Vikan - 12.08.1993, Blaðsíða 23
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
ÁiiiiiÁiAiiiiiiiiíAÁÁiilil
✓
ÆVINTYRI VERULEIKANS
tTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT
BRJÓTTU UPP
VANAATRIÐIN
Sólin skín og allt verður
svo fallegt. Fólkið á göt-
unni er léttklætt og
brosir í gleði sinni. Ég sest inn
í gamla skódann minn og
þeysi af stað að leita ævin-
týra. Ætti ég aö setjast hjá
steini og eiga við hann orð -
eða fara á kaffihús með góðri
vinkonu og ræða málin? Ef til
vill ætti ég að heimsækja ein-
hvern sem ég hef ekki séð
lengi. Bíllinn geysist um göt-
urnar með smáaðstoð af
minni hálfu. Stýri af ákefð
bjartsýnismanneskjunnar sem
eru allir vegir færir. Finnst ég
vera frjáls þótt ég skuldi svo-
lítið í bankanum og sé ekki
búin að skipuleggja veturinn
sem koma mun. Af hverju að
vera að skipuleggja hlutina of
mikið, fara of mikið eftir áætl-
unum sem ég set mér? Flvað
ég vildi geta fengiö að vera
eins og lækjarsprænan sem
rennur áfram án hindrunar,
bara vera þarna á ferðinni og
halda áfram, áfram án þess
að særa neinn, án þess að
taka allar þessar ákvarðanir
sem maður virðist alltaf verða
að taka.
Sólin segir ekki allar sögur.
Margir eiga um sárt að binda
þótt bjart sé úti. Margir eiga
erfitt vegna atvinnuleysis og
standa frammi fyrir því að
eiga of mikinn tima aflögu.
Flvað gerir maður þá? Hvað
er gaman að gera og kostar
ekki mikla peninga?
Hér koma nokkur atriði sem
mér hafa reynst vel í gegnum
árin. Gáið að hvort þau duga
ykkur ekki jafnvel, ef ekki í
gamni þá í þónokkurri alvöru.
1. Farið í Hagkaup í Kringl-
unni og fáið ykkur kaffi þarna
hjá salatborðinu. Gangið svo
tvö skref að ísvélinni og setjið
smáístopp ofan í kaffið.
2. Heimsækið einhvern sem
þiö eruö ekki alveg viss um
hvort sé vel við ykkur eða
ekki. Eftir heimsóknina getið
þið strikað viðkomandi út af
vinsældalistanum og verið
fegin að fá þetta á hreint eða
fagnað því aö hugboð ykkar
reyndist rangt.
3. Skrifið ævisöguna. Hún er
engri annarri lík og sjáið hvað
þið eigið í rauninni gott - að
vera bæði læs og skrifandi.
4. Safnið hári og prófið alls
konar hárgreiðslur. Þetta tek-
ur tíma en það er hann sem
við eigum nóg af, einmitt
núna.
5. Segið sannleikann eins oft
og þið getið. Hann er nefni-
lega svo hressandi, þótt lygi-
legur sé.
6. Hugsið hlutina upp á nýtt.
Breytið því sem hægt er að
breyta. Brjótið upp vanaatriði
sem ekki eru ómissandi og
gerið hlutina á nýjan veg.
7. Ekki vera viðkvæm.
y->
Cö
O:
O
=|
7*0
uo
AUGLÝSINGA-
OGIÐNAÐARLJÓSMYNDUN
REYKJAVÍKURVEGI 64 - HAFNARFIROI • SÍMI 652620 . HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem
fáanlegar eru I dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
HflRGREIÐSLUSTOFfl HOLLU MflGHUSDOTTUR
MIÐLEITI7 • SÍMl 6B5562
HÁRSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 62 61 62
RAKARA- & HÁRtjRE/ÐSMSTDFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVlK
16. TBL. 1993 VIKAN 23