Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1972, Page 41

Æskan - 01.01.1972, Page 41
i erlendum ritum eru við og við birtar upplýsingar um skaðleg áhrif sjónvarps á menn og dýr. Það, sem hér fer á eftir, er að mestu úr sænska tímaritinu Hálsa. Fjörutiu börn í ameriskri flugstöð fóru nokkurn veginn samtimis að kvarta um stöðuga þreytu, höfuðverk, maga- verk, svefnleysi, og þau urðu taugaveikluð og fengu upp- köst. Við athugun kom í Ijós, að börnin sátu þrjár til sex klukkustundir daglega við sjónvarp. og allt að tiu klukku- stundum á laugardögum og sunnudögum. Læknar þeirra mæltu svo fyrir, að þeim yrði bannað að horfa á sjónvarp. Þessu banni var framfylgt hjá tólf börnum, og eftir tvær til þrjár vikur höfðu þau náð sér að fullu. Hin átján börnin fengu að horfa á sjónvarp tvo klukkutima á dag. og hjá þeim tók batinn fimm til sex vikur. Stöfuðu hin skaðlegu áhrif sjónvarpsins af þvi, að börnin þreyttust af löngum setum, ofreyndu augun, af efni mynd- anna eða af skaðlegum geislunaráhrifum? Vafalaust kemur allt þetta til greina. Með geislunarverkanir frá sjónvarpi hafa verið gerðar tilraunir á dýrum. Rottur voru settar i búr fyrir framan sjónvarpstæki, sem haft var i gangi, en skrúfað niður í þvi, þannig að enginn hávaði heyrðist frá því, og fyrir skerminn var sett svört hlif. Eftir tiu til tólf daga voru allar rotturnar dauðar. Tilraunin var endurtekin. en sjónvarpið ekki haft i gangi nema nokkrar klukkustund- ir á sólarhring. Eftir mánuð voru þessar rottur orðnar sljóar. og þegar þær voru drepnar og krufnar, fundust hjá þeim miklar heilaskemmdir. — Enn ein tilraun var gerð með lit- sjónvarp, sem var sett i fjögurra metra fjarlægð frá búri með rottum af báðum kynjum á timgunarskeiði. Hjá þess- um rottum fækkaði ungum niður í einn til tvo i stað tiu, sem eðlilegt er. Útgeislun frá sjónvarpstækjum er mjög mismikil, mest frá litsjónvarpstækjum og biluðum eða gölluðum tækjum. Öllum er kunn hættan af röntgengeislum, hvort sem þeir eru notaðir til lækninga eða rannsókna við gegnlýsingar og myndatökur. — Og þá eru ekki síður á allra vitorði skaðleg áhrif geislunar, sem berst um víða veröld frá hinum tíðu kjarnorkusprengingum og hvers konar meðferð og nýtingu kjarnorkunnar. Engir eru eins viðkvæmir fyrir áhrifum þessara hættu- legu geisla og ungvrðið. Við ráðum ekki við það. sem gerist úti í hinum víða heimi. En innan þröngra veggja heimilisins getum við dregið úr hættunni af okkar eigin heimilistækjum. — Við ættum að sitja sem lengst frá sjón- varpstækinu, ekki hafa það í gangi i tima og ótima og draga eftir mætti úr setum barna við sjónvarpið. (Úr Heilsuvernd). Morgunleikfimi í útvarpinu! 35

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.