Vikan - 12.08.1993, Síða 38
NOKKUR GOÐ RAÐ FYRIR ASTFANGNAR KONUR
Þegar maður er ástfang-
inn er erfitt að beita
skynseminni. Oft viljum
við það ekki og segjum sem
svo að það sé ekkert gaman
að vera ástfangin ef maður
hugsar rökrétt um leið. Að
elska er að vera blindur og
heyrnarlaus - að sjá ekkert
reið eftir fyrsta rifrildið.
Lærðu af því.
Það verða óhjákvæmilega
einhverjir árekstrar þótt erfitt
sé að ímynda sér það í upp-
hafi sambands. Þar sem þið
kúrið í faðmlögum uppi í sófa
er ekkert fjær ykkur en rifrildi.
Þú veist auk þess ósköp vel
og fyrr eða síðar kemur að því
- þarf að huga að nokkrum
aðalatriðum. Hvaða áhrif hef-
ur hegðun hans á mig? Er
þetta tilfinning sem ég þekki
vel eða hefur þetta aldrei
gerst áður? Er ég að gera of
mikið úr þessu? Hef ég á ein-
hvern hátt valdið þessari
við fjölskyldu sína. Iðulega
fara menn ómeðvitað eftir
sama mynstrinu í eigin fjöl-
skyldulífi eins og gert var á
æskuheimilinu. Þannig ætt-
irðu að sperra eyrun ef þú
heyrir elskhuga þinn æpa til-
efnislaust á mömmu sína eða
systur eða sýna þeim óvirð-
ingu. Ef hins vegar nýi
kærastinn sýnir fjölskyldu
sinni ást og virðingu ertu lík-
lega í góðum málum.
Á sama hátt er mikilvægt
að taka eftir því hvernig mað-
urinn talar um sjálfan sig. Set-
ur hann sjálfan sig alltaf í hlut-
verk fórnarlambsins eða sér
hann sig sem sökudólg?
Mundu líka að það er von-
laust að ætla sér að breyta
honum, hversu ástrík og vilja-
sterk sem þú kannt að vera.
Þú verður að horfast í augu
við það hvernig hann er og
gera upp við þig hvort þú get-
ur sætt þig við það.
nema ásjónu þess
heittelskaða og heyra ekkert
nema hunangssæta röddina
(nema þegar þessi rödd segir
eitthvað neikvætt eða trufl-
andi). Að elska er að svífa um
á rósrauðu skýi og sækja
aldrei um lendingarleyfi, að
elska er að horfa framhjá göll-
um og ókostum og einblfna á
töfra og mannkosti þess
elskaða. Með öðrum orðum:
við tengjum ást ekki við skyn-
semi.
Það ættum við samt einmitt
að gera. Við ættum aldrei að
kasta okkur út í nýtt ástar-
samband með augu og eyru
harðlæst og lokuð. Þvert á
móti skyldum við skerpa
skynjun okkar og árvekni.
Hvern langar í teygjustökk án
teygjunnar?
Heilbrigð skynsemi dregur
ekki úr sælunni og gleðinni
sem fylgir því að hefja nýtt
ástarsamband. Þú skiptir til-
finningum þínum í tvo flokka;
helmingurinn af þér Ifður um
með annarlegt sælubros á
vör, hinn helmingurinn fylgist
af athygli með bæði þér og
elskhuganum. Þannig geturðu
betur áttað þig á því ef mað-
urinn, sem þú ert svona hrifin
af, er kannski ekki sá rétti eftir
allt saman.
Að vera skynsamlega ást-
fangin er sem sagt ekki svo
mikil þversögn eftir allt saman
og hér á eftir færðu nokkrar
einfaldar ráðleggingar!
1. Ekki vera vonsvikin eða
að „það er bara eðlilegt að
tvær fullorðnar manneskjur
deili, án þess að það valdi erf-
iðleikum"! Þegar svo kemur
að því að þið rífist í alvöru er
hætt við að allar sálfræðilegar
og félagslegar kennisetningar
gleymist. Eftir situr þú, reið,
sár og vonsvikin. Þér finnst
allt vera ónýtt, sambandið í
molum.
Hversu skynsöm sem þú
ert sleppurðu aldrei við sárs-
aukann sem fylgir fyrsta rifrild-
inu. Skynsemin getur samt
hjálpað þér að takast á við
sársaukann, læra af rifrildinu
og virkja reiðina á jákvæðan
hátt en ekki neikvæðan.
Skynsöm kona veit að réttast
er að gefa sér tíma, láta sárin
jafna sig og reyna si'ðan að
setjast niður og átta sig á því
um hvað deilan snerist. Með
því er hægt að gera sér grein
fyrir því á hvaða hátt þið eruð
Ifk eða ólík og ræða það opin-
skátt.
2. Ef þú verður afbrýðisöm
skaltu ekki bregðast við
með því að gera hann af-
brýðisaman á móti.
í öllum mannlegum sam-
skiptum verður vart við af-
brýðisemi af einhverju tagi.
Afbrýðisemi getur verið
hættuleg vegna þess að hún
ræðst að sjálfsáliti okkar og
veikir hugmyndir okkar um
okkur sjálfar sem kynverur og
sem persónur. Þvf fylgir sár
höfnunartilfinning. Þegar af-
brýðisemin gerir vart við sig -
hegðun hans, til dæmis með
afskiptaleysi eða með því að
daðra sjálf? Get ég verið
hreinskilin, sagt honum hvern-
ig mér líður og ætlast til að
hann taki tillit til þess?
Það er hættulegt að vera
svo eigingjörn á ástmanninn
að hann megi ekki tala við
neina aðra konu - ekki einu
sinni mömmu sína. Ef sam-
band ykkar er gott treystirðu
honum og veist að þessi
huggulega kona, sem hann er
að dansa við, er engin ógnun
við þig. Ef þig hins vegar
grunar alltaf hið versta þarftu
að taka sambandið til gaum-
gæfilegrar endurskoðunar.
3. Taktu sérstaklega eftir
öllu sem hann segir eða
gerir og ber siðferðiskennd
hans og verðmætamati
vitni.
Karlmenn eru alltaf að gefa
konunum sem elska þá mikil-
vægar vísbendingar. Það er
sorgleg staðreynd að þegar
við heillumst af karlmanni
horfum við framhjá neikvæð-
um hliðum hans og sjáum að-
eins þær jákvæðu. Ef við
heillumst ekki af manninum
erum við hins vegar fljótar að
koma auga á neikvæðu hlið-
arnar. Skynsöm kona ætti
einmitt frekar að taka eftir nei-
kvæðu hliðunum því að þá
veit hún frá upphafi hvað hún
er að fara út í.
Eitt af þvf sem mikilvægt er
að taka eftir er hvernig mað-
urinn talar um og kemur fram
4. Það þarf ekki að vera
slæmt þó að þið hafið ólíkar
skoðanir.
Mörg okkar sækjast eftir fé-
laga sem endurspeglar við-
horf okkar og skoðanir. Með
því staðfestum við sjálfsmynd
okkar. Þess vegna verðum
við fljótt vonsvikin ef nýi félag-
inn er á öndverðum meiði í
ýmsum málum sem skipta
okkur miklu. Segjum sem svo
að nýja kærastanum sé alveg
meinilla við indverskan mat,
kvenréttindakonur og Ijóðlist.
Hvernig á að bregðast við
því? Getur þú virkilega elskað
mann sem finnst tandoori-
kjúklingur vondur?
Það er vissulega erfitt að
byggja traust samband milli
einstaklinga sem eru ekki
sammála um grundvallarat-
riði. Þess vegna þarf að átta
sig á því hver þessi grundvall-
aratriði eru. Einn kjúklingur
þarf þannig ekki að skipta
sköpum á meðan stjórnmála-
skoðanir geta gert það. Mat-
seðillinn fer venjulega eftir
smekk en stjórnmálaskoðanir
snúast um siðferðileg gildi og
hugmyndir um mannlegt sam-
félag. Kannski er hann bara
ekkert fyrir sterkan mat og
það er allt í lagi. Ef andúð
hans á indverskum mat stafar
hins vegar af fordómum og
fyrirlitningu gagnvart öðrum
kynstofnum fer málið að
vandast.
Það getur verið gagnlegt að
horfa á nýjan kærasta út frá
38 VIKAN 16. TBL. 1993