Vikan


Vikan - 15.03.1979, Qupperneq 48

Vikan - 15.03.1979, Qupperneq 48
GLA UMGOSINN Það var enginn vandi að heyra þelta eina atkvæði, því það var hreinlega hrópað. „Guð minn góður!" sagði sir Richard og mældi Pen hratt út. „Varlega nú, krakki. Ég hugsa að ég þekki þennan ferðalang. Hvað i .. . hefur þú gert við bindið? Komdu hingað!” Hann hafði rétt tima til þess að strjúka úr krumpuðu bindi ungfrú Creed, þegar sama röddin hrópaði: „Hvar? Látið ekki eins og asni. maður! Ég þekki hann vel!” og hratt fótatak heyrðist frá forstofunni. Dyrunum var þeytt upp; herramaður- inn í frakkanum með fimmtán slánum strunsaði inn, kont auga á sir Richard, fleygði frá sér hönskum sínum og hatti oggekk áfram hrópandi: „Ricky! Ricky, hundurinn þinn, hvað ert þú að gera hér?” Pen lét fara lítið fyrir sér við glugg- ann, horfði á hávaxinn ungan herra- manninn þrýsta hönd sir Richards og furðaði sig á því hvar hún hefði séð hann áður. Hann virtist henni eilítið kunnuglegur og hljómurinn í skeytingar- lausri rödd hans hreyfði við ntinni henn- ar. „Hvert þó i hoppandi!" sagði hann. „Ef þetta slær ekki allt út. Ég veit ekki hvern fjandann þú ert að gera hér, en þú ert einmitt maðurinn sem ég vildi hitta. Ricky, stendur boð þi.tt ennþá? Fjárinn, ef svo er þá er ég farinn á skagann með fyrsta skipi. Það er allur andskotinn að borga núna i fjölskyldunni.” „Ég veit það,” sagði sir Richard. „Ég geri ráð fyrir þvi að þú hafir heyrt frétt- irnaraf Beverly?” „Guð minn góður, segðu ekki að þú hafir frétt það?” „Ég fann hann,” sagði sir Richard. Háttvirtur Cedric sló á höfuð sér. „Fannst hann? Hvað, þú varst ekki að leita að honum, Ricky, var það? Hvað vita margir um það? Hvar er fjárans menið?” „Ef þjónar laganna hafa það ekki, þá býst ég við að það sé i einunt af vösunt kafteins Trimbles. Einu sinni var það i mínurn höndum, en ég lét það Beverly i hendur, til þess að hann — hér — skilaði þvi aftur til föður þins. Þegar hann var myrtur. . .” Cedric hörfaði og kjálkar hans sigu. „Hvað þá? Myrtur? Ricky, ekki þó Bev?” „Ah!" sagði sir Richard, „svo þú vissir það ekki?" „Guð minn góður!” sagði Cedric. Leitandi augu hans stönsuðu við borð flöskuna og glösin sem þjónninn hafði skilið eftir á borðinu. Hann hellti sér i glas og tæmdi það. „Þetta var betra. Svo Bev hefur verið myrtur? Nú jæja, ég kom hálfpartinn með þvi hugarfari að myrða hann sjálfur. Hver gerði það?” „Trimble, býst ég við,” svaraði sir Richard. Cedric hætti við að fylla glas sitt aftur og leit snöggt upp. „Vegna hálsmens- ins?” „Liklega.” Pen til undrunar gaf Cedric frá sér hláturgusu. „Guð minn góður, þessi var góður,” stundi hann. „Ó Ricky, þetta er spaug sjálfs djöfulsins.” Sir Richard tók uppeinglyrniðogvirti ungan vin sinn fyrir sér með undrun. „Auðvitað bjóst ég ekki við að fréttin myndi valda þér sorg, en ég játa að ég bjóstekki við....” „Fölsun, kæri vinur. Ekkert nema fölsun,” sagði Cedric og hallaði sér upp við stólbak. Einglyrnið féll. „Hamingjan sanna!” sagði sir Richard. „Já, mér hefði átt að detta það í hug. Saar?” „Fyrir mörgum árum," sagði Cedric og þurrkaði sér um augun með marglita vasaklútnum. „Komst ekki upp fyrr en ég — ég, taktu eftir þvi Ricky — sendi lögregluna af stað! Fannst pabbi vera fjári skeytingarlaus vegna málsins. Þó datt mér þetta aldrei i hug. Mamma sendi sendiboða eftir sendiboða til Brook strætis og stelpumar nauðuðu i ntér svo ég fór á stöðina. Reyndar er höfuð mitt aldrei upp á sitt besta á morgnana. Ég var ekki fyrr búinn að siga blóðhundun- um á menið en ég fór að hugsa um þetta allt saman. Ég sagði þér að Bev væri vondur maður, Ricky. Ég skal veðja við þig að hann stal meninu.” Sir Richard kinkaði kolli. „Alveg rétt.” „Andskotinn, ég kalla þetta nú að ganga of langt. Mamma átti leynihólf fyrir það i vagninum sínum. Pabbi vissi það. Ég vissi það. Bev vissi það. Ég held að stelpurnar hafi vitað það. En enginn annar, taktu eftir því. Hugsaði málið í botn hjá White’s. Það er ekkert eins og koníak til þess að hressa kollinn. Þá mundi ég að Bev hafði farið til Bath í síð- ustu viku. Aldrei grunaði mig hvers- vegna. Datt í hug að athuga þetta sjálf- ur. Ég var rétt búinn að ákveða að fara smáferð til Bath. þegar faðir minn gekk inn svo ansi reiður á svip. Hann hafði frétt það hjá Melissu að ég hafði farið á stöðina. Hann réðst á ntig og vildi vita hvern fjárann ég meinti með því að blanda lögreglunni í málið. Nú, Ricky vinur minn, myndir þú segja að ég væri græningi? Ég segi það satt, mig grunaði aldrei hvað var að gerast. Ég hélt alltaf að faðir minn vildi geyma demantana. Hann seldi þá fyrir þremur árum, eitt sinn þegar hann hafði verið óheppinn. Framhald í næsta blaði. Labbakútarnír EFTIR Bud Blake 48 Vikan IX. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.