Vikan - 12.08.1993, Síða 67
NÝJUNG I
KVIKMYNDASÖGUNNI
- Var einhver ákveðin risaeðla
nokkurs konar Arnold
Schwarzenegger risaeðlanna
og kostaði miklu meira að gera
en hinar?
„Já, gram-eðlan (Tyrann-
osaurus Rex). Hún er raun-
veruleg, í fullri stærð og lif-
andi,“ segir Stan. „Hún sýnir ó-
trúlegan leik sem fjögurra og
hálfs tonna leikari á sviðinu.
Hún var í raun hættuleg leikur-
um og öðru starfsfólki í kring-
um hana. Það færði okkur ó-
neitanlega nálægt raunveru-
leikanum að vera með þessa
risaeðlu í kringum okkur.
Henni er stjórnað af tölvu og er
því gott dæmi um hvernig
þessi tæknilegu atriði koma
saman. Hún er lifandi, í fullri
stærð og að leika. Hún er að
gera ýmislegt sem væri ekki
hugsanlegt að hún gæti fram-
kvæmt ef ekki væri fyrir tölvu-
tæknina," segir hann og leggur
þunga áherslu á orð sín.
„Maður hefur allan þennan
„raunveruleika" fyrir augunum
og það er ekki nokkur leið að
sjá að um tæknibrellur sé að
ræða."
- Hvers konar véltækni er
um að ræða í sambandi við
þessa risaeðlu? Er einhvers
konar vél inni í henni?
„Já, þetta er sambland af
lyftibúnaði og fleiru, meðal
annars sérstöku tæki sem
brúðumeistarar nota en það
færir hreyfingar frá litlu módeli
af risaeðlu yfir í þá stóru. Þessi
hreyfiboð fara í gegnum tölvu
þannig að við erum að tala um
4500 kílóa brúðu sem er fær
um að gera hluti sem aldrei í
sögunni hafa verið gerðir með
neinu skrímsli af þessari
stærð. Þau skrímsli sem áhorf-
endur hafa séð áður f kvik-
myndum og skemmtigörðum
hafa alltaf litið út eins og vél-
menni með stífar hreyfingar
vegna þyngdar þeirra og
stærðar. Við urðum að fara
skrefinu lengra. Okkur varð að
takast að gera lífræna risaeðlu
sem væri snör og mjúk í hreyf-
ingum, með eðlilegri húðhreyf-
ingu og virkaði ekki eins og
hún væri með gúmmíbeinum.
Það var ekki nóg að notast við
það sem hafði verið gert áður
með lyftibúnaði heldur varð að
bæta við margs konar tækni
sem byggist á ýmsum
tölvukubbum. Þessir kubbar
geta meðal annars skrásett
hreyfingu á ákveðnum liða-
mótum og látið hana flæða út í
afganginn af líkamanum, hrað-
ar en augað nemur. Það voru
ýmiss konar tæknilegar nýj-
ungar af þessu tagi sem gerðu
okkur kleift að gera ýmislegt
sem ekki hafði verið gert
áður.“
Phil Tippett tekur við. „Þú
varst að tala áðan um ímynd-
unaraflið og að það hafi ekki
stoppað okkur. Við þurftum
hins vegar að vera eins trúir
steingervingafræðinni og hægt
var. Við þurftum að hafa til
hliðsjónar hvernig risaeðlur
mundu í raun líta út ef við gæt-
um vakið þær til lífsins og við
eyddum miklum tíma f sam-
vinnu við steingervingafræð-
inga. Við skoðuðum líka heim-
ildarmyndir af nútíma dýrum,
athuguðum hreyfingar þeirra til
hliðsjónar og gáfum gaum að
hver áhrif þyngd hefur á hreyf-
ingar þeirra."
UPPLÝSINGAR
MEÐHÖNDLAÐAR
EINS OG FAST EFNI
- Áhorfendur eru orðnir góðu
vanir og þeir búast við að sjá
raunverulegar risaeðlur í Ju-
rassic Park. Haldið þið að þeir
eigi samt ekki eftir að trúa sín-
um eigin augum eins og tilfellið
var fyrir fimmtán árum þegar
fólk sá King Kong?
„Það verður að vera raunin,
annars eiga þeir ekki skilið að
lifa,“ segir Stan og við förum
að hlæja. „Ég vann að þessu
verkefni í tvö ár og ég hef unn-
ið að ýmsum stórkostlegum
myndum eins og Terminator 2.
Ég segi við sjálfan mig þegar
ég horfi á myndina: þetta er
ekki hægt. Ég hef því trú á að
viðbrögð annarra eigi eftir að
verða ekki síðri. Þetta er út-
koma samvinnu bestu lista-
manna kvikmyndagerðar í
heiminum sem nota nýjustu
tækni. Þetta er ekki tæknin að
nota listamennina. Þetta er
stórkostleg mynd sem varð að
veruleika vegna Stevens Spi-
elberg. Það var hans vegna
sem okkur var ýtt lengra en
nokkru sinni fyrr og við fengum
að gera hluti sem við höfum
ekki fengið að glíma við áður.
Það var hann sem setti þessa
mynd saman og það var ótrú-
legur galdur.“
„Við ættum líka að minnast
á Gary Rydstrom," segir Philip
Typpett. „Hann sá um hljóð-
„effektana“ og stór þáttur i að
gera eðlurnar raunverulegar
byggist á þeim. Stærð þeirra
tengist hljóðinu mikið og sumt
verður aðeins numið með und-
irmeðvitundinni. Honum tókst
að finna upp alls konar skrítin
staðreyndin er sú að eina leið-
in til að treysta á sannleikann
er að vera beint vitni að hon-
um sjálfur. Ég bið fólk alltaf að
vera á varðbergi þegar það les
eða sér eitthvað. Núna til
hljóð sem eðlurnar nota meðal
annars í samskiptum sín á milli
og það gaf þeim dýpt sem við
hefðum annars ekki verið færir
um að ná fram.“
- Finnst ykkur ekki svolítið
kaldhæðnislegt að við gerð
kvikmyndar sem að vissu leyti
fjaiiar um gagnrýni á vísindin
skuli vera treyst svona mikið á
nýjustu tækni?
„Nei, það er mikill munur þar
á. Við erum að tala um tækni í
þágu mannkynsins," segir
Stan.
Mark tekur við. „Hin hliðin á
þeningnum er sú að við erum
orðin svo leikin í að skapa
myndir að það er ekki nokkur
leið að segja til um hvaða
mynd er raunveruleg. Það er
hægt að breyta hvaða mynd
sem er án þess að það sjáist."
„Við meðhöndlum upplýs-
ingar í dag eins og um fast efni
sé að ræða og tæknin gerir
okkur fært að gera hluti sem
eru langt fyrir utan það sem
við getum ímyndað okkur."
skýtur Phil inn í.
„Ég óttast það ekki,“ segir
Mark, „því jafnvel Ijósmynd er
hægt að setja á svið. Núna at-
vikast hlutirnir bara hraðar og
eru sveigjanlegri. Það sem
gerist er að með aukinni tækni
verða neytendur hennar með-
vitaðri."
„Það er alveg rétt,“ segir
Stan, „þetta er mjög jákvætt og
dæmis, eftir þetta viðtal, ferð
þú heim og býrð til blaðagrein.
Viðtalið verður litað af þínu
sjónarhorni, hvert sem það er.
Hversu trúverðug þessi grein
verður er ekki nokkur leið fyrir
mig að segja til um. Enginn
getur sagt að þú heyrir það
sem ég er að segja, þú heyrir
það sem þú heldur að ég sé
að segja en það þarf ekki að
vera það sem ég er að reyna
að segja. Það er full ástæða
fyrir okkur öll að vera á varð-
bergi gagnvart „raunveruleik-
anum“ með tilkomu aukinnar
tölvutækni.“
„Þetta færir okkur aukna á-
byrgð,“ segir Mark. „Nú, þegar
fólk sér okkar framsetningu á
risaeðlunum, þá trúir það því
að þær hafi litið svona út. Við
unnum náið með steigervinga-
fræðingum, eins og Phil sagði
áðan, en þeir eru alls ekki allir
sammála. Þegar þeir sáu
fyrstu myndirnar hjá okkur urðu
svolitlar rökræður þeirra á milli.
Þegar þeir sáu hins vegar loka-
útkomuna var hún svo trúverð-
ug að sumir þeirra hugsuðu
með sér að þeir þyrftu að end-
urskoða fyrri hugmyndir sínar.
Þannig að þetta hefur að lok-
um þau áhrif að fólk getur
skoðað betur hegðunarmunst-
ur þessara dýra og það er at-
hyglisvert hvernig þetta lokar
hringnum í sambandi við
„hugsanlegan raunveruleika“. □
Eðlurnar
sem sjást
í myndinni
eru sam-
bland af
lyftubún-
aöi og
fleiru, sem
svo teng-
ist tölvu-
borði.
Sem sé
leikbrúöur
- sem
vega
fjögur og
hálft tonn!
16.TBL. 1993 VIKAN 67