Æskan - 01.11.1968, Blaðsíða 87
Cliff Richard
Gvendur er að æfa sig undir skautamót. Hann hefur
góðan meðvind og allt gengur vel, en allt í einu hrekk-
ur hann í kút og snarstanzar. Hvað er það sem hann
sér? Ef þú dregur línu frá 1—2 og áfram til 21, sérðu
hvað það er, sem hefur gert hann svo forviða.
Diana Ross.
Diana Ross, ein af tríóinu
heimsfræga, The Supremes, er
nú farin að sækja tima í leik-
list. Kennarinn, sem hún valdi
sér, er ekki ýkja fákunnandi í
þeim efnum, nefnilega hin
heimsfræga leikkona Doris Day
sjálf.
Cliff Richard, sem allir bjugg-
ust við að væri hættur aS syngja
og spila tízkumúsík ungdóms-
ins og aSallega farinn aS snúa
sér aS kvikmyndum, heldur því
nú fram aS innan tíSar komi nýr
rokkfaraldur. Þess vegna hefur
hann aftur leikiS inn á plötu
rokklögin, sem hann gerði fræg
fyrir tíu til fimmtán árum.
Við vitum að þið hafið aldrei séð þetta dýr lifandi,
því það er ekki til í dýraríkinu. En teiknarinn, sem
teiknaði þessa mynd, hefur sett saman sex dýr og
fengið þá þessa mynd. Hvaða dýr hefur hann notað
við gerð myndarinnar? — Lausn er á blaðsíðu 491.
515