Æskan - 01.11.1968, Page 80
í staðinn sendum við ykkur:
LEIKARAMYNDIR, litlar myndir
LEIKARABLÖÐ af Beatles og Monkees
GLANSMYNDIR, margar gerðir
ÞRYKKIMYNDIR, blóma- og barnamyndir
FRÍMERKJAHÚSIÐ
Lcekjargötu 6 A — Box 1068 — Reylijavík
t
4.,—„„——
TIL ÆSKUNNAR
Ég hef nýlega lokið við að binda inn um
20 árganga af barnablaðinu ÆSKAN fyrir
einn af mínuin góðu nágrönnum. Það var
gaman að handleika ]iessi hlöð, lirein og
vel með farin, en auðsjáanlega marglesin
og Jiess vegna sums staðar trosnuð kápa.
Þótt ég sé yfir barnsaldur kominn, hafði
ég gaman af að líta yfir blaðsíðurnar, og
]>á var æði margt, sem varð að staldra við
og skoða betur.
Góðar myndir og fregnir frá Unglinga-
reglustarfinu víðs vegar um iand fannst
mér ánægjuiegt að sjá. Manni hlýnaði
innilega af að sjá þessi broshýru unglinga-
andlit og lesa um stúkurnar ]>eirra. Já,
koma í huganum inn á fund til þeirra,
lieyra léttu og skæru söngvana og fylgjast
með i skipulögðu starfi.
Margt fleira er athyglisvert i þessum
hlöðum, smásögur, ljóð og þættir um marg-
vísleg efni. Allt stílað við barnahæfi, og
vel fallið til að glæða góðar kenndir og
efla þroska ungmenna.
Því segi ég það, ÆSKAN er blað, sem
hollt er að lesa, og það oftar en einu sinni.
Kæru ungu vinir — lesendur ÆSKUNN-
AR —. Af lieilum huga bið ég ykkur öllum
blessunar Guðs. Sláið heils hugar skjald-
borg um Unglingareglu I.O.G.T. ]>ar sem
því verður við komið. flg held að starf i
slíkum félögum sé eitt liið bezta meðal til
]>roska og mannbóta, ef vel heppnast með
leiðsögn. Þar má fá þjálfun i reglubundnu
starfi með jafnöldrum sínum. Og þar er
vissulega margt að læra, sem að notum
kemur síðar í lífinu.
En, „eitt er nauðsynlegt", það, að hafa
Jesú jafnan í verki með sér. Hann er
barnavinurinn mesti og bczti og tryggasti
leiðtogi i námi og starfi. Orð Guðs er sá
grundvöllur, sem æsku- og ævistarfið Verð-
ur að byggjast á ef vel á að fara.
Nú eru jólin í nánd, „hátíð barnanna",
afmælishátið hans, sem öllum, ungum og
gömlum, vill gefa — og gefur barnaréttinn,
réttindin þau að vera Guðs börn.
Hvaða afmælisgjöf vilt þú, ástkæra
æskusveit, gefa honum — frelsara þínum
Jesú, sem gaf þér „sig og allt um ]eið“:
Með æskuþrótt, sem á ég mér,
ég allt vil styðja, er fagurt er
og rétt og satt, en þjóna þér
ég þó vil helzt, ó Jesú. -— Fr. Fr.
Guð gefi þér vilja til að svara þannig,
ungi vinur.
Einar Sigurfinnsson,
Hverageriði - 84 ára.
ÆVINTÝRI ÆSKUNNAR er fallegasta
ævintýrabókin, sem út hefur verið gefin
til þessa á íslandi.
f lausasölu kr. 283.15. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR kostar bókin aðeins kr.
195.00.
ÆVINTÝRI ÆSKUNNAR
er óskabók barnanna!
508