Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 18
Meira að segja Danir
flykkjastá
jólamarkaði í Þýskalandi
Fólk bíður klukkutímum saman eftir að komast inn á jólamark-
aðinn í Liibeck. Þó Ijótt sé firá að segja var okkur hleypt inn bak-
dyramegin á undan öllum hinum.
Jólamarkaðir eru gjaman haldnir í kirkjum og á þeim seldir alls
konar handgerðir munir.
kaupa svona varning. Mesta
furða var hvað vel gekk að gera
sig skiljanlegan í búðunum og í
sölutjaldinu þar sem undirrituð
keypti jólaskraut talaði kon-
an svo skýra þýsku að hægt var
að skilja hvert orð, sem var ekki
undarlegt þegar í ljós kom að
hún var í raun að tala dönsku!
Við komum semsagt flest heim
með sýnishorn af þessari fallegu
handavinnu og einn keypti sér
stóran og fallega málaðan jóla-
svein úr tré á einum markaðn-
um, en varð það á að líta á mið-
, nn þar sem á stóð hvar gripur-
inn væri framleiddur — og erfitt
áttum við með að hætta að
hlægja þegar við lásum: Made in
China.
Þegar menn hafa jafnað sig
eftir jólin og eru farnir að huga
að skemmtiferðum til erlendra
stórborga, þá verður sagt nánar
ffá því hvernig hægt er að gera
Hamborgarferðina enn betri og
eftirminnilegri með því að
heimsækja eina, eða allar af ná-
grannaborgunum þrem; Lúbeck,
Bremen eða Múnster.
Verslunargötur Reykjavík-
ur fóru í jólaskrúðann laug-
ardaginn 5. desember þegar
kveikt var á ljósum jóla-
skreytinganna, en borgir og
bæir í Þýskalandi fara í jóla-
búninginn töluvert fyrr.
Þegar blaðamaður Vikunnar
var þar á ferð um mánaðar-
mótin þá gaf að líta — auk
götuskreytinganna - jólatré í
fúllum skrúða, jólaljós t
gluggum húsa og aðventu-
ljósin ómissandi og virðast
þau jafh almenn í Þýskalandi
og á íslandi.
Verslunarferðir íslendinga til
útlanda fýrir jólin eru að verða
fastur liður í jólahaldinu og eru
borgirnar Amsterdam, Glasgow
og Hamborg einna vinsælustu
verslunarstaðirnir. Flestir sem
til þessara borga koma halda sig
á sama stað alla ferðina, sem
gjarnan stendur yfir í flmm daga
til viku og eru þá margir búnir
að fá meira en nóg. Fjórum ís-
lenskum blaðamönnum var
boðið í skoðunarferðir um þrjár
borgir í nágrenni Hamborgar:
I.úbeck, Bremen og Múnster,
einkum með það í huga að sýna
að þó fólk kaupi sér ferð til
Hamborgar þá er mjög hægt um
vik að bregða sér til næstu
borga. Ferð sem aðallega hefur
verið hugsuð sem innkaupa- eða
skemmtiferð til Hamborgar get-
ur auðveldlega orðið enn betri
með því að breyta um umhverfl
og sjá aðeins meira af landinu,
án þess að það þurfi að kosta
mikinn tíma eða fyrirhöfh.
Nágrannar okkar, Skandinav-
ar, eru fyrir löngu búnir að upp-
götva Þýskaland sem gott inn-
kaupaland og þegar við komum
á lestarstöðina í Bremen, að Lú-
beckdvöl lokinni, þá var hægara
sagt en gert að komast út á götu.
Múgur og margmenni fyllti
stöðina og tvær konur sátu fast-
ar í lestardyrunum, því á sama
tíma ætlaði önnur inn, en hin út
og hvorug vildi gefa sig. Þetta
leystist að lokum, ekki á mjög
vinsamlegan máta þó, og við
komumst á hótelið okkar sem
var beint á móti 'lestarstöðinni.
Ástæðan fýrir margmenninu var
jólamarkaður í borginni sem
fólk hvaðanæva að flykktist á til
að versla í fýrir jólin.
í Lúbeck komumst við fýrst í
kynni við jólamarkað. Tæpum
mánuði fyrir jól eru sett upp
sölutjöld og básar á torgum, í
kirkjum og í eða við ráðhús
borganna, þar sem seldur er afar
margvíslegur varningur. Mest
bar á handgerðum hlutum ým-
iss konar, s.s. handmáluðu jóla-
skrauti frá A-Þýskalandi, kertum
úr býflugnavaxi, leirmunum,
dúkkum og sælgæti. Þetta er
varningur sem ekki er á boðstól-
unum daglega og ásóknin í hann
því mikil. Þarna sáum við margt
fólk frá Skandinavíu og var okk-
ur sagt að á hverju ári kæmu
margir þaðan til að versla á jóla-
mörkuðum, einkum væru það
Danirnir sem kæmu. Þeir taka
lest og ferju snemma að morgni
og versla í Þýskalandi yfir dag-
inn og fara klyfjaðir tilbaka til
Danmerlmr að kvöldi.
Okkur voru sýndir nokkrir
jólamarkaðir í hverr' borg þar
sem örlítill tími gafst til að
versla. Það sem einna helst
heillaði okkur var handmálaða
jólaskrautið frá A-Þýskalandi,
sem við höfðum að vísu séð
áður en þar var það svo dýrt að
ekki var hægt að láta það eftir
sér að eyða í það peningum,
svona rétt fyrir jólin sem er þó
eini tíminn sem gaman er að
18 VIKAN