Æskan - 01.10.1968, Síða 27
bæjarskólans, en loks árið 1929 er hann tekinn í
notkun. Þá var svo komið, að skólabörn voru yfir
2000 og var kennt í leiguhúsnæði úti í bæ. Ekki
var óalgengt að þrí- og íjórsett væri i kennslustofur
Miðbæjarskólans dag hvern.
Árið 1921 fær Miðbæjarskólinn rafmagn, og bað-
hús 1923. Það ár hætti Morten Hansen skólastjórn,
en við tekur Sigurður Jónsson og er hann skóla-
stjóri til ársins 1935. Hallgrímur Jónsson er skóla-
stjóri frá 1935—1941, en þá tók við Ármann Hall-
dórsson. Hanri var skólastjóri Miðbæjarskólans
næstu 10 eða 12 árin, til dauðadags. Núverandi
skólastjóri er Pálmi Jóseísson.
Árið 1946 tók Melaskólinn til starfa í Vesturbæn-
um og létti þá mjög á Miðbæjarskólanum. Á síð-
ustu árum hafa margir nýir skólar verið byggðir í
Reykjavík, unga fólkið flyzt í úthverfin og fer því
börnunum frekar fækkandi, sem sækja eiga gamla
skólann við Tjörnina. Þrátt fyrir háan aldur held-
ur þó Miðbæjarskólinn reisn sinni og svarar fylli-
lega kröfum tímans urn kennsluhætti. Og margir
munu þeir vera, hinir eldri Reykvíkingar, sem líta
til hans hýru auga á göngu sinni um miðbæinn, og
minnast þá bernskuára sinna innan veggja hans.
403