Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 44
Stjörnuspá fyrir vikuna 17. - 23. desember
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Vandamál sem þú verður
að takast á við þegar í stað reyna á
þolinmæðina. Makinn eða náinn
samstarfsmaður eru að pressa á
þig að gera eitthvað sem þér er
þvert um geð, en þú átt erfitt með
að neita. Þetta á eftir að lagast en
þú þarft að sýna þolinmæði.
Nautið
21. apríl - 21. ma(
Þú ert alveg að ná þvf tak-
marki sem þú settir þér. Nú er
komið að tímamótum og nú
færðu tækifæri til að sýna hvað (
þér býr. Vertu bara alveg viss um
hvað það er sem þú vilt.
Tvíburarnir
22. mai - 21. júnl
Þú mátt eiga von á þvf að
mikið verði að gera í skemmtana-
lífinu á næstunni. Fólk er einkar
velviljað í þinn garð þessa dagana
og veitir þér mikinn stuðning og
hvatningu. Nýttu þér vel þetta
góða gengi.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Þú hefur búið við svo mikla
pressu undanfarið að þér hefur
fundist hún tilheyra lífinu, nú
máttu eiga von á að losna undan
farginu og þú getur farið að horfa
fram á bjartari tíma. Hamingja og
jafnvægi eru á næstu grösum.
Ljónið
23. júl( - 23. ágúst
Fólk og atvik munu pressa
á þig að þú standir þig betur, sér-
staklega er það ein manneskja sem
leggur hart að þér. Helgin á eftir
að verða rómantísk og ánægjuleg.
Meyjan
24. ágúst - 22. sept.
Notfærðu þér persónutöfr-
ana, ef þú kemst í klípu og þá ætti
málið að leysast farsællega. Nú er
rétti tíminn til að bera fram óskir
þínar við makann, en gæta samt
hófs því fjárhagurinn gæti verið
betri.
Vogin
23. sept. - 24. okt.
Ýmis smáatvik hafa komið
þér úr jafnvægi undanfarið og ekki
ólíklegt að þér finnist nákominn
persóna hafa verið óréttlát í þinn
garð. Þú ættir að láta skoðun þlna
I Ijós sem allra fyrst og hreinsa
andrúmsloftið.
Sporðdrekinn
25. okt. - 23. nóv.
Þetta er rétti tíminn til að
gera áætlanir varðandi framtlðina.
Leggðu áherslu á rómantíkina og
vertu eins mikið með þínum nán-
ustu og tlminn leyfir. Fjárhagurinn
er nokkuð góður þessa stundina,
en farðu samt varlega I sakirnar.
Bogamaðurinn
23. nóv. - 21. des.
Þú lendir I slæmu rifrildi.
Samningsatriði hafa verið brotin
og þér sárnar verulega. Þetta verð-
ur þó til þess að breytingar verða
sem eru þér að skapi, enda má
búast við því að ef þú heldur þínu
til streitu þá muntu hafa mörgu að
fagna.
Steingeitin
23. des. - 20. janúar
Þú ferð vanalega vel með
peningana, en nú þarftu að eyða
meiru en þinn er vani og þér finnst
það erfitt. Aftur á móti mun ein-
hver sem þér finnst mjög vænt um
gleðja þig afar mikið á næstunni.
Vatnsberinn
21. janúar - 18. febrúar
Þú vinnur baráttu sem þú
hefur lengi átt við að glíma og við
það opnast þér nýjar leiðir. Þetta
bætir sjálfstraustið og vekur at-
hygli og virðingu annarra á hæfi-
leikum þlnum.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Það er eitthvað gruggugt á
seyði I kringum þig, og þú þarft að
gæta þess að flækjast ekki inn I
mál sem geta skaðað þig.
Þú átt von á símhringingu eða
bréfi sem færir þér góðar fréttir, en
þó fréttir sem gætu raskað högum
þínum. En hafðu engar áhyggjur
því allt mun fara vel.
Sveinsba
Piparkökur í
j óíagíeðskapinn
Höfum einn'uj á úoðstófiun ýmsar temindir
Cjúffetujum sniákökum, úrauðum oq tertum.
Sparaðu pér tínui og fáðu jóCaúakstwirm
okkur.
. -
1 4 "•
\ *
í
ifarseli 18 og á horni Blönduhlíðar og Stakkahi
44 VIKAN
STJÖRNUSPÁIN