Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1972, Qupperneq 56

Æskan - 01.01.1972, Qupperneq 56
Seglskip úr eik með hjálparvél. Stærð: 397 brúttórúml. Smíðuð i Svendborg í Danmörku árið 1919. Keypt hingað til landsins árið 1920. Svalan kom svo hingað i fyrsta sinn þann 13. maí hlaðin vörum frá Leith og Álaborg. Eigendur voru: Samband ísl. samvinnufélaga, Kaupfélag Borg- nesinga og Timburverzlunin Völundur. Svalan flutti siðan hingað nokkra timburfarma frá Svíþjóð. Auk þess var skiþið i förum til Spánar með saltfisk og flutti þá salt frá Miðjarðarhafslöndum hingað heim aftur. Svöluna sleit svo upp i norðan stórviðri 24. marz 1922, þar sem skipið lá mannlaust i vetrarlægi hér á Reykjavíkurhöfn. Rak skipið á land við Rauðarárvík. Björgunarskipið Geir náði Svölunni siðar út, og var skipið tekið hér upp i slippinn. Það var þá stærsta skip, sem þar hafði verið dregið upp. Svo mikið var Svalan skemmd, að viðgerð þótti ekki borga sig, og var skipið síðar rifið úti í Örfirisey. Myndin er af Svölunni á strandstaðnum. E/S GEIR Björgunarskip danska björgunarfélagsins Z. Svitzehs Bjergn- ingsenterprise, en það var elzta félag sinnar tegundar i heimi, stofnað i Kaupmannahöfn árið 1833. Geir kom hingað til lands árið 1909 og var skipið hér við björg- unarstörf á annan tug ára, en skrásett í Kaupmannahöfn. Geir var smiðaður í Gestemunde í Þýzkalandi árið 1909 sérstaklega til björgunar og viðgerða við íslandsstrendur. Var það þá talið eitt vandaðasta skip sinnar tegundar í heiminum. Skipið hafði margar vélknúnar dælur svo og gufudælur og flytjanlegan gufu- ketil. Þá var Geir búinn sérstaklega sterku akkerisspili og lyfti- tækjum. Vél skipsins var mjög fullkomin, og um borð var einnig viðgerðaverkstæði, sem hafði yfir að ráða þrýstilöftsverkfærum, þeim fyrstu er hingað komu. Þá voru einnig kafai;ar starfandi á skipinu. Skipherra á Geir var danskur, Wittrup að nafni, og innan björgunarfélagsins var hann oft nefndur Atlantshafsskipstjórinn, en félagið var með björgunarskip starfandi víða um heim. Wittrup var ófeiminn að leggja i björgun skipa við erfiðar aðstæður, eins og t. d. við sandana á suðurströnd landsins. Voru þá skipin oftast dregin til Reykjavikur og gert við þau inni á Sundum eða þau dregin á land við Gufunes. Þá má geta þess, að Geir kom á strandstaði skipanna Lauru, Goðafoss og Sterlings, en þar varð þetta góða björgunarskip að lúta í lægra haldi fyrir náttúruöflunum SEGLSKIPIÐ RÓSA i 10. tbl. ársins 1970 birtist mynd í þættinum, sem talin var vera af seglskipi Gránufélagsins, Rósu á Eskifirði. Nú hefur komið I Ijós að svo var ekki, heldur er hér um að ræða fisktökuskipið Ideal, sem rak þarna á land í ofviðri, og er myndin af skipinu á strandstaðnum. Skipin tvö munu hafa verið af svipaðri gerð. Þá er einnig vitað nú, að Rósa var seld til Svíþjóðar árið 1913. Hér kemur svo gömul mynd frá Seyðisfirði, sem tekin er 13. ágúst árið 1887. Það kann að þykja undarlegt að sjá isjaka á firðinum á þessum árstíma, en svona var þetta samt. Gufuskipið er Miaca, eign O. Wathnes, og er það hans fólk, sem sést þarna á ísnum. Lýsing á Miöku er i 4. tbl. s.l. árs. Seglskipið, sem sést þarna, er eitt af verzlunarskipum Gránufélagsins, og þá liklega Grána eða Rósa. Seglskipiö SVALAN GUÐM. SÆMUNDSSON: íslenzk 8KIP 50
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.