Vikan - 12.08.1993, Blaðsíða 8
TEXTI: JÓHANN GUÐNIREYNISSON / UÓSM.: JGR OG BINNI
VIKINGAHOFÐINGINN
JÓHANNES VIÐAR:
MÁTUI
ÞAÐ SKAL SKÝRT TEKIÐ FRAM
Fuglinn í fjörunni, hann
heitir már - nema í Hafn-
arfirði, þar heitir hann Jó-
hannes Viðar Bjarnason.
Hann var af mörgum talinn
hálfgerður furðufugl þegar
hann kom með nokkrar geggj-
aðar hugmyndir, þar sem
hann ruglaði saman reitum
við fornsögur og víkinga, í
Hafnarfjörð fyrir þremur árum.
En fuglinn var með fullu viti og
nú segja menn gjarnan við
hátíðleg tækifæri að allt sé að
ganga upp.
Víkingaruglið reyndist ekki
rugl heldur hin vinsælasta
skemmtan innlendra sem út-
lendra og í tengslum við það
hafa miklar framkvæmdir
staðið yfir. Fyrir nokkru var
síðan keypt skip á staðinn og
boðið upp á miðnætursigling-
ar og fleira í þeim dúr. Fyrrum
bæjarstjóri ( Hafnarfirði, Guð-
mundur Árni, hefur lýst hinum
meinta furðufugli á þann veg
að Jóhannes sé einmitt mátu-
lega galinn til að geta verið
Hafnfirðingur. Við skulum
kynnast þessum mátulega
galna manni.
ÆTLAÐI f PRESTINN
Jóhannes er Reykvíkingur.
Við fyrstu sýn er ekkert at-
hugavert að sjá við manninn.
Lundin er létt að sjá og heyra.
Framkoman óþvinguð en laus
við skot á gestinn með segul-
bandið sem Jóhannes þekkir
ekkert. Myndi þó sennilega
breytast með tímanum. Býður
kaffi, fær sér sjálfur. Og sígar-
ettu. Hann er uppalinn í
Kleppsholtinu í Reykjavík. Eft-
ir gagnfræðapróf fór hann til
Englands að læra ensku á-
samt nokkrum öðrum íslensk-
um krökkum.
„Þetta var aðventistaskóli.
Ég ætlaði að verða prestur,
sko,“ segir Jóhannes og hlær
við en hann hafði fram til
þessa verið í Hlíðardalsskóla.
„Eftir þetta fór ég bara í þjón-
inn og lærði það. Já, já. Á
Naustinu."
- Varstu eitthvað byrjaður í
viðskiptabrölti þá?
„Nei, ekkert. Ég hef aldrei
gert mig út fyrir að vera bisn-
issmaður og tel mig ekki til
þeirra. Þetta er meira hug-
sjónastarf finnst mér.“
KLAPPAÐ Á ÖXLINA
- Af hverju þjónninn?
„Þá var þannig litið á starfið
að þeir sem því gegndu hefðu
það gott fjárhagslega. Sumir
hverjir voru hátekjumenn. Það
er - ehemm, af sem áður var!
Síðan hef ég unnið við þjóns-
starfið á Naustinu, í Þórskaffi,
á Holiday Inn og Alex. Ég
stóð ekkert í rekstri á þeim
tíma en eftir að vera búinn að
8 VIKAN 16.TBL.1993