sögunni, hvort
Elvis tók þessu atvinnutilboði.
Svona lett Elvto Preaiey út árið 1964.
Enn um Elvis
ll.tbl. Vikan 35