Vikan - 12.08.1993, Side 26
ég hann af gömlum vana. Vélrænt. En að
þessu sinni áttaði ég mig. Mér var ofboðið."
ÁTFÍKLAR ERU VEIKIR
FYRIR AUGLÝSINGASKRUMI
Spurningu um það hvort þetta hafi verið
dæmigerður dagur í lífi átvagls svarar hún
neitandi.
„Þá væri ég sennilega dauð. Nei, svona
slæmir dagar eru sem betur fer undantekning.
Þennan dag var ég ekki í venjulegu ofáti held-
ur hreinni og beinni átsturlun sem stundum
kemur yfir mig eftir langvarandi ofát og enda-
laus vonbrigði með misheppnaðar tilraunir til
að hafa stjórn á þessu."
Sumir átfíklar eiga þaö til að troöa í sig mat
og kasta honum síðan upp. Kannast hún við
það?
„Nei, ég hef aldrei gert það. Mér hefur
stundum dottið það í hug en ég hef bara ekki
treyst mér í það. Hjá sumum ofætum er
mynstrið þannig að þær éta og kasta svo upp,
ef þær eru þá ekki í algjöru svelti. Þannig er
það ekki í mínu tilviki. Ég hef að vísu reynt að
fasta en það gekk ekki upp. Mig svimaði og
ég fékk höfuðverk, auk þess sem ég varð
grútmáttlaus. Hins vegar held ég að varla sé
til sá megrunarkúr sem ég hef ekki reynt:
Scarsdale, sítrónukúrinn, eplaedikskúrinn,
bananakúrinn, hrísgrjónakúrinn og ótal teg-
undir af duftkúrum, að ógleymdum alls konar
heilunaraðferðum. Ég er á því að allt slíkt sé
tómt skrum í gróðaskyni. Það er auðvelt að
græða peninga á ofætum. Fyrirheit um krafta-
verk eru svo heillandi. Ofætur og aðrir fíklar
gína við öllu slíku. Eitt af því fyrsta sem mér
lærðist í OA var að sjá í gegnum það. Maöur
lætur fúslega blekkjast af því að maður vill
endilega fá að trúa á eitthvað sem einfaldlega
getur ekki gengið upp.
Öfgar eru ráðandi afl í lífi ofætunnar. Maður
skiptir allri tilverunni í tvennt: Allt eða ekkert,
svart eða hvítt, gott eða vont. Ekkert þar á
milli. Ofætum finnst lítið til þess koma að
losna við fáein kíló. Ef ekki er hægt að losna
við öll aukakílóin á einu bretti er eins gott að
sleppa því alveg. Loforðin í auglýsingunum
eru miðuð við þennan hugsunarhátt. Ágætt
dæmi um það er síðasti töfrakúrinn sem ég lét
ginnast af. Það sem ég féll líklega fyrir var á-
byrgð sem fylgdi í kaupbæti. Ef kúrinn virkaði
ekki átti maður kröfu á endurgreiðslu. Fyrst
seljandinn var svo heiðarlegur að bjóðast til
að endurgreiða vöruna ef hún kæmi ekki að
gagni hlaut kúrinn aö virka. Ég keypti þriggja
vikna birgðir af einhverri rándýrri prótín-leðju í
litríkum umbúðum. Það reyndi þó aldrei á þaö
hvort kúrinn virkaði eða ekki þótt hann ætti aö
vera úrslitatilraun af minni hálfu. Þegar ég var
nýbúin aö kaupa þetta gerðist nokkuð sem
setti strik í reikninginn."
MIÓNAN í AFMÆLINU
„Ég var boöin í afmæli. Þar var kona sem ég
kannaðist við. Hún haföi alltaf veriö feit, jafn-
vel feitari en ég og því hafði það alltaf glatt
mig að sjá hana. Það var bara ekkert gaman
að horfa á hana í þetta sinn. Hún var ekki
lengur feit. Henni var ekki einu sinni vel í
skinn komiö. Hún var mjó! Og komin í stór-
glæsilega rauða Chanel-dragt sem ég hafði
veitt sérstaka eftirtekt í búðarglugga í Kringl-
unni. Til að gera illt verra er rauöur litur sá
sem fer mér langbest, að öðru leyti en því að
feitabollur geta ekki leyft sér að ganga í rauð-
um fötum. Og ekki nóg með að hún væri létt-
ari á sér, það var líka svo létt yfir henni. Hún
geislaði. Allt þetta þaut í gegnum hugann á
mér á sekúndubroti þegar ég kom auga á
manneskjuna. Þetta fór rosalega í taugarnar á
mér. Ég öfundaði hana og í þessum nýja
samanburði við hana fannst mér ég sjálf enn
ömurlegri en nokkru sinni fyrr.
Ég var auðvitað ekki ein um að taka eftir
stakkaskiptunum. Það var verið að pískra um
þetta og ég heyrði sjálfa mig segja háðslega:
„Ætli hún sé ekki bara orðin ástfangin, grey-
ið.“ Hinar litu á mig undrandi. Illgirnin fór ekki
fram hjá þeim. Svo fóru þær að hlæja og mál-
ið var tekið af dagskrá.
Næstu daga var ég friðlaus. Ég varö aö
komast að því hvernig hún hafði farið aö
þessu. En hvern gat ég spurt? Ekki hana
sjálfa. Og ekki gat ég farið að hringja út um
allan bæ til að grafast fyrir um það. Þar með
heföi ég verið að viöurkenna að þetta væri
eitthvert mál fyrir mig. Það var ekki hægt.“
Þó fór svo að hún hringdi í þá sem hafði
haldið afmælisveisluna og veiddi upp úr henni
leyndarmálið. „Nei, þessi kona var áreiðan-
lega ekki í neinum vafasömum hugleiðingum,
allir vissu nú að það hjónaband væri eitt af
þeim fáu sem væru í lagi. En hún hafði víst
farið í OA til að ná af sér spikinu. OA? Já, þaö
voru svona samtök eins og AA og önnur slík.
Annars vissi hún það ekki almennilega, hún
vildi heldur tala um afmælið. Þetta nægði
mér. OA hafði ég aldrei heyrt nefnt og reyndar
átti ég bágt meö aö skilja hvernig AA gat
tengst því sem ég var að stríða við. Ekki var
ég alki. Á þessum tíma vissi ég nánast ekkert
um tilfinningaleg vandamál og satt að segja
leiddist mér allt þetta fjas um vandamál."
Vikurnar, sem fóru í hönd, voru erfiðar, tími
togstreitu og ringulreiðar. Um vorið átti að
ferma elsta barnið á heimilinu og það stóð
mikið til.
„Viö höfðum miðað svo margt við þessa
fermingu. Þá átti allt að vera klappað og klárt,
húsið endanlega frágengið, heimilið fullkomið
og fjölskyldan líka. Inni í þessari fallegu mynd
grillti ég í sjálfa mig, mjög óljóst, en þegar ég
leit í spegilinn blasti það við mér, þetta flikki
sem mér fannst ekki vera ég sjálf heldur eitt-
hvað sem ég sæti uppi með, nauðug, án þess
að ég ætti sök á því eða mér kæmi það í raun
og veru við. Ég var bálreið út í allt og alla.
Ég gleymi aldrei deginum þegar ég ákvað
að reyna OA. Þá voru nákvæmlega þrír mán-
uðir í ferminguna og ég afbar ekki tilhugsun-
ina um að upplifa þann dag svona á mig kom-
in. Ég viðurkenndi fyrir sjálfri mér að ég væri
ekki fær um að grennast af sjálfsdáðum. Ég
gafst upp. Mér var alveg sama. Þessi uppgjöf
var lykilatriði. Ég var löngu búin aö afla mér
upplýsinga um aðsetur og fundatíma OA-
samtakanna og vissi að nú voru tveir dagar í
næsta fund. Þegar ég var aö koma mér af
stað fór ég undan í flæmingi þegar ég var
sþurð hvert ég væri að fara. Þótt ég þykist
hafa tamið mér hreinskilni i samskiptum við
mína nánustu hef ég aldrei getað rætt opin-
skátt um einmitt þetta vandamál, en slík ein-
angrun er fastur liður í því hegðunarmynstri
sem er fíklum sameiginlegt."
EINANGRUN OG
HEGÐUNARMYNSTUR FÍKLA
Hún lítur svo á aö tilfinningaleg óreiða sé oft-
ast rót þess hömluleysis sem fram kemur í of-
áti eða annarri ofneyslu hjá fíklum.
„Hömluleysið er tilraun til að draga úr van-
líðan, deyfa sársauka sem innri togstreita hef-
ur óhjákvæmilega í för með sér. Fíkill er á
stöðugum flótta undan hvötum sem hann hef-
ur enga stjórn á og afleiðingin kemur ekki að-
eins fram í ofneyslu heldur setur hún mark sitt
á allt manns líf, einkum og sér í lagi á meðan
vandamálið er ómeðvitað. Tilfinningaleg ein-
angrun er eitt einkennið. Maður lokast inni
með erfiðar tilfinningar eins og kvíða, ótta,
sársauka, reiði og sorg, allt þetta sem maður
veigrar sér við að finna fyrir. Tilfinningarnar
hverfa ekki þótt þær séu bældar. Þær eru
þarna áfram, hvort sem maöur viðurkennir
þær eða ekki. Eina leiöin til að nálgast þær og
ná stjórn á þeim er að ræða þær við einhvern
sem hefur sömu reynslu og er því fær um að
láta í té skilning og samúð.
Ég veit að þetta hljómar eins og samheng-
islaus þvæla en þaö er þá bara í samræmi við
þá innri óreiðu sem ég er að tala um. Kannski
tekst mér einhvern tíma að greiða úr þessum
flækjum hjá sjálfri mér þannig að átfíkn hætti
að vera vandamál hjá mér. Eg veit þaö ekki.
Ég veit bara að ég á langt í land með það.
Kannski er það líka rétt að maður vinni aldrei
fullnaðarsigur á fíkn, að í mesta lagi megi
vænta þess að maður veröi fær um að búa
við hana án þess að hún stjórni öllu manns
Iffi.
Þannig er ástandið því miður ekki hjá mér
þessa stundina. Einhvern veginn missti ég
þau tök sem ég var búin að ná á þessu og nú
finnst mér ég hafa verið í margra mánaða ein-
angrun sem fram kemur í flótta, undanbrögð-
um og endalausum feluleik,“ bætir hún við
feimnislega og togar peysuna niður fyrir hnén.
Hvort hún er að fela sig fyrir mér eða sjálfri
sér er ekki gott að segja.
Á sjö mánuðum tókst henni að losna við 26
kíló með einföldum ráöum og stuðningi félaga
sinna í OA. Hafði hún þá náö svokallaðri kjör-
þyngd? En hvað gerðist síðan? Hvernig náði
fíknin yfirhöndinni á ný og af hverju er hún þá
ekki löngu farin aftur í OA fyrst hún er enn
sannfærð um aö þar sé hjálp að finna?
„Við þessu á ég eiginlega engin svör. Ég
veit ekki einu sinni hvort ég var komin í kjör-
þyngd á sínum tíma og þaðan af síður veit ég
hvaö ég er þung núna. Eg fæ mig ekki til þess
að stíga á vogina og mér finnst ég þurfa aö
herða mig upp áður en ég fer aftur í OA. Ég
skammast mín. Með því að detta aftur í ofátið
hef ég ekki bara valdið sjálfri mér ofboðsleg-
um vonbrigðum heldur líka mínum nánustu
sem samglöddust mér svo innilega þegar ég
náöi þessum frábæra árangri. OA er engin
kraftaverkalausn. Það veit ég manna best. En
ég veit líka að ég losna ekki hjálparlaust úr
því neti sem fíknin er. Ég átti bágt með að
segja frá reynslu minni en ákvörðun um að
gera það er kannski fyrsta skrefið í rétta átt.
Næsta skref er kannski í áttina að voginni þar
sem ég mun horfast í augu við veruleikann og
þaðan liggur leiðin vonandi aftur í OA-samtök-
in.“ □
OA er skammstöfun fyrir Overeaters Anony-
mous, samtök sem eiga upptök sín í Banda-
ríkjunum. OA-deildir eru starfræktar á átta
stöðum hér á landi. Upplýsingar um fundi
eru veittar í síma samtakanna, 91-25533.
26 VIKAN 16. TBL. 1993