Vikan - 12.08.1993, Blaðsíða 63
höfum áhuga á að gera
myndir með mannlegum sam-
skiptum verða leikarar til, sem
betur fer.“
- Þessi mynd höfðar örugg-
lega til fleiri en þær myndir
sem þú hefur verið í áður.
„Já, en það var ekki meðvit-
uð ákvörðun af minni hálfu að
reyna að fá hlutverk í mynd
sem nyti mikilla vinsælda. Ég
var valin til að leika í myndinni
en ekki öfugt. Ég held ég
muni alltaf vera í myndum
sem ég hef trú á, sumar af
þeim höfða til almennings en
aðrar eru kannski listrænni og
gerðar fyrir minni markað.
Mér þykir spennandi að vinna
með mismunandi leikstjórum
og takast á við margbreytileg-
ar manngerðir í tjáningu
minni. Að mínu mati eru engin
ákveðin mörk í sambandi við
vinsælar myndir og sérhæfð-
ari myndir. Sumir leikarar vilja
kannski bara vera í kvikmynd-
um sem stóru kvikmyndaverin
framleiða en ég vil vinna með
bestu leikstjórunum, sama
hvort miklir peningar eru í húfi
eða ekki.“
JURASSIC PARK
HEFUR BODSKAP
- Seinasta mynd sem þú
varst í var Rambling Rose og
þú varst tilnefnd til ósk-
arsverðlauna fyrir frammi-
stöðu þína þar. Engu að síður
fékk myndin ekki marga á-
horfendur. Eru það ekki von-
brigði fyrir þig að ná slíkum
árangri en svo flykkist fólk til
að sjá mynd eins og Jurassic
Park þar sem mæðir ekki eins
mikið á þér sem leikkonu?
„Vandamálið með Rambl-
ing Rose var að fyrirtækið,
sem sá um dreifingu myndar-
innar, varð gjaldþrota rétt
áður að sýningar á henni
hófust. Ég held að fleiri hefðu
séð myndina ef þeir hefðu
bara vitað af henni. Hún fékk
mjög góða dóma og gerir það
mjög gott á myndbandaleig-
um þannig að hún týndist ekki
alveg. Það eru margar góðar
myndir sem lítið fer fyrir, hver
sem ástæðan er. Það veldur
mér ekki vonbrigðum að fólk
sjái Jurassic Park því ég lít
ekki á myndina sem yfirborðs-
lega söluvöru. Ég held að Spi-
▲ í viðtali
við
blaðaman
n
Vikunnar
segist
Laura
Dern ekki
hefði vilj-
aö hafa
risaeðl-
urnar
raun-
verulegri.
16.TBL. 1993 VIKAN 63