Vikan - 12.08.1993, Qupperneq 41
STJÖRNUGJÖF = GÓÐ
★★★★★ = FRÁBÆR ★★ = SÆMILEG
★ ★★★ = MJÖG GÓÐ * = LÉLEG
ÍCE-T: HOME INVASION:
BYLTING í AÐSIGI!
Hann lce-T er ekkert aö skafa
utan af hlutunum á Home In-
vasion. Svo vitnað sé í bæk-
ling, sem fylgir diskinum, segir
þar meðal annars eftirfarandi:
„Innspýting á svartri reiði í
ameríska unglinga er síðasta
stigið í undirbúningi byltingar-
innar. Verið viðbúin, hún er á
leiðinni." Ice-T er reiðari en
góðu hóf gegnir, ekki bara
vegna aðstæðna svartra held-
ur er hann reiður út í Time/-
Warner samsteypuna sem
rauf samning við hann í kjölfar
Cop Killer lagsins sem gerði
allt vitlaust í fyrra og einnig
gafst hljómplötufyrirtækið Sire
upp á honum en það ætlaði
að gefa út Home Invasion.
Ice-T gefur því út sjálfur núna.
í nítján lögum fær hann út-
rás fyrir tilfinningar sínar, blótar
og ragnar en varar fólk við því
í byrjunarstúf plötunnar, Warn-
ing. Svo er bara kýlt á það;
hvítir, löggan, eiturlyfjasalar,
melludólgar og fleiri fá á bauk-
inn í þungu rappinu og þaö er
óvæginn boðskapurinn sem
vegur þyngst í tónlist lce-T.
Lög á borö viö It’s on,
Home Invasion, G-Style, Fun-
ky Gripsta (sungið af 14 ára
rappstelpu, Grip), Addicted to
Danger og Race War stað-
festa að lce-T er ennþá í
„heitu deildinni". Og byltingin
er í aðsigi, fullyrðir hann án
nokkurs efa. Svei mér þá ef
ekki er hægt að taka undir
með honum að hluta til.
STJÖRNUGJÖF: ★★★
MIDNIGHT OIL: EARTH AND
SUNANDMOON
KUNNUGLEGT
Þaö eru þrjú ár síðan ástr-
alska rokksveitin Midnight Oil
sendi frá sér hljóðversplötu en
hljómleikaplata kom frá henni
í fyrra. Peter Garrett, söngvari
og textahöfundur, er mikill
umhverfisverndarsinni og því
mætti kalla tónlist Midnight Oil
umhverfisrokk með pólitísku
ívafi því þetta er allt samtvinn-
að. Það er heldur ekkert lát á
þeim pælingum hjá skallanum
Garrett. Mér finnst sveitin hins
vegar orðin svolítiö rótgróin
og ekki ná sér alveg á flug á
plötunni. Melódíurnar eru
þarna en kunnuglegar eru
þær og svo finnst mér að
hefði mátt setja meiri kraft í
þetta allt saman. Þó eru
þarna ágæt lög, svo sem
Bushfire, Renaissance Man,
Outbreak of Love og In the
Valley sem er vel útsett - en
eins og Bjarni Fel. er sífellt að
hamra á: Það vantar herslu-
muninnl
STJÖRNUGJÖF: ★★
bankastjórum Seðlabankans,
innsk.: GHÁ) og kynningu á
plötunni komst hljómsveitin
loksins til þess að spila konsert-
inn í stóru sýningarhöllinni (höf.
veit greinilega ekki um aðaltil-
gang Laugardalshallarinnar,
innsk.: GHÁ) í Reykjavík þar
CBS, áttu þeir eftir að gera
prýðisplötur á borð við Aural
Sculpture, hina rómantísku
Feline og Dreamtime. The Old
Testament inniheldur samt
það besta sem The Stranglers
hafa gert á ferli sínum, það er
ekki spurning. □
★ NÝIR DISKAR
NÝIR DISKAR ★
lce-T er í byltingarham á Home Invasion.
Um leið og The Stranglers
voru lentir í Keflavík hófst fjöl-
miðlasirkusinn sem stóð í 72
klukkutíma. Þar sem hljóm-
sveitin var fyrsta meiri háttar
sveitin til að heimsækja ísland
frá því Led Zeppelin kom árið
1975 fengu þeir félagarnir ó-
skipta athygli fjölmiðla. Kvik-
myndatökumenn, blaðaljós-
myndarar og blaðamenn fylgdu
ekki aðeins hljómsveitinni held-
ur og líka bresku gestunum!
Daginn eftir uppgötvuðu The
Stranglers að þeir voru á for-
síðum allra fimm dagblaða
landsins. Þeir uppgötvuðu þá
að þeir gátu ekki einu sinni
leyst vind án þess að lesa um
það í blöðunum. Eftir nánast
endalausar Ijósmyndatökur,
blaðamannafundi, móttökur
(meðal annars hjá borgarstjór-
anum í Reykjavik, Birgi ísleifi
Gunnarssyni - nú einn af
sem um þrjú prósent þjóðarinn-
ar voru stödd, ofurölvi."
Þannig er (slandsdvöiinni
lýst í meðfylgjandi bók sem er
hin skemmtilegasta aflestrar þó
svo að þrjú prósent af 250.000
séu 7500 en ég hef aldrei heyrt
aðra tölu en 5000 í sambandi
við tónleika The Stranglers.
BROTTHVARFID FRÁ EMI
Tvær síðustu plötur kassans,
The Men in Black og La Folie,
eru nokkuð öðruvísi en þær
fyrri. Á þeim er tónlistin orðin
myrkari en hefur samt þróast
stórskemmtilega, er orðin
meira í ætt við hreint rokk. Hér
er að finna stórkostleg lög á
borð við Golden Brown og
Strange Little Girl sem eru
bestu ballöður The Stranglers
og rokkara á borð við Who
Wants the World, Non Stop,
The Man They Love to Hate,
Pin Up og hið kynngimagnaða
La Folie sem á frönsku þýðir
ástarbrjálæði. Þema plötunnar
La Folie er ástin og spurt er
hvort sönn ást sé í raun til. J.J.
bassaleikari segir f titillaginu
sanna sögu af japönskum
námsmanni í París sem myrti
unnustu sína á hroðaiegan
hátt, bútaði hana í sundur og
át síðan. Allt vegna þess að
hann elskaði hana svo mikið,
var haft eftir honum.
Eftir þá plötu var tekið að
súrna verulega á milli The
Stranglers og útgáfufyrirtækis-
ins EMI sem hafði yfirtekið
United Artist árið 1979. The
Stranglers voru mjög ósáttir
við það og því slitu þeir samn-
ingum við fyrirtækið. Þar með
lauk sögu The Stranglers hjá
EMI en hjá nýja fyrirtækinu,
★ NÝIR DISKAR ★ NÝIR DISKAR ★
16.TBL. 1993 VIKAN 41
★ NÝIR DISKAR ★ NÝIR DISKAR ★ NÝIR DISKAR ★ NÝIR DISKAR ★ NÝIR DISKAR ★ NÝIR PISKAR ★ NÝIR PISKAR ★