Menntamál - 01.04.1961, Blaðsíða 69
MENNTAMÁL
59
Skólaliv. alls Skólahv. Samcining Skólar
3. Skólahv., þar sem sameining er að nokkru komin á og námsstjórar eru að vinna að frckari sameiningu. Skólar í byggingu 24 6
4. Skólahverfi, Sem sameina þarf og námsstjórar eru nú að vinna að sameiningu. Skipulagningarstarf, sem tekur langan tíma 103 31
Samtals 141 141 40
Skólar sem byggðir hafa verið án sameiningar, en hefðu
átt að falla inn í sameiningarkerfið, eru alls 11. Tæplega
er hægt að nota nema 2 þeirra við sameiningu annarra
skólahverfa. Hina 9 hefði ekki átt að byggja. Auðvitað
getur verið álitamál, hvort sameina á þessi 103 skólahverfi
um 31 skóla eða allt að 40 skóla.
Það er hvorki mikið verk né vandasamt að skipuleggja
slíka sameiningu eftir skrá yfir skólahverfi með íslands-
kort við hendina og setja fram einhverjar tillögur um
þessa sameiningu. Aðalverkið, tímafrekt og vandasamt,
er að fá fólkið til þessarar samvinnu, sveitarfélögin, sem
frumkvæði hafa í öllum þessum málum, til þess að standa
að sameiningu skólahverfanna.
Þetta hefur verið eitt meginverkefni námsstjóranna.
Mikið hefur unnizt, en mikið er þó eftir.
Barnafræðslan.
Heildarkostnaður á netnanda í hverjum skólaflokki í
eina kennsluviku með :sama kennslustundafjölda, 28
stundum.
1. Kaupstaðarskólar:
Kennaralaun og annar kostnaður á hvern nemanda ....................... 2.670.80
Kennsluvikur á livcrn nem., 28 stundir livcr ......................... 35
Kostn. á hvcrn nem. í 1 viku með 28 stunda mcðaltal .................. 76.31
Hlutur ríkissjóðs á hvcrn nem. í 1 viku, 28 stundir .................. 53.27
Hlutur sveitarfélaga á hvern nem. í 1 viku, 28 stundir ............... 23.04
2. Fastir heimangönguskólar utan kaupstaða:
Kennaralaun og annar kostnaður á hvern nemanda ....................... 3.102.13
Kennsluvikur á hvern nem., 28 stundir hver ........................... 21