Vikan


Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 63

Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 63
 Árni Tryggvason (oraanistinn) og Tinna Gunnlaugsdóttir (Ugla) í Átómstöðinni. Glæsileg jóladagskrá sjónvarpsstöðvanna Sjónvarpsáhorfendur eru vanir þvf að dagskráin yfir hátíðirnar sé bitastæð- ari en endranær, enda mun meiri tími til að njóta þess sem á boðstólum er. Ekki virðast stöðvarnar ætla að bregðast þessi jól frekar en vant er. Þó fara þær sína leiðina hvor, Ríkis- sjónvarpið leggur mikla áherslu á innlent efni en Stöð 2 einbeitir sér að góðu erlendu efni. Ef litið er yfir dagskrá Ríkissjónvarpsins sést að mikið er lagt upp úr barnaefni yfir jólin, enda eru þau hátíð barnanna. Á aðfangadag verður Veiðiferðin, fjöl- skyldumynd Andrésar Ind- riðasonar frá 1979 á dagskrá. Á jóladag sýnir sjónvarpið mynd sem heitir Leyndardómar Vatnajökuls, en hún er um leiðangur $em farinn var bæði ýfir og undir jökulinn. Sama dag verður svo Punktur, punktur, komma, strik á dagskrá. Þegar við bætist Jólastundin okkar fyrir börnin sést að mikið er lagt í dagskrána þennan dag. Ef farið er yfir á annan dag jóla sést að boðið er upp á tvær stórmyndir. Fyrsta ber þar að sjálfsögðu að nefna Átómstöðina sem Þorsteinn Jónsson gerði eftir skáldsögu Halldórs Laxness. Hin myndin er bandaríska óskarsverðlaunamvndin Tender Mercies. Sunnudag- inn 27. des. verður svo sýnd önnur mynd eftir sögu Hail- dórs Laxness, Salka Valka, sænsk - íslensk mynd frá 1954 sem er endursýnd. Á Stöð 2 er meiri áh'ersla lögð á erlent efni. Eins og hjá Ríkissjónvarpinu er mikið um barnaefni. Á aðfangadag er stanslaust barnaefni allan daginn og því lýkur með bíómynd um Prúðuleikar- ana. Á jóladag er boðið upp á Tónaflóð (Sound of Music), Aftur til framtíðar og tvær fyrirtaks gamanmyndir að auki, Herramenn með stíl og Elskhuginn. Á annan dag jóla býður Fjalakötturinn upp á París, Texas og siðar um kvöldið verður á dagskránni jólamyndin Smoky Mountain Christmas með Dolly Parton í aðalhlutverki. Það ætti því engum að leiðast yfir sjónvarpinu yfir jólin eins og sjá má á þessari upptalningu. Umsjónarmað- ur dagskrárkynningarinnar óskar ykkur gleðilegra jóla og vonar að ykkur gefist tóm til að njóta einhvers af þeim krásum sem boðið er upp á á sjónvarpsskerminum yfir hátíðirnar. AE FÖSTUDAGUR 18. DES. RÚV. SJÓNVARP 17.55 Ritmálsfréttir 18.00 Nils Holgeirsson 18.25 Antilópan snýr aftur. Jólaþáttur. 18.50 Fréttir/táknmáls- fréttir. 19.00 Matarlyst 19.20 Á döfinni. 19.30 Top of the Pops 20.00 Fréttir og veður 20.40 Þingsjá 21.00 Annir og appelsín- ur. Umsjón Eiríkur Guðmundsson. 21.20 Mannaveiðar. 22.25 Downhill Racer. Bandarísk bíómynd frá 1969. Leikstjóri Michael Ritchie. Aðalhlutverk: Robert Redford, Gene Hackman og Gamilla Sparv. Myndin er um skíðakappa og baráttu hans við að komast í Ólympíulið Bandaríkja- manna. 00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. STÖÐ II. 16.35 Drottinn minn dýri! Bandarísk gamanmynd frá 1980. Ferðalangar í rútuferð um landið helga finna gamlar skræður í helli og við það birtast bibilíusögurnar þeim i nýju Ijósi. Aðalhlutverk: Dudley Moore, James Coco, Dom DeLuise og Madeleine Kahn. Leik- stjóri: Gary Weis. 18.15 Dansdraumar. Bráðfjörugur framhalds- flokkur um tvær systur sem dreymir um frægð og frama i nútímadansi. 18.40 Valdstjórinn. 19.1919.19. 20.30 Sagan af Harvey Moon. Lokaþáttur. 21.30 Ans-Ans. Úrslit í spurningakeppni fréttam- anna. 22.00 Hasarleikur. 23.00 Kór Langholts- kirkju. 00.00 Þessir kennarar. Bandarísk gamanmynd frá 1984 um kennara í framhaldsskóla sem á í stökustu vandræðum með nemendur sína. Húmorinn í myndinni ku vera í svartasta lagi. Aðalhlutverk: Nick Nolte, JoBeth Williams, Judd Hirsch og Richard Mullig- an (úr Löðri). Leikstjóri: Arthur Hiller. 01.45 Dagskrárlok. LAUGARDAGUR 19. DES. RÚV. SJÓNVARP 14.55 Enska knattspyrn- an. Bein útsending. 17.00 Spænskukennsia 18.00 Á döfinni. 18.15 (þróttir. 18.30 Kardimommu- bærinn. 18.50 Smellir. 18.50 Fréttir/táknmáls- fréttir. 19.00 Smellir. 19.30 Brotið til mergjar. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Lottó. 20.50 Fyrirmyndarfaðir. 21.25 Maður vikunnar. 21.45 A Child’s Christmas in Wales Bresk/kanadísk sjónvarpsmynd um jólahald ungs drengs í litlu velsku þorpi. Myndin er byggð á Ijóði Dylan Thomas og er hugljúf í meira lagi eins og hæfir jólasögu. Með aðalhlut- verk fer Denholm Elliott. 22.50 Love Among Thieves. Ný bandarísk gamanmynd. Leikstjóri Robert Young. Aðalhlut- verk: Audrey Hepburn og R. Walker. 00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. STÖÐ II. 09.00 Barnaefnl. 12.00 Hlé. 13.35 Fjalakötturinn. Dásamlegt líf. It's a Wonderful Life. Bandarísk stórmynd frá 1946. Þessi mynd sem er löngu orðin sígild fær fjórar stjörnur í handbók Halliwells. Söguþráðurinn er á þá leið að engill kemur til jarðar og fær mann til að hætta við sjálfsmorð. Síðan lítur hann yfir farinn veg með mannin- um og sýnir honum fram á að lífið sé ekki lítilsvert þrátt fyrir allt. Aðalhlut- verk: James Stewart og Donna Reed. Leikstjóri: Franks Capra. 15.45 Nærmyndir. Nærmynd af Eddu Erlendsdóttur píanó- leikara. Umsjónarmaður er Jón Óttar Ragnarsson. 16.25 Ættarveldlð. 17.10 NBA - körfuknatt- leikur. 18.40 Sældarlíf. Skemmti- þáttur sem gerist á gullöld rokksins. 19.19. 19.19. 20.30 íslenski listinn. Bylgjan og Stöð 2 kynna 40 vinsælustu popplög landsins í veitingahúsinu Evrópu. 21.20 Tracey Ullman. Skemmtiþáttur með bresku söngkonunni og grínleikkonunni Tracy Ullman. 21.45 Spenser. 22.35 Lögregiustjórar. Chiefs. Spennumynd í þrem hlutum. 2. hluti. 00.05 Eitthvað fyrir alla. Something for Everyone. Saga um ástir og dularfull örlög sem gerist í austur- rísku Ölpunum. Aðalhlut- verk: Angela Lansbury og Michael York. Leikstjóri: Hal Prince. 01.55 Líf og dauði Joe Egg. Heimilislífið hjá ungum hjónum verður annað en fyrirhugað var þegar þau eignast flogaveikt barn sem er hreyfihamlað og getur enga björg sér veitt. Foreldrarnir eru harmi slegnir og fyllast vonleysi yfir eigin getuleysi til að hjálpa barninu. Myndin fær mjög góða dóma og fólki er bent á að missa ekki af henni þrátt fyrir ■að hún sé sýnd svona seint. Aðalhlutverk: Alan Bates og Janet Suzman. Leikstjóri: Peter Medak. 03.30 Dagskrárlok. VIKAN 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.