Vikan


Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 26

Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 26
SKÁK: Frábær árangur Ólympíuliðsins 26 VIKAN Skáksamband íslands hef- ur nú gefið út bókina „Skák- stríðið við Persaflóa“ en hún fjallar um hinn frábæra árangur íslenska Olympíu- liðsins í skák er það náði 5. sætinu á mótlnu í Dubai 1986. Það er Jón L. Ámason sem skrifar bókina en hann skrifar m.a. um skák í'yrir Vikuna. Þessi bók er bráðnauðsynleg eign öllum þeim sem fylgjast með skák á íslandi þvi í henni er að finna allar skákir sem íslendingarnir tefldu á þessu móti með skýringum Jóns og skákmannanna sjálfra. Raunar skiptist bókin í tvo meginkafla, og nefhist fyrri hluti hennar „Ferðasagan" þar sem greint er frá undirbúningi ís- lensku skáksveitarinnar og dvöl hennar í Dubai meðan á mótinu stóð. Seinni hlutinn ber svo nafhið „Taflmennskan". Auk þessara kafla er að finna í bók- inni margvíslegan fróðleik ann- an svo sem töflur um sigurliðin á Olympíuskákmótunum frá upphafi, þátttöku íslands frá upphafi, íslenska keppendur á þessum mótum frá upphafi o.fl. Bókin er á heildina litið vel upp sett og skemmtilega skrifuð eins og Jóns var von og vísa og ekki spillir fyrir að hún er prýdd fjölda mynda frá Dubai, af skák- mönnum okkar, bæði í keppni og afslöppun. Einhver eftirminnilegasta viðureign okkar manna var við Sovétmenn sem skörtuðu þeim Kasparov og Karpov í broddi fylkingar. Um þá viðureign segir Jón að fyrirfram töldu íslending- arnir að 2.5—1.5 vinninga tap væru þokkaleg úrslit og allt ann- að frábær árangur. íslendingarn- ir tefldu fram aðalliði sínu en auk hinna tveggja fyrrgreindu voru Sovétmenn með þá Vag- anjan og Tseshkovsky. Við skulum grípa aðeins nið- ur í frásögn Jóns af þessari viðureign eftir að Kasparov hef- Aðallið íslands í upphafi umferðar. Næstur situr Margeir, þá Jón L., síðan Jóhann og loks Helgi. >P I mi % . Á baðströndinni við Persaflóann. Jóhann, Helgi, Guðmundur og Margeir undirbúa sundsprett morgunsins. ur sigrað Helga Ólafsson og Jón náði jafhtefli við Vaganjan. „Með eina „hartnær" tapaða biðskák og aðra „hartnær" unna, vonuðumst við eftir einum vinningi samtals og þolanlegur 1 Vi—2 Vi tapi. Hvoruga bið- skákina var hægt að rannsaka í botn, en Jóhann, Margeir og Kristján mættu ákveðnir, en syfjaðir, til leiks um níuleytið morguninn eftir. Ekki er hægt að segja það sama um Tseshkov- sky, sem veitti furðu litla mót- spyrnu og gaf skákina fljótlega. Þetta veitti Jóhanni aukinn kraft og svo virtist sem ónákvæmar biðrannsóknir okkar hafi slegið Karpov út af laginu. Hann missti ^af vænlegri leið, ef ekki tveimur og Jóhann fórnaði síðasta manninum sínum til að ná þráskák með drottningunni. Jóhann og Karpov rannsökuðu biðskákina lengi á eftir og var Karpov þolinmóður við að út- skýra fyrir Ljubojevic, sem allt í einu var mættur á staðinn, af hverju hitt og þetta mátti ekki. „Sjó mí, sjó mí“ sagði Ljubo aftur og aftur á bjagaðri júgósl- avneskri ensku. Karpov var óhress með taflmennsku sína eftir bið, en ítrekaði að biðstað- an hafi verið óvenju strembin. Jafhteflið var staðreynd. 2-2 gegn Sovétmönnum með Kasp- arov og Karpov í fararbroddi er án efa besti einstaki árangur okkar manna í sveitarkeppni. Rútuferðin heim á hótelið þar sem hinir biðu okkar á strönd- inni var óvenju skemmtileg." FRI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.