Vorið - 01.09.1964, Side 25

Vorið - 01.09.1964, Side 25
SÍÐASTI SKÓLADAGURINN EFTIR SVERRE BY, SKÓLASTJÓRA — Já, á morgun er síðasti skóladag- Urinn — og prófið. — Það er Sólveig ^ang, kennslukona á Sólvöllum, sem Segir þetta. -— Þá koma foreldrarnir hingað og ef til vill fleiri. Foreldrafélagið ætlar að 8efa öllum börnunum súkkulaði og hin- unr fullorðnu kaffi, hef ég heyrt. — Síðasti skóladagurinn, segir hún aftnr. '— Það er mikilvægur dagur fyrir ykkur öll og mig líka. Þá eigið þið að sýna, hvað þið hafið lært í vetur, og Svo fáið þið sumarleyfi. Sumarleyfi, en svo eru sum ykkar, sem hverfið úr skól- anurn fyrir íullt og allt. Hún lítur til þeirra Eilífs og Arngríms Uln leið og hún segir þetta. En þeir eru Hiðinlegir eins og þeir hafa verið all- an veturinn. Þeir sýna hvor öðrum hnef- ana, snúa sér svo að hinum börnunum §lottandi. Kennslukonan verður ströng á svip- 1Un, þegar hún sér þetta. Hún ætti að ayíta þá. Hún ætti að tala alvarlega v’ð þá og segja hvílík plága þeir hafa verið henni allan veturinn. Fyrsta dag- 1Un, sem þeir komu í bekkinn glottu þeir °g grettu sig framan í hin börnin til að fa þau til að hlæja. Og svona hafa þeir ^agað sér allan veturinn. Þeir hafa hvíslað og masað í hálfum hljóðum, kastað bréfkúlrun um bekkinn og verið vondir við hin börnin til að gera henni erfitt fyrir. Þegar þeir áttu að lesa upp hátt, brunuðu þeir áfram og tóku ekki til greina leiðbeiningar hennar. Það var einn slíkan dag, sem hún missteig sig gagnvart Arngrími. Hann átti að lesa fallegt jólakvæði, en hann breytti orð- unum, skældi sig og vildi ekki hætta, þegar hann var beðinn um það. Þá gekk hún til hans og tók í eyrað á honum. — Æ, æ, hrópaði hann. Hann hróp- aði eins hátt og hann gat og gerði hin börnin hrædd, — og hana einnig. Þeg- ar hún fór frá honum, hélt hann hend- inni um eyrað, eins og hann fyndi til og um leið glotti hann til félaga sinna. Fyrst hugsaði hún i alvöru um að gefast upp og sækja um stöðu annars staðar. En á næsta andartaki vék hún burt þeirri hugsun. Að gefast upp fyrsta árið, sem hún hefði skóla? Flýja af víg- vellinum og láta tvo óþekktaranga verða sigurvegara? — Nei, það mátti ekki koma fyrir. Frá þessum degi skipti hún sér aldrei neitt af þeim Eilífi og Arngrími. Hún talaði aldrei við þá og spurði þá varla neitt. í stað þess lagði hún alúð við VORIÐ 119

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.