Menntamál - 01.04.1961, Blaðsíða 36
26
MENNTAMÁL
Leikurinn fer á undan alvörunni.
Ekki reynist örðugt að koma börnunum til þess að taka
vel á móti gestum í alvöru, ef þau hafa fengið undirbún-
ing af þessu tagi í leik. Ég læt venjulega tvö börn hafa
bekkjarvörzlu hálfan mánuð í senn. Þannig geta öll börn-
in í bekknum vænzt að gæta þessa trúnaðarstarfa tvö skeið
á ári hverju. Þessir gæzlumenn skulu einnig taka á móti
gestum. Þeir eiga að taka á móti þeim með stuttu ávarpi,
og þeir eiga að segja nokkur vingjarnleg orð, þegar gestir
yfirgefa skólastofuna. Börnin eiga að finna og vita, að
þau sjálf bera ábyrgð á því, hvernig við gestina er gert.
Gæzlumenn þessir eiga einnig að þakka sérkennurum við
lok skólaárs. Það er svolítið örðugt að mæla svo fyrir, að
manni sjálfum skuli einnig þakkað, en það kemur allt af
sjálfu sér, þegar athygli barnanna hefur verið vakin á
því að þakka öðrum. Gæzlumennirnir skulu einnig flytja
afmæliskveðjur þegar félagar þeirra eiga afmæli, og þeim
ber einnig að þakka fyrir hópinn, þegar námsferð er far-
in. Með þessum hætti venjast krakkarnir á að flytja stutt
ávörp með náttúrlegum hætti, og feimnustu börnunum
vex jafnvel hugrekki til þess að ganga fram og segja fá-
ein orð, þegar það er nokkurs konar embættisverk. Eftir
því sem á skólatímann líður, eru meiri kröfur gerðar til
ræðumannanna.
Þess kyns frjálsar samræður um skólastofuna, lóð og
bæ reynast góð undirstaða, sem unnt er að byggja á síð-
ar meir, þegar börnin taka að sækja fróðleik sinn í bæk-
ur, og nota efnið til viðræðna eða kynningar í leik.
Milclu máli skiptir að rétt sé lesið.
Miklu varðar, að börnin fái rétta og rækilega þjálfun í
svo kölluðum lexíulestri, ef þau eiga að verða fær um að
sækja fróðleik í bækur. Ég byrja venjulega á þess háttar
þjálfun, þegar krakkarnir fá kennslubók í náttúrufræði og
taka að lesa um dýrin á þriðja skólaári. Allir krakkar hafa