Menntamál - 01.04.1961, Blaðsíða 26
16
MENNTAMÁL
Við vorpróf 8 ára voru hlutföllin svipuð, en þó náði
flokkur óskólaþroska barna sömu meðaltölu í lestri og III.
fl. Stafar það einkum af tiltölulega mjög háum lestrar-
einkunnum drengja í Höfðaskóla, sem lent höfðu í IV.
fl. prófsins.
Einkunnir í reikningi á vorprófi 7 ára barna.
I. fl. 9,48.
II. fl. 9,11.
III. fl. 8,28.
IV. fl. 5,00.
Hér ber að vekja athygli á því, að meðaleinkunnir í 7
ára bekkjum eru háar, þar eð námsefnið er mjög ,,létt“.
Þó skera börnin í IV. fl. sig allgreinilega úr. Við vorpróf
8 ára verður munurinn greinilegri.
I. fl. 9,43.
II. fl. 8,46.
III. . fl. 7,36.
IV. fl. 5,30.
Þá skal geta um fylgni (correlation) þroskaprófsins
við einkunnir í lestri og reikningi (með fylgni er átt við
samsvörun þessara tveggja mælikvarða. Samsvörun þessi
er táknuð með fylgnitölu (Co-efficient of correlation),
sem liggur á milli 1 og + 1. Samsvörun milli tveggja
mælikvarða er alger, ef sá sem er t. d. hæstur á þroska-
prófi er einnig með hæsta lestrareinkunn og þannig
áfram fyrir allan hópinn, og myndi hún táknuð með -f- 1,
en væri samsvörunin samfellt öfug, þannig að sá, sem
væri hæstur á þroskaprófi fengi lægsta lestrareinkunn, þá
væri það táknað með fylgnitölunni 1).
Fylgni einlcunna við þroskapróf.
Lestur Reikningur
Vorpróf 7 ára 0,52 0,63 (360 börn)
Vorpróf 8 ára 0,58 0,67 (158 börn)