Menntamál - 01.04.1961, Blaðsíða 38
28
MENNTAMÁL
4.
Gerir hreiður úr kvistum og mosa
nálægt stofni á holu tré.
Hreiður á greinum —
Safnar vetrarforða.
3 til 5 ungar í marz,
naktir, blindir.
Krakkarnir hafa jafnan mikinn áhuga á að skipa því
sem þau vita í réttan flokk.
Snúið í leik með frjálsum hætti.
Þegar staðreyndir hafa verið skrifaðar á töfluna, byrja
börnin að snúa þeim í frjálsan leik. Sumir krakkarnir
leika íkorna og hoppa um úti í skógi. Önnur ganga út í
skóg og athuga íkornana og spjalla við þá. Við látum sem
við vitum engin deili á dýrunum. Hvað geta börnin séð?
Það allt, sem skráð er í fyrsta og annan flokk, og um það
geta þau spjallað. En hitt? Um það verða þau að ræða við
íkornana. Þá getum við látið suma krakkana leika veiði-
menn, sem fara út í skóginn til þess að skjóta íkorna. Um
hvað skyldu þeir spjalla. Tilbrigðin geta orðið býsna mörg.
Ef bekkurinn hefur verið þjálfaður allur í sameiningu
við að leita sér fræðslu um nokkur dýr, þá bjarga krakk-
arnir sér brátt upp á eigin spýtur og æfast í að vinna í
flokkum, þar sem dýr eru verkefnið. Það er reynsla mín,
að krakkarnir komast brátt upp á að hagnýta sér skipu-
lega flokkun á verkefninu, líkt og við gerðum í bekkjar-
kennslunni. Og þau skipta þá sjálf með sér verkum. Einn
flokkurinn leitar alls þess, sem hann getur fundið um út-
lit dýrsins. Annar kynnir sér, af hverju dýrið lifir. Sá
þriðji, að hverju gagni það má verða og hvaða tjóni það
veldur. Síðan er unnið sameiginlega að því að snúa þekk-
ingu þessari í leik.