Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1972, Qupperneq 26

Æskan - 01.01.1972, Qupperneq 26
ÚTVARPIÐ BJARGAÐI Barnabrautin við Lvov. stjórar. Eftir þriggja ára nám verða þeir svo lestarstjórar, umferðarstjórar, stöðvarstjórar og vinna að ýmsum viðgerðum. Við sumar barnabrautir geta nemendur úr 9. og 10. bekk bætt við sig tveim árum til sérmenntunar að eigin vali. Auk þjálfunar á barnabrautum, þar sem þeir skipa helztu embætti, fá krakkarnir að vinna við raunverulegar járnbrautir sem aðstoðarmenn hinna fullorðnu starfsmanna. Er þvi námi er lokið, fá drengirnir afhent við hátíðlega athöfn skirteini um að þeir séu lærðir i þessari eða hinni sérgrein járnbrautarstarfsmanna og þiggja minjagjafir. Unga fólkið, sem byrjaði við barnabrautirnar, gerði samgöngur að iífsstarfi sinu. Sumir fóru i tækniskóla og sérstofnanir og eru nú meðal yfirmanna i samgöngumálum þjóðarinnar. Við skulum t. d. hlusta á Vladimir Sorokin, einn af stjórnendum farþegaflutninga í Moskvu: „Nú eru nýlega liðin 30 ár siðan ég fór að starfa að samgöngum. Þá tel ég þó ekki fjögur ár, sem ég vann við Litlu Moskvubrautina, þar sem ég byrjaði sem umsjönarmaður með vögnum og endaði sem lestarstjóri. En þar fékk ég einmitt áhugann á járnbrautum, sem hafði úrslitaáhrif á stöðuval mitt. Eins og margir af starfsbræðrum mlnum minnist ég þessara ára með þakklæti og ánægju." ígor Tvérskoj, fréttamaður APN. f- "\ Frægur þýzkur prófessor átti greindan hund. Eitt sinn var hundinum stolið af um- renningi nokkrum, sem fór með hundinn í aðra borg. Hundurinn átti illa ævi og strauk fljótt úr vist umrenningsins. Verka- maður nokkur fann hundinn og sá, að hann var gæðagripur, svo að hann tók hann að sér. Verkamaðurinn átti útvarpstæki. Kvöld eitt átti visindamaður nokkur að halda fyrirlestur. Verkamaðurinn hlustaði á er- indið, en hundurinn var inni hjá honum. Undir eins og fyrirlesturinn byrjaði, spratt hundurinn upp og fór að gelta inn i út- varpstækið og lét ýmsum fagnaðaríátum. Verkamanninum þótti þetta einkepnilegt og skrifaði strax til ræðumannsins. Kom þá i Ijós, að hann var eigandi hundsins, og hundurinn á útvarpinu það að þakka, að hann komst aftur til húsbónda síns. ÞJÓÐTRÚ OG ÞJÓÐ- SIÐIR í AUSTURRÍKI Þjóðtrú og þjóðsiðir haldast mjög viða við i Evrópu. Hér koma nokkrir, sem bænd- ur i Austurriki hafa enn dálæti á: Þegar elzti sonurinn tekur við búinu af föður sinum, leiðir faðirinn hann hringinn i kringum landamerki jarðarinnar. Við hvern merkjastein gefur hann piltinum kinnhest og segir: ,,Á landamerkjum stendur merkja- steinninn. Hafðu hann í heiðri, eins og tiu boðorð guðs. Sá, sem flytur merkjastein, fær ekki ró í gröf sinni. Hann verður bund- inn með glóandi hlekkjum við steininn, þar til steinninn er kominn á sinn stað aftur." Sama dag flytja gamli bóndinn og kona hans í lítið hús spölkorn frá bæ sínum og eyða þar ellinni. Þegar annaðhvort þeirra deyr, er sá látni lagður á líkfjöl, sem letrað er á nafn, fæðingar- og dánarár þess látna. Eftir greftrunina er likfjölin geymd ásamt öðrum likfjölum ættarinnar. Þegar búféð er rekið til fjalla á vorin, eru blómvendir og bjöllur bundnar við horn þess. Kýrnar bera stórar, hljómsterk- ar bjöllur, en kálfar og geitur minni. Er það mikill samhljómur. Þannig er það lika, þegar búpeningurinn er rekinn heim frá seljunum. ----------------------------------------^ 24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.