Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 59
Ásgrímur Sverrisson fl|p||
| MYNDBÖND W /
Kvikmyndir
sem nú eru
fáanlegar á
myndböndum
og þú getur
horft á í
jólafríiinu
maður
Comfort and Joy
★★★
Aðalhlutverk: Bill
Paterson, Eleanor
David, C.P.
Crogan. Leikstj.
Bill Forsyth.
Útvarps- Ijósvíkingur verður fyrir þeirri
ógæfu að sambýliskona hans ákveður rétt si
svona að fara frá honum og tilkynnir honum
það um leið, og trukkurinn birtist til að sækja
húsgögnin. Sagan fjallar síðan um hvernig
hann reynir að ná áttum eftir þessi ósköp og,
gengur ýmislegt furðulegt á, áður en yfir lýkur.
Hreint yndislegur húmor og Paterson brillerar
í aðalhlutverkinu. Leikstjórinn Bill Forsyth, er
minn maður, síðasta myndin hans á undan
þessari, Local Hero, var hreinasta snilld og ef
þú skyldir rekast á hana í hillunni, þá gríptu
báðar.
Veikasti
hiekkurinn
84 Charing Cross
Road
★★
Aðalhlutverk Anne
Bancroft, Anthony
Hopkins. Leikstj.
David Jones.
Sérstætt platónískt ástarsamband og
tuttugu ára ferðalag gegnum breskar bók-
menntir geta vissulega getið af sér góða
sögu. Og er hún fyrir hendi hér. Bancroft leik-
ur rithöfund í New York og Hopkins bóksala í
London sem sér henni fyrir andlegu fóðri hins
breska bókmenntaarfs. Þau skrifast á yfir poll-
inn um áratugaskeið og eiga sér þann draum
að hittast en aldrei verður af því. Veikasti
hlekkurinn liggur í kvikmyndaforminu sjálfu og
vangetu þess til að tjá hugsun manna án
stuðnings við hið sjónræna sem sagan býður
því miður ekki uppá. Þessi saga er fyrst og
fremst bókmenntalegs eðlis, sterk, hlýleg og
falleg í frásögn sinni af sönnum verðmætum.
Ágætir
taktar
Hollywood
Shuffle
★★
Aðalhlutverk og
og leikstj. Robert
Townsend.
Townsend mun hafa gert allnokkra lukku
vestra með þessari mynd sinni og skal ekki
dregið í efa að svartir meðbræður hans sem
þurft hafa að ströggla gegnum kynþáttamúr
kvikmyndaiðnaðarins, geta glaðst hjartanlega
yfir henni. Townsend dregur kvikmyndaborg-
ina og viðhorf hennar til svartra, sundur og
saman í háði og ærslafullu spéi og tekst oftast
að vera skemmtilega einlægur og fyndinn. En
mér segir svo hugur að leikarinn í honum sé
öllu minni í sniðum en leikstjórinn, þar sem
hann sýnir ágætis takta. Og nú þegar þær
fréttir hafa borist að Eddie Murphy hafi ráðið
hann til að leikstýra nýjustu myndinni sinni,
hefur hann ágætis tækifæri til að koma öllu
því í verk sem hann prédikar í myndinni....
Runninn
syngjandi
og önnur
endemis
vitleysa
Three Amigos
★★
Aðalhlutverk:
Steve Martin,
Chevy Chase,
Martin Short.
Leikstjóri: John
Landis.
John Landis er sennilega einn almesti
sprelligosi sem stendur aftan við myndavélar í
dag og oftar en ekki tekst honum dável upp,
sbr. Blues Brothers, Trading Places og Into
the Night. Hér leitar hann fanga ( gullöld
Hollywood og býr til sögu um mislukkað gengi
þriggja jólasveina í gervi kvikmyndaleikara,
sem fá pokann sinn og ákveða fyrir misskiln-
ing að freista gæfunnar í Mexikó. Endemis vit-
leysa náttúrlega og allt í góðu lagi með það,
bara ef brandararnir stæðu ekki velflestir í
hálsinum. Stöku grín hittir þó beint í mark, t.d.
runninn syngjandi sem kyrjar írska slagara í
miðri mexikanskri eyðimörk og óborganleg
kvöldvökusena út á gresjunni, sviðsett svo
rækilega í kvikmyndaveri að það fer ekki
framhjá neinum.
Að létta
á sfnu
hjarta
Heartburn
★★
Aðalhlutverk
Meryl Streep,
Jack Nicholson.
Leikstjóri Mike
Nichols.
Þetta er hin notalegasta mynd, Ijúfsár ástar-
saga og ósköp yndislega unnin og leikin - en
um leið alveg fyrirhafnarlaust. Súperstjörnur á
borð við Streep og Nicholson afgreiða þessa
átakalitlu mynd með annarri hendi og bundið
fyrir augu, án þess að þessi orð beri að skilja
á neikvæðan hátt. Og maður klórar sér í koll-
inum yfir Nichols leikstjóra sem oftast áður
hefur legið miklu meira á hjarta sbr. The Gra-
duate, Catch-22 og Silkwood. Hver var til-
gangurinn? Tæþlega sá að lýsa sambandi
Noru Ephron og Carl Bernstein (myndin er
byggð á bók Ephron) því auðvitað er Ephron
ekki að lýsa því ( neinum smáatriðum heldur
fyrst og fremst að létta á sínu hjarta. En svo
má auðvitað segja að það sé nægur tilgangur
í sjálfu sér.
VIKAN 59