Vikan - 12.08.1993, Blaðsíða 62
RAUNVERULEGAR
RISAEÐLUR
VIÐTAL VIÐ LAURU DERN, LEIKKONU í JURASSIC PARK
„Um leið og þú trúir ab þú getir hamiö
móbur nóttúru ertu kominn í vandræói
því þaó er ekki hægt. Þú getur hannað
skip en ekki heimshöfin sem þaó siglir ó.
Þú getur búiö til flugvél en ekki loftin
bló. Vald mannanna er miklu minna en
draumar þeirra fó þó til ab ímynda sér."
(Michael Crichton, höfundur Jurassic Park)
▲ Laura
Dern
ásamt
aöalmót-
leikurum
sinum í
myndinni,
þeim
Richard
Atten-
borough
og Sam
Neill.
Jurassic Park verður tekin
til sýninga samtímis í Há-
skólabíói og Sambíóun-
um á morgun 13. ágúst og
reikna má með að þetta verði
mest sótta mynd ársins á ís-
landi og ekki ólíklegt að hún
slái fyrri aðsóknarmet eins og
annars staðar þar sem hún
hefur verið sýnd. Mikið kynn-
ingarátak fór fram i Los Ang-
eles skömmu fyrir frumsýn-
ingu myndarinnar og hundruð
blaðamanna komu víðsvegar
úr heiminum til að taka stjörn-
ur Jurassic Park tali. Undirrit-
aður var í þessum hópi og
ræddi við Lauru Dern á Four
Season hótelinu f Beverly
Hills. Hún var þreytt eftir
heimsóknir kollega minna og
spurði hvort það væri í lagi að
hún legðist upp í sófann í
svítunni þar sem við hittumst
á meðan ég sygi úr henni síð-
ustu blóðdropana. Ég bað
hana að sjálfsögðu að koma
sér eins vel fyrir og hún gæti
áður en við færum í spurning-
ar mínar.
SPIELBERG NftMUR
OG SKILNINGSRÍKUR
- Var gaman að leika í Ju-
rassic Park?
„Já, það var mjög skemmti-
legt að flestu leyti. Ég hef
gaman af að takast á við fjöl-
breytileg hlutverk og þetta
hlutverk er mjög ólíkt öllu því
sem ég hef leikið hingað til.
Það er starf konunnar sem ég
leik sem gerir hana svona
sérstaka. Hún er ekkert
grobbin yfir því en stolt af
doktorsgráðunni í plöntustein-
gervingafræði. Út í gegnum
myndina þurfti ég að túlka
sannan áhuga hennar á fag-
inu og forsögu okkar. Plöntu-
steingervingafræði er alls ekki
dauð fræðigrein heldur mjög
hagnýt því við getum lært af
henni um lífkerfið og umhverfi
okkar. Dýra- og jurtalíf og
samsetning andrúmsloftsins
varð fyrir breytingum sem eru
skrásettar í steingervingum
og út frá því getum við ályktað
sitthvað um það sem við þurf-
um að gera í umhverfisvernd
nú á dögurn."
- Hafðir þú áhyggjur af því
áður en byrjað var að taka
upp myndina að tæknibreil-
urnar og risaeðlurnar mundu
skyggja á leikarana?
„Nei, Spielberg hefur alltaf
gert myndir þar sem hlutverk-
in eru vel mótuð. Robert
Shaw gerði okkur hrædd við
hákarlinn í Jaws, Richard
Dreyfuss fékk okkur til að trúa
á tilvist geimvera í Close
Encounters of the Third Kind
og Henry Thomas sá til þess
að við urðum heilluð af E.T.
Það voru ekki aðeins furðu-
verkin sjálf sem gerðu það að
verkum að við tókum þessar
myndir alvarlega heldur ekk-
ert síður frábær frammistaða
leikaranna. Jaws er gott dæmi
um eina af best leiknu mynd-
um sem gerðar hafa verið.
Spielberg hefur næmi og
skilning á leikurum í myndum
sínum og veit að fullmótuð
hlutverk þeirra eru undirstaða
vel heppnaðar myndar. Hann
er ekki tæknibrelluleikstjóri,
hann er sögumaður. Eina
sem ég var ekki viss um var
hvort ég mundi hafa gaman af
að vinna að mynd þar sem
væri mikið af tæknibrellum.
Tæknimennirnir inntu starf sitt
það vel af hendi að mest allan
tímann voru risaeðlur í návist
minni og ég hefði ekki vilja
hafa þær raunverulegri.“
YFIRÞYRMANDI
KRINGUMSTÆÐUR
- Gagnrýnandi New York
Times lofar myndina fyrir
tæknilega úrvinnslu og er
þess fullviss að hún muni
verða mjög vinsæl. Samt sem
áður gagnrýnir hann að leikar-
arnir fái ekki nóg svigrúm til
að þróa hlutverkin sín. Hvað
finnst þér um þá gagnrýni?
„Það er erfitt fyrir mig að
svara þessu því ég leik f
myndinni og hef ekki lesið
gagnrýnina. Ég held að hlut-
verk mitt sé eins mótað og
hægt er í svona mynd og
myndin er innan marka sög-
unnar sem hún er gerð eftir.
Sagan gerist við mjög yfir-
þyrmandi kringumstæður en
margar senur eru meira um
leikarana en nokkuð annað.
Þær senur sem eru hvað
mest þrungnar tilfinningu og
ég er í byggjast á að sann-
færa auðkýfinginn um hvers
konar mistök hann hefur gert.
Jeff Goldblum leikur stærð-
fræðing og hlutverk hans í
myndinni er að sumu leyti
þema hennar, það er að mað-
ur á að hugsa um hvað maður
er að gera áður en fram-
kvæmt er. Þessi gagnrýni ætti
kannski líka við myndir eins
og Raiders of the Lost Arc
með Harrison Ford. Indiana
Jones er persóna sem við
munum aldrei gleyma en æv-
intýri hans skyggðu samt ó-
neitanlega á hann. Við vitum
ekkert hver hann er og hvað-
an hann kemur, hvaða lang-
anir og þrár hann hefur. Það
var ekki reynt að bregða Ijósi
á það í þeirri mynd, það er
einfaldlega ekki pláss fyrir
svoleiðis í öllum rnyndum."
- Sumir segja að tæknin sé
orðin slík að við þurfum ekki á
leikurum að halda í kvikmynd-
um í framtíðinni. Hvað finnst
þér um þaö?
„Mér skilst’ á tæknibrellu-
meisturunum sem unnu að
Jurassic Park að það sé hægt
að gera fullkomnar eftirmyndir
af fólki en það verði aldrei
hægt að Ifkja fullkomlega eftir
raunverulegum tilfinningum
sem leikarar tjá. Á meðan við
62 VIKAN 16.TBL. 1993