Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1972, Blaðsíða 51

Æskan - 01.01.1972, Blaðsíða 51
Þó að myndir Goða hafi borið af, þá eru nokkrar myndir verð- launahæfar og við geymum þær um sinn og sjáum til, hvort nýjar myndir koma, sem slá þær út. Ég tek hér eina mynd úr bunkanum, sem aldrei getur orðið verðlaunamynd, en hún er skemmtileg á sínn hátt, og það er bréfið líka frá honum Pétri Rúnari Kjartanssyni, Vesturvegi 31, Vestmannaeyjum. Hann segir: Kæra Æska! Ég var i s.veit i sumar í Gröf á Höfðaströnd. Mamma gaf mér myndavél þegar skólinn var búinn. Ég tók mikið af myndum, sumar voru góðar og aðrar slæmar eins og gengur. Mig langar til að senda þér þessa mynd, mér þykir hún góð, en auðvitað tók ég hana ekki sjálfur, því að ég er með á henni. Bóndinn á bænum á þessa hesta. Ég er næstaftastur, en fyrir aftan mig er sonur bóndans, og fremst er heimasætan á bænum, hún er kölluð Kiddý. Hún er bara 5 ára. Þriðji drengurinn á myndinni er úr Reykjavik, og hann var þarna í sveit eins og ég. Mig langar til að senda þér fleiri myndir seinna. Að lokum vona ég, að myndin verði birt i Æskunni og ég þakka allt það mikla efni sem Æskan hefur flutt mér í máli og myndum. Það er ekki bara ég einn, sem les Æskuna, mamma og pabbi hafa líka gaman af henni. Kærar kveðjur. Þetta var fallegt og skemmtilegt bréf, og við sendum Pétri dálítið að launum. — S.J. MYND MÁNAÐARINS Allir áskrifendur Æsk- unnar, 14 ára og yngri, mega senda inn myndir. Gaman væri að fá bréf með. Merkið umslagið: ÆSKAN, Box 14, Reykja- vík, og neðst í hornið MYND MÁNAÐARINS. Hver fær verðlaun næst? Hvaða myndir verða birtar næst? HRÆÐILEG HUGMYND 'Prestur nokkur hitti mann, sem Magnús hét, á förnum vegi. — Hvernig liður þér núna, Magnús minn? spurði prestur. — Illa, svaraði Magnús. — Allir fara með mig eins og seppa. Ef einhver þarf að láta sækja eitthvað eða gera, þá er strax kallað á mig, svo að ég hef aldrei frið eða hvíldarstund. Prestur vildi hughreysta hann og sagði: — Láttu ekki hugfallast, Magnús minn. Þú veizt, að þessi jörð er mæðudalur og hér er aldrei friðar að vænta. En sú kemur tíðin, að þér verður endurgoldin þessi mæða með ævarandi friði í himnaríki. Magnús hristi höfuðið og sagði: — Það held ég nú að seint rætist, prestur minn. Undir eins og menn sjá mig þar, kallar hver sem betur getur: Kveiktu á sólinni, Magnús! Mokaðu frá tunglinu, Magnús! Taktu skarið af stjörnunum, Magnús! Gerðu þrumur og eldingar, Magnús! Hleyptu út stormunum, Magnús! Smalaðu saman skýj- unum, Magnús!* Láttu rigna yfir jörðina, Magnús! Og svona munu þeir halda áfram. Nei, þá vil ég heldur vera kyrr hérna. Notuð eru venjuleg spil. Bjóðið einum áhorfanda að taka stokkinn, stokka spilin og draga síðan eitt spil úr. Síðan afhendir hann þér stokkinn, og meðan hann sýnir félögum sínum spilið, sem hann valdi, snýrð þú baki að þeim, svo að tryggt sé, að þú getir ekki séð neitt. Síðan snýrðu þér að þeim og biður þann, sem dró spilið að stinga því inn í stokk- inn aftur. Þú stokkar því næst spilin um stund og leggur þau síðan á borðið með framhlið (myndhlið) upþ. Þá kemur það skrítna í Ijós, að eitt spilið snýr bakhliðinni upp, og siðan reyn- ist það einmitt vera spilið, sem áhorfandinn dró úr. Hvernig má það vera? 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.