Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1963, Síða 20

Æskan - 01.11.1963, Síða 20
ÆSKAN Bruce haidið lífi — í Bonderosa-skógi, einum mesta skógi heims, þar sem hvorki var fæðu né vatn að finna? Núna í nóvember, lækkaði hitinn næstum niður að frostmarki að næturlagi. Síðari hluti miðvikudags fann Indíáni dálitið, sem vakti bæði von og ótta í hjörtum þeirra manna, sem með honum voru. Nálægt barmi Big Chevelon- gjárinnar sá hann spor eftir drengjaskó. Ef Bruce, máttfarinn af hugri og þorsta, hafði komið að brúninni ...? Er þeir héldu áfram leitinni næsta dag, funclu þeir ekkert, en sporhund- arnir fundu lykt! Bruce var ekki viss, en hann hélt, að það hefði verið á þriðja degi, sem hann kom að gjánni. Efann hafði ekki grátið áður, en nú gat hann ekki stillt tárin lengur. Hann uppgötvaði, að hann var kominn langt í burtu frá tjaldbúðunum. Og hvert gat hann farið? Allt í einu kom hann auga á eitthvað grænt þarna niður frá, á botni gjárinnar. Þetta hlaut að vera vatn! An þess að hugsa um neina hættu fór hann fram af brúninni. Hann hrasaði, rann til og meiddi sig og reif um leið föt sín. Þegar hann kom niður, lá við, að hjarta hans brysti af vonbrigðum, því að hann sá aðeins þurra kletta. En þarna, — það glampaði á eitthvað! Það var lítill ísi lagður pollur! Með steini tókst honum að brjóta stykki úr ísnum og saug það með áfergju. ísinn særði hann i fingurna, og honum varð enn kaldara. Nætur- myrkrið var að skella á. Inn á milli klettanna, sem enn þá héldu á sér hitanum frá sólinni, fann hann smáskúta, sem hann skreið inn í til þess að skjálfa eina nótt til viðbótar. Þegar hann vaknaði næsta morgun, leitaði Iiann undir greinum eikanna að akarni, er fallið hefði á jörðina, en fann ekkert, og til þeirra fáu, sem hann sá, — á trjánum, — gat hann ekki náð. Nú var það ekki sulturinn, sem rak hann frá gjánni. Hann hugsaði með sér, að enginn mundi nokkurn tíma finna hann á þessum stað, svona langt frá tjaldbúðunum. Elann ætlaði að fara upp á hinn gjár- barminn, og þar mundi hann ef til vill brátt finna bú- garð eða eitthvað, sem kæmi honum til hjálpar. Fleiri gjár urðu á vegi hans. Hann hrapaði niður grýtt- ar hlíðar og leitaði í ákafa að lindum, en fann enga nema eitt sinn í klettóttum árfarvegi. Eina nóttina kom hann að helli. Hann starði í op hans, síðan fikraði hann sig áfram. Skyndilega kippti hann að sér hendinni. Skinn! Það var dýr í hellinum. Það var svo heitt. Elann langaði óstjórnlega til að hjúfra sig að því, hvað sem það var, því að það var svo heitt, og sofna við hlið þess um nótt- ina. En dýrið var svo stórt, — kannski björn í dái? Bruce gekk rólegur aftur á bak út úr hellinum. Hann vissi ekki lengur, hvað tímanum leið, er hann Dagarnir taldir til 24. desember. clatt út af eina nóttina of úrvinda af þreytu til að búa sér verustað. Hlaup hans breyttist í hægt þramm, og hann fann til svo mikillar þreytu, að hann hélt einna helzt að hann gæti ekki gengið allan næsta morgun. Laugardaginn fannst leitarmönnum sporhundarnir fara ótrúlegyslu leiðir. Hafði drengurinn getað reikað um svo hrjóstrugt landssvæði — og það án matar og drykkjar? Þegar þeir mjökuðust áfram, að sjö dögum liön' um frá því er Bruce hvarf, hvarflaði að þeim sú hugsun, að þeir mundu aldrei finna hann á lífi. Sama morguninn klifraði Bruce daufur í dálkinn niÖ' ur í gjána, sem liann hafði komið að kvöldið áður. " Elann svimaði, og honum leið undarlega. Hvergi vatn, " hann varð að finna vatn, — hann varð að finna vatn- Hann neyddi sig til að halda áfram göngunni. Ef til viH var vatn þarna niðri í gjánni? Allt í einu stanzaði hann! Símalína fyrir skógarhöggs' menn! Hún mundi áreiðanlega vísa honum veg til byggÖa- Bruce byrjaði að hlaupa, en eftir stundarkorn hæg®1 hann á sér! Hann ætlaði að treina þrekið. Er húm nætuf' ^ 300
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.