Æskan - 01.01.1972, Síða 52
SKÁTAOPNAN
Ritstjórn: HREFNA TYNES
ið áramót er oft gott að nema
staðar augnablik og lita aftur til
liðins tima áður en ný stefnu-
mið eru tekin á nýju ári.
Þetta á jafnt við um félög sem einstak-
linga. Alltaf er breytinga þörf, en þær þarf
að byggja á íhugun og reynslu, sem við
höfum fengið á liðnum árum.
Þegar við erum ung, er reynslan ekki
löng, en breytingar örar. Því er okkur mikil
nauðsyn á að athuga vel okkar hag og
notfæra okkur reynslu annarra.
Foreldrar okkar og skólinn eru oftast
bezta athvarfið i þeim efnum, en timann,
sem þið hafið afgangs frá heimili og skóla,
köllum við tómstundir.
i islenzku máli getur tóm- þýtt tvennt.
annað hvort auðn eða eyðimörk, eða þá
fristundir og tækifæri til að eyða þeim.
Fátt skapar frekar framtið ungra drengja
og stúlkna, en hvernig þau verja tómstund-
um sinum.
Fari tómstundirnar til einskis — í auðn
— er hætt við að margt fari ekki eins vel
og búizt var við. Það býður heim þeirri
hættu, sem iðjuleysið er með innantómum
skemmtunum og þá sótt ávallt lengra á þau
mið. — Og árangur þess i bezta falli —
enginn!
Sé tómstundunum varið til starfa að
gagnlegum málum, til að kynnast nýjum
viðhorfum eða leggja stund á iþróttir, sem
Fyrrverandi torseti islands og Páll Gislason skátahöfðingi á skátamóti i Botnsdal.
þroska likama og sál til átaka, þá verður
það hið bezta vegarnesti hvérjum ungum
manni til að mæta lífinu með gleði og
ánægju.
Fjölhæfni daglegs lífs nú á dögum býð-
ur upp á mörg tækifæri fyrir ungt fólk, en
það býður líka heim mörgum hættum.
,,Það þarf sterk bein til að þola góða
daga," segir máltækið. En það mætti lika
segja, að þá þyrfti að styrkja þau áfram
og reyna á þau með hæfilegum verkefnum.
Til að hjálpa unglingum til að nota og
njóta tómstunda sinna á hollan hátt hafa
verið stofnuð mörg félög, sem hafa unnið
og vinna mikið starf fyrir ungt fólk.
Eitt af þeim er skátafélagsskapurinn,
sem á þessu ári hefur starfað i 60 ár á
islandi. Skátar veita ungu fólki tækifæri
til að fylla tómstundir með störfum, sem
miða að því að þjálfa ungt fólk andlega
og likamlega með útilegum og gönguferð-
um, auk ýmissa verkefna, svo að skátar
geti staðið við kjörorð sitt: Vertu viðbúinn,
en þar á ég við það að geta veitt aðstoð,
ef slys ber að höndum eða óvæntir erfið-
leikar verða á vegi. Til þess leggja skátar
stund á hjálp við sjúka og slasaða — hjálp
i viðlögum, — kunnáttu í hnútum, mat-
reiðslu, tjöldun og margt fleira.
En skátastarf er lika skemmtilegt með
varðeldum, kvöldvökum og skátamótum,
þar sem hver leggur fram sitt skemmtiatriði
og aðkeyptra skemmtikrafta er ekki þörf.
Skemmtunin býr i okkur sjálfum og við
þurfum aðeins að ná henni fram og hagnýta
hana sameiginlega.
Skátar starfa i skátaflokkum, 6—8 skát-
ar, undir stjórn foringja síns. Þar er hver
maður ómissandi og hefur sitt mikilvæga
hlutverk, sem ekki má bregðast. Þetta er
aðalsmerki skátastarfs. Þar kynnast skát-
arnir i starfi og leik og þar myndast þau
vináttubönd, sem hafa mest að segja.
46